Síða 1 af 1
Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fim 31. Mar 2022 22:56
af appel
Er að velta fyrir mér stærð innra minnis hjá öllum hérna
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fim 31. Mar 2022 23:55
af gnarr
Það fer mjög mikið eftir tölvunni..
Aðal heima vélin mín er 64GB, enda notuð í ljósmynda og video vinnslu, hljóðvinnslu, forritun, tölvuleiki, virtual vélar og fleira.
Er svo með aðra dekstop vél sem er aðalega notuð í tölvuleiki, með 16GB.
Vinnu fartölvan með 16GB.
Heimilis serverinn með 32GB.
pfSense beinir með 8GB.
Svo er einhver haugur af raspberry'um, XBOX, PS, AppleTv, etc... með allskonar stærðir
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 00:13
af appel
gnarr skrifaði:Það fer mjög mikið eftir tölvunni..
Aðal heima vélin mín er 64GB, enda notuð í ljósmynda og video vinnslu, hljóðvinnslu, forritun, tölvuleiki, virtual vélar og fleira.
Er svo með aðra dekstop vél sem er aðalega notuð í tölvuleiki, með 16GB.
Vinnu fartölvan með 16GB.
Heimilis serverinn með 32GB.
pfSense beinir með 8GB.
Svo er einhver haugur af raspberry'um, XBOX, PS, AppleTv, etc... með allskonar stærðir
Ætli ég meini ekki svona "aðaltölvu heimilis-nördsins"
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 06:29
af Climbatiz
keypti nýlega hérna af Vaktinni 32GB af DDR3 RAM-i, kostaði bara 10þús allt í allt, var búinn að vera með 8GB í nánast 10ár áður en það, verst ég get samt ekki fært það yfir í nýja vél ef ég kaupi það einhverntímann :Þ
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 08:26
af Dropi
Úps setti 16GB án þess að hugsa. Ég og konan erum með tvær fartölvur (16GB), tvær vinnufartölvur (16GB), tvær borðtölvur (16GB og 32GB) og einn Unraid server (32GB).
Hlakka til að uppfæra næst í 64GB DDR5 kit.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 08:35
af Hjaltiatla
Mín leikjafartölva er með 16 GB vinnsluminni og skrái það þarf af leiðandi því það er sú vél sem ég nota heima mest(er samt með Intel nuc með 32GB vinnsluminni sem Server sem ég nota í alls konar aukavinnslu).
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 09:19
af gunni91
vanalega verið að keyra á 16GB, en er í 32GB DDR5 núna.
Fyrir hardcore tölvuleikjamenn, þá hef ég staðfestar heimildir (frá mér sjálfum ítrekað!) að það eru acutal bottlenecks í sumum tölvuleikjum að vera aðeins með 16 GB (t.d. dual channel DDR4) ef menn eru með heavy duty vélbúnað í setupinu á móti.
Þá er single channel setup eitt mesta eitur sem ég hef komið í snertingu við og skil ég ekki sumar tölvubúðir að markaðsetja og selja tilbúnar nýjar leikjavélar frá sér aðeins með einu memory stick.
16GB quality RAM ennþá daginn í dag er eflaust plenty enough fyrir amk 70% af nýjum tölvuleikjum í dag.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 11:43
af Slayer
Ég er með 64GB semsagt 2xVENGEANCE LPX 32GB (2 x 16GB) DDR4 DRAM 3200MHz C16
Setti þessa tölvu samann snemma 2016 og þá 2x8GB og fljótlega var það skipt út og maxaði það upp í 64GB
Ég nota tölvuna sem tónlistarstúdíó einungis og síðasta ár þá hef ég verið stop með 2 project vegna skorts á minni
það er til workaround en ég er algerlega háður ákveðnu vinnuflæði og ég set verkin í bið í stað þess að breyta vinnuflæði mínu.
ef ég á að vera raunsær þá þarf ég rúm 200GB í innra minni til þess að vera öruggur um að getað klárað stærri verk.
Ég er að binda vonir með Intel MeteorLake að það verði opnað fyrir meira ram capacity kanski?
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 11:47
af GuðjónR
Hvað mig varðar þá vil ég helst 32GB finnst það vera sweetspot, 16GB duga samt í flest en 8GB er orðið frekar lítið nema fyrir fartölvur í léttri vinnslu.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 16:43
af HalistaX
Ég hef notast við 16GB í einhver ár núna.
Er svona að gæla við að tvöfalda það, hef aldrei verið með meira en 16GB og það er ekki eins og 16GB í viðbót sé nú það dýr uppfærsla. Held að það sé það eina sem ég nenni að vera eitthvað að spá í að uppfæra í vélinni minni.
Það er alltaf einhver smávegis skjákortaperri í manni, eftir öll þessi ár, en ég er samt eiginlega alveg hættur að þurfa að hafa eitthvað beefy skjákort.
Edit: Heyrðu, var í TL, keypt 2x8GB í viðbót, ætla að skella þeim í tækið!
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 17:05
af Hausinn
Hissa hversu margir eru komnir með 32GB. Hélt að 16GB væri de facto fyrir langflesta ennþá.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 18:11
af Frussi
48gb hérna 2x16 + 2x8, sama tegund, sama timing, sami hraði og benchmarks segja góða hluti. Mynd+hljóðvinnslu svo meira ram=meira betra. Næsta uppfærsla er samt í annað 2x16 kit
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Fös 01. Apr 2022 18:12
af HalistaX
Hausinn skrifaði:Hissa hversu margir eru komnir með 32GB. Hélt að 16GB væri de facto fyrir langflesta ennþá.
Held að meðal maðurinn sé enþá með 16GB, en við erum náttúrulega inná íhlutarunk síðu þar sem meðal maðurinn er í minnihluta...
Ef þú myndir spyrja að því sama á Facebook eða eitthvað álíka, þá ímynda ég mér að flestir myndu svara með 16GB.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Lau 02. Apr 2022 10:39
af hagur
Hausinn skrifaði:Hissa hversu margir eru komnir með 32GB. Hélt að 16GB væri de facto fyrir langflesta ennþá.
Í alvöru? Ég er búinn að vera með 32GB í heimatölvunni síðan c.a 2013. Uppfærði hana svo aftur í lok síðasta sumars en hélt mig við 32GB.
Er búinn að vera með 32GB líka í vinnulappanum og ansi mörg ár. Ég hélt að 32GB væru fyrir löngu orðin standard.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Lau 02. Apr 2022 11:00
af appel
hagur skrifaði:Hausinn skrifaði:Hissa hversu margir eru komnir með 32GB. Hélt að 16GB væri de facto fyrir langflesta ennþá.
Í alvöru? Ég er búinn að vera með 32GB í heimatölvunni síðan c.a 2013. Uppfærði hana svo aftur í lok síðasta sumars en hélt mig við 32GB.
Er búinn að vera með 32GB líka í vinnulappanum og ansi mörg ár. Ég hélt að 32GB væru fyrir löngu orðin standard.
Var með 16 gb síðan 2008 líklega, og uppfærði í 32 gb bara fyrir ári síðan. Get ekki sagt að þetta hafi verið einhver stórkostleg frelsun eða þvíumlíkt. Ég er nú svo gamall að ég man þegar ég uppfærði PC tölvuna mína úr 8 MB minni í 16 MB. Það var stórkostlegur ávinningur af því sem maður tók mjög vel eftir
gat verið með mörg forrit í keyrslu á sama tíma á 486 vélinni minni.
Það er kannski óþarfi að vera með margfalt meira minni en þörf er á. Held að 32gb sé nóg fyrir held ég langflesta. 16 er orðið svona lágmark.
Líklega er 64gb bara peningasóun.
Re: Innra minni tölvu þinnar?
Sent: Lau 02. Apr 2022 12:36
af hagur
appel skrifaði:hagur skrifaði:Hausinn skrifaði:Hissa hversu margir eru komnir með 32GB. Hélt að 16GB væri de facto fyrir langflesta ennþá.
Í alvöru? Ég er búinn að vera með 32GB í heimatölvunni síðan c.a 2013. Uppfærði hana svo aftur í lok síðasta sumars en hélt mig við 32GB.
Er búinn að vera með 32GB líka í vinnulappanum og ansi mörg ár. Ég hélt að 32GB væru fyrir löngu orðin standard.
Var með 16 gb síðan 2008 líklega, og uppfærði í 32 gb bara fyrir ári síðan. Get ekki sagt að þetta hafi verið einhver stórkostleg frelsun eða þvíumlíkt. Ég er nú svo gamall að ég man þegar ég uppfærði PC tölvuna mína úr 8 MB minni í 16 MB. Það var stórkostlegur ávinningur af því sem maður tók mjög vel eftir
gat verið með mörg forrit í keyrslu á sama tíma á 486 vélinni minni.
Það er kannski óþarfi að vera með margfalt meira minni en þörf er á. Held að 32gb sé nóg fyrir held ég langflesta. 16 er orðið svona lágmark.
Líklega er 64gb bara peningasóun.
Haha segðu, fyrsta PC tölvan mín (átti Atari áður) var með heil 7mb í vinnsluminni þar sem að 1mb af þeim 8 sem voru í vélinni fór í skjákortið. Á þessu keyrði maður Windows 95 eins og vindurinn og alla leiki/forrit sem hugurinn girntist á þessum tíma.