Síða 1 af 1

Ati 9700 pro frýs í BF2

Sent: Lau 26. Nóv 2005 19:49
af sako
Ég er með Ati 9700 pro sem ég keypti notað og það crashar alltaf í BF2.
Fyrst var það með upprunalegu kælingu sem ég skipti út fyrir stóri salman kælingu með viftu, en það virðist ekki laga vandamálið. Það er ekki of mikill hiti í kassanum og ég er nýbúinn að enduruppsetja XP og installa nýjasta driver fyrir kortið og patch fyrir BF2.
Þegar tölvau crashar heyri ég nokkrum sek áður að einnhver harður diskur slekkur á sér eins og þegar slökkt er á tölvunni.

Tölvan sammanstendur af
P4 3.0 GHz, MSI NEO móðurborði, 1 Gb vinnsluminni og blessuðu skjákortinu.

Kannski er málið bara að skipta aftur yfir í Nvidia.

Með fyrirfram þökk.

Sent: Lau 26. Nóv 2005 20:35
af gnarr
mér heyrist frekar málið að skipta um aflgjafa. hvernig aflgjafa ertu með?

Sent: Lau 26. Nóv 2005 22:04
af sako
Ég er nýbúinn að skipta um aflgjafa vegna þessa vandamáls.
Keypti Antec 480W, svo hann er ekki vandamálið.
Þetta er svolítið furðulegt því þetta gerist bara þegar ég spila BF2, ekki í öðrum leikjum og alltaf eftir um 30 - 90 mín eftir að leikurinn byrjar.
Sá sem átti kortið áður lenti í hita vandamálum með það og þurfti að nota auka viftu til að kæla það. Spurning hvort það hafi skemmst við að hitna of mikið.

Sent: Lau 26. Nóv 2005 22:07
af sako
Sama hvað gerist með þetta kort mun ég skipta yfir í Nvidia næst, ekkert nema vesen með drivera og fleira með Ati, lenti aldrei í veseni með Nvidia.

Sent: Lau 26. Nóv 2005 22:26
af gnarr
Ég hef einmit akkúrat öfuga reynslu.. Þykir ATi standa sig mun betur hvað varðar drivera.

Sent: Mán 28. Nóv 2005 08:10
af Gestir
Sammála.

Er með X800 PRO og gæti ekki verið sáttari.

Ég var með svipað vandamál í sumar en það endaði á því að vera Powersupply-ið.

Þannig að ég get ekki ýmindað mér hvað þetta er . Eitthhvað Conflict.

Fáðu þér bara nýtt kort og AMD örgjörva... þá ertu save

Sent: Mán 28. Nóv 2005 08:57
af kristjanm
Já kaupa bara nýtt, er það ekki alltaf besta lausnin?

Nei svona annars, ertu með alla aðra drivera í lagi?

Mátt líka alveg athuga með minnið, getur prófað að kranka voltinu á minninu upp um 0.1V og athuga hvort að eitthvað lagist.

Sent: Mán 28. Nóv 2005 13:02
af CendenZ
Ég lenti í því nákvæmlega sama og þú ,ég skipt um viftur og læti.

en þetta var hiti.. þetta voru minniskubbarnir á skjákortinu sem voru orðnir sjóðandi heitir.

lagaðist með minniskubbaheatsinki sem ég fékk í task og lét 80 mm silenx viftu blása á þetta

Sent: Mán 28. Nóv 2005 18:32
af sako
Ég keypti Zalman viftulausa kælingu (risa álplötur með 2 hitapípum)
með auka heatsink fyrir minnið og svo blæs 80mm vifta á þetta, svo ég get verið viss um að þetta er ekki hita vandamál.
Hef fengið lánað ati 9600 xti sem ég ætla að prófa um helgina.

Er hægt að nota eitthvað forrit sem greinir svona vandamál ?
því ég fæ aldrei neina villumeldingu frá windows þegar þetta gerist.

Sent: Mán 05. Des 2005 21:15
af sako
Ég fór að velta því fyrir mér hvort hiti gæti verið að valda þessu og prófaði því að hafa hurðina opna á meðan ég spilaði og viti menn leikurinn hefur ekki frosið síðan. Um leið og ég loka kassanum þá frýs hann fljótlega.
Hlýtur að vera dautt loft einhverstaðar við skjákortið sem veldur þessu.

Takk fyrir svörin.

Sent: Mán 05. Des 2005 21:50
af CendenZ
sako skrifaði:Ég fór að velta því fyrir mér hvort hiti gæti verið að valda þessu og prófaði því að hafa hurðina opna á meðan ég spilaði og viti menn leikurinn hefur ekki frosið síðan. Um leið og ég loka kassanum þá frýs hann fljótlega.
Hlýtur að vera dautt loft einhverstaðar við skjákortið sem veldur þessu.

Takk fyrir svörin.



minniskubbarnir eru að hitna hjá þér.

ég er ekki sá eini sem lenti í því, og þú verður svo sannarlega ekki sá síðasti

Sent: Mið 07. Des 2005 08:40
af Xyron
ef þú ert með kassa sem er með plás fyrir kassaviftu á hliðini, þá gætirðu látið hana plása nokkurnveginn beint á minnin..

Loftflæðið gæti einnig verið stórlega aukið ef þú heftur eina viftu sem blæs inn í kassan t.d. framaná, og eina út aftaná... þar að segja ef þú ert með kassa sem er nógum viftu mountings? hvað kallar maður þetta annars?

Sent: Mið 07. Des 2005 12:44
af Stutturdreki
Nokkurn veginn.

Annars er oft óþarfi að hafa viftu að framan nema til að blása á harðadiska eða/og ef þú vilt stjórna því hvar kaldara loft kemur inn í kassann. Það vill nebblilega svo skemmtilega til að það kemur jafn mikið loft inn í kassann og fer út. Loftið fer hinsvegar stystu leið svo að það er spurning um hvar kassinn hleypir því inn.

Síðan, eins og einhver var að reyna að benda á, eru sumir kassar með viftugati á hliðinni í svipaðri hæð og skjákortið þar sem þú getur sett viftu sem blæs kaldara lofti beint á skjákortið.

Sent: Mið 07. Des 2005 12:50
af gnarr
Þú vilt ekki halda því fram að það myndist yfir eða undirþrýstingu í kassanum, eins og einhver gerði í denn :lol:


*edit*

fann póstinn :D http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=1528

Sent: Mið 07. Des 2005 12:59
af Stutturdreki
Heh.. nei.. amk. ekki með littlu viftunum mínum í óþétta kassanum mínum.

Sent: Mið 07. Des 2005 13:58
af sako
Eins og sést á myndinni ætti skjákortið að vera nógu kalt til að frjósa ekki, því ég er með zalman kælingu á því og minniskubbunum og þar að auki blæs 80mm visfta á það. Auk zalman cpu kælingu er ég með viftu sem sýgur loft úr kassanum að aftan og svo sýgur spennugjafinn loft úr kassanum og blæs út að aftan. Ég prófaði að sjá muninn á hitanum með kassan opin og lokaðan.
Opin var cpu í 48° og system í 45°
lokaður var cpu í 51°og system var áfram í 45°.
Það munar greinilega þegar skjákortsviftan fær kalt loft eða 45° loft.
Spurning um að setja nokkur göt á kassan nálægt skjákortinu til að auka loftflæði.

Sent: Mið 07. Des 2005 14:03
af Stutturdreki
Hvaða mynd?

sako skrifaði:Opin var cpu í 48° og system í 45°
lokaður var cpu í 51°og system var áfram í 45°.
Og það er eitthvað að hjá þér, cpu kælingin er greinilega ekki að fá kaldara loft. Fyrir utan það er 45°C alltof hátt ef það er lofthitinn inn í kassanum, ætti ekki að vera mikið hærra en lofthitinn í herberginu sem tölvan er í.

Hvaða Zalman kælingu ertu með á skjákortinu, 7700 eða HD-80 ?

Svo getur þetta náttúrulega verið eitthvað allt annað en skjákortið.

Sent: Mið 07. Des 2005 14:04
af sako
Hér kemur myndin!!!

[img=http://img229.imageshack.us/img229/1461/dsc000548ip.th.jpg]


Ég mældi hitann í kassanum með fluke hitamæli og hann mælist rétt yfir 40°.
Hvaða system hita eru þið að fá?
Miðað við að kassinn er lokaður og með 3 hörðumdiskum, skjákorti, hljóðkorti, dvd drifi og 480W spennugjafa, finnst mér ekki skrýtið að hann sé um 20°heitari en umhverfishiti.
Þetta er líka spurning um hávaða, en ég er búinn að gera mikið til að ná niður hávaða, meðal annars fækka viftum og bætta við hljóð einangrun
(sem hækkaði system hita um aðeins 1°).

Sent: Mið 07. Des 2005 14:48
af Vilezhout
ég er með coolermaster centurion

er bara með eina 120mm viftu sem sogar út að aftan og svo eina 80mm viftu sem blæs á hd stæðin sem eru neðst í kassanum auk þess að það er hálfgerður rani sem er rétt fyrir ofan örgjörvaviftunua sem hú blæs útum um

hitinn í kassanum er 3-5 gráðum fyrir ofan herbergishita

eina sem ég er ósáttur við er hve ótrúlega mikið ryk safnast á framhliðina þarsem hún er nánast öll opin og loft fer þar inn

Sent: Mið 07. Des 2005 15:05
af Stutturdreki
Hmm.. ég er með 2x80mm low-speed SilenX viftur og 1xPSU viftu að aftan og 1x80mm low-speed SilenX viftu að framan sem blæsa á harðadiskinn. Lofthitinn í kassanum er 27,5°C idle (fer niður i 25°C ef það er mikið frost úti og ég með opinn gluggann) Er með 9800 skjákort og sömu kæliplötur og þú (Zalman HD-80-D) nema hvað ég mixaði 92mm SilenX viftu á það. Hef náð skjákortu mest upp í 55°C og það var í gluggalausu herbergi.

Er BIOS-inn nokkuð stilltur á að slökkva á tölvunni við td. ákveðið CPU hitastig?