Síða 1 af 1
[aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Fös 27. Maí 2022 18:53
af Bajazzy
Heyriði mig vantar smá aðstoð með að ákveða hvort ég ætti að fá 12th gen Core eða 3070 þegar ég fer til Spánar núna júní. Er núna með i3 8350 yfirklokkaðan í 4.6 stable ég er bara að spila tölvuleiki.
Pælingar - GPU var að fara soldið niður og þessi örgjörvi er small but mighty fjagra kjarna dúlla.
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Fös 27. Maí 2022 19:34
af worghal
hvaða gpu ertu með núna?
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Fös 27. Maí 2022 20:12
af jonsig
Færð örugglega meira útúr skjákortinu nema þú sért kannski með 3060Ti.
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Lau 28. Maí 2022 01:23
af Bajazzy
1660 ti
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Lau 28. Maí 2022 04:44
af Sinnumtveir
Bajazzy skrifaði:1660 ti
Við þurfum meira.
Hvaða upplausn og hraða þolir skjárinn þinn? Er hann með FreeSync eða (guð forði okkur) Gsync? Hvaða fps ertu að sjá núna og hverskonar fps + effektagetu ertu að óska eftir?
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Lau 28. Maí 2022 07:40
af fhrafnsson
Mér finnst gott að skoða bara álagið á örgjörvan og skjákortið (ALT+R ef þú ert með Geforce Experience), ef skjákortið er að rembast í 100% stöðugt er kominn tími á uppfærslu þar frekar en á örgjörvanum (sem er yfirleitt staðan þar sem flestir leikir fyrir utan strategy leiki reyna meira á örgjörvan).
Hvað er annars að Gsync?
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Lau 28. Maí 2022 19:17
af jonsig
fhrafnsson skrifaði:Mér finnst gott að skoða bara álagið á örgjörvan og skjákortið (ALT+R ef þú ert með Geforce Experience), ef skjákortið er að rembast í 100% stöðugt er kominn tími á uppfærslu þar frekar en á örgjörvanum (sem er yfirleitt staðan þar sem flestir leikir fyrir utan strategy leiki reyna meira á örgjörvan).
Hvað er annars að Gsync?
Ertu ekki að meina ef CPU er að rembast í 90% + og
skjákortið er ekki í 100% ?
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Sun 29. Maí 2022 14:15
af Trihard
jonsig skrifaði:fhrafnsson skrifaði:Mér finnst gott að skoða bara álagið á örgjörvan og skjákortið (ALT+R ef þú ert með Geforce Experience), ef skjákortið er að rembast í 100% stöðugt er kominn tími á uppfærslu þar frekar en á örgjörvanum (sem er yfirleitt staðan þar sem flestir leikir fyrir utan strategy leiki reyna meira á örgjörvan).
Hvað er annars að Gsync?
Ertu ekki að meina ef CPU er að rembast í 90% + og
skjákortið er ekki í 100% ?
Ég ætla líka að vera sniðugur og bæta við að ef CPU er að rembast gæti vinnsluminnið verið of lítið
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Sun 29. Maí 2022 20:23
af urban
Sinnumtveir skrifaði:Bajazzy skrifaði:1660 ti
Við þurfum meira.
Hvaða upplausn og hraða þolir skjárinn þinn? Er hann með FreeSync eða (guð forði okkur) Gsync? Hvaða fps ertu að sjá núna og hverskonar fps + effektagetu ertu að óska eftir?
Bara svona forvitni, hvað er að Gsync ?
Re: [aðstoð] To GPU or not to GPU
Sent: Mán 30. Maí 2022 04:22
af Sinnumtveir
urban skrifaði:Sinnumtveir skrifaði:Bajazzy skrifaði:1660 ti
Við þurfum meira.
Hvaða upplausn og hraða þolir skjárinn þinn? Er hann með FreeSync eða (guð forði okkur) Gsync? Hvaða fps ertu að sjá núna og hverskonar fps + effektagetu ertu að óska eftir?
Bara svona forvitni, hvað er að Gsync ?
G-sync er enn eitt "vendor-lock-in" dæmið frá Nvidia. G-sync er svipað FreeSync, en G-sync stórhækkar verð á þeim skjáum sem styðja það. Það er uþb siðferðileg skylda að hafna G-sync.