Síða 1 af 1
Nýju Omega!! Ekki verið að grínast???
Sent: Sun 04. Des 2005 10:36
af Pepsi
Sælir Piltar, ég var að vafra um veraldarvefinn núna í morgunsárið og rakst á Nýja Omega fyrir ATI.....Stóðst ekki mátið og náði mér í þá.
Get ekki sagt annað en að þessir driverar eru ROSALEGIR.
Tók smá 3Dmark 05, klukkaði X800XT kortið í 513/550 og fékk, já
6408 stig?? Frekar hátt á X800 korti. Screenie fylgir
Skora á alla ATI gaura þarna úti að prófa þessa drivera, meira að segja CS:source fékk svakalegt boost....
Sent: Sun 04. Des 2005 12:32
af Stutturdreki
Gastu yfirklukkað eitthvað meira með nýja drivernum heldur en þeim sem var fyrir?
Hvaða tól notaðarðu til að yfirklukka? Td. var ég að prófa að yfirklukka kortið mitt fyrir löngu og þá líkaði Ati Tool ekki Temporal AA í Omega drivernunum, og ég virtist ekki geta slökkt á því.
Sent: Sun 04. Des 2005 12:38
af hahallur
Geturu ekki verið að þetta sé bara minkuð myndgæði.
Sent: Sun 04. Des 2005 12:53
af Pepsi
Getur verið þetta og getur verið hitt.
Ég notaði Rivatuner til að klukka kortið og þegar ég hef verið að bencha 3dMark 05 þá hef ég alltaf notað þessa klukkun 513/550. Nota kortið ekkert yfirklukkað nema bara til að bencha 3dmark. Kortið mitt bara einfaldlega MJÖG gott kort (Visiontek X800XT)
Myndgæðin eru betri ef eitthvað er. Með kortið á stock og örrann(3500+) á stock líka. Ég allavega er sáttur þar sem ég fann virkilegan mun á þessum driver.
Cat.511 í Cs:source test = 99.04fps á ákveðnum stillingum (allt stock)
Omega nýji í sama testi = 120fps. það er svolítið mikill munur.
Sent: Sun 04. Des 2005 13:03
af viddi
Omega eru mjög góðir driverar, en nú spyr ég, hvenær ættlar gaurinn að uppfæra Nvidia driverana...
þeir eru það gamlir að þeir virka ekki fyrir Geforce 6 og 7 kortin
http://www.omegadrivers.net/nvidia/win2k_xp.php
Sent: Sun 04. Des 2005 13:05
af hahallur
Já eru þetta bara ekki registry breyttir Catalyst driver-ar í rivatuner.
Þeir eru ekki að gera þetta from scratch.
Sent: Sun 04. Des 2005 13:28
af Pandemic
Þetta eru bara tweakaðir Catalyst driverar ekkert annað.
Sent: Sun 04. Des 2005 14:10
af k0fuz
Pepsi er hægt að nota þennan driver við x850 XT ?? og nenniru að peista link á driverinn , takk.
Sent: Sun 04. Des 2005 14:33
af Vilezhout
ég rakst á fyrir viku eða svo benchmark/samanburð þarsem var verið að bera saman 7800gtx og x1800 kort og þeir héldu því fram að myndgæðin væru mun betri í x1800 kortinu í hæstu upplausnum og með aa í botni þótt 7800 kortið væri að skila fleirri fps
mér þætti gaman ef einhver væri með hlekk á þetta í einhverjum vasanum
Sent: Sun 04. Des 2005 16:47
af Pepsi
Sent: Sun 04. Des 2005 17:09
af MuGGz
myndi þetta vera gera einhvern mun fyrir okkur með gömlu kortin ?
t.d. ég með 9800XT ...
Sent: Sun 04. Des 2005 17:42
af Pepsi
Jahh ég bara veit það ekki. Það þarf ekkert að vera að leikir og annað verði bara allveg brilliant á driverupdate-i.
Um að gera bara að prófa, Omega drivers hafa hingað til verið mjög góðir. Og mjög margir sem eru að nota þá frekar en orginal Catalyst.
Það sem ég er að benda á er að þessir driverar gáfu mínum vélbúnaði mikið búst, svo kannski virka þeir ekki eins vel með öðrum.
Sent: Sun 04. Des 2005 17:50
af hahallur
Já það gerir það Muggz, annars er þetta ekkert nýtt DNA Drivers virka allveg eins.
Hækka mann um 1000 í score í 3d mark 05 og gefa manni 10-30 fps auka með image quality reduce.
Sent: Sun 04. Des 2005 18:38
af Pepsi
hækka um 1000 stig í 3dmark? Ef það væri rétt vinurinn þá væru þeir sem eru að nota Moddaða drivera Omega/dna með langt yfir MILLJÓN stig í 3dmark.
En ég enn og aftur ítreka, þetta er góður driver og virkar vel fyrir mig, guð má vita hvað gerist á annari vél.
Sent: Sun 04. Des 2005 19:47
af ICM
ATi komu nú með driver um dagin sem auk afköst í OpenGL leikjum um allt að 80% svo afhverju ætti þetta ekki að vera hægt?
Sent: Sun 04. Des 2005 20:46
af Pepsi
auðvitað kemur einhver afkastaaukning með nýjum driverum, en ekki alltaf.
En að segja að Omega og Dna driverar geri ekkert annað en að auka 3dmark stig um 1000 og dragi úr image quality, er kannski ekki allveg rétt.
Eitt í þessu! Ég er ekkert að reyna að koma með einhverjar nýjar og heitar fréttir hérna með þessu. Ég hef bara ekki séð svona mikla afkastaaukningu í vélinni minni í driverupdate-i
Sent: Sun 04. Des 2005 20:52
af Stutturdreki
Eh.. jú reyndar
Ég var einu sinni að spá í DNA driverunum og gat valið um mismunandi uppsettningar. Þegar ég fór að lesa hvað fælist í þessum mismunandi uppsettningum þá var bara verið að lofa meiri hraða á kostnað gæða.
Ég hef aldrei kynnt mér sérstaklega hvað Omega gaurinn gerir við driveranna til að ná meira úr þeim heldur en ATI Orginal, nota þá bara vegna Softmod virkninar..
Sent: Sun 04. Des 2005 21:21
af Pepsi
jamm einmitt, hef aldrei spáð í að skoða neitt hvað felst í þessum driverum. Það sem ég er að miða við í þessu tilfelli er einfaldlega
"what god gave me". Augun. Ég sé stóran mun á spilun tildæmis CS:source með þessum.
En ég meina "these work for me, and thats it". "use what ever you like"
Skemmtilegt að fá svona viðbrögð hjá kortinu akkurat þegar maður er að fara að svíkja lit og hoppa yfir til Nvidia.
Sent: Mán 05. Des 2005 09:10
af kristjanm
Vilezhout skrifaði:ég rakst á fyrir viku eða svo benchmark/samanburð þarsem var verið að bera saman 7800gtx og x1800 kort og þeir héldu því fram að myndgæðin væru mun betri í x1800 kortinu í hæstu upplausnum og með aa í botni þótt 7800 kortið væri að skila fleirri fps
mér þætti gaman ef einhver væri með hlekk á þetta í einhverjum vasanum
Það eiga víst að geta verið eitthvað örlítið betri myndgæði í ATI kortunum, og þá meina ég örlítið betri á sömu stillingum, ekkert til að taka eftir samt.
En ATI X1800 kortin höndla AA alveg ekkert smá vel.
Sent: Fim 08. Des 2005 01:27
af ^Soldier
Ég náði mér nú í þennan driver. Það vill svo til að núna get ég ekki sett á Open GL í counter-strike 1.6 :S Skrítið að hann gæti haft þau áhrif.