Síða 1 af 1
Staðan á skjákortum
Sent: Mið 09. Mar 2022 17:26
af fhrafnsson
Hef séð nokkra söluþræði undanfarið þar sem verið er að selja flott skjákort og varð því forvitinn hvað verð á nýjum kortum, sem er hægt að kaupa strax er. Ég vildi síður vera að skemma söluþræði með athugasemdum um ódýrari ný kort svo ég gerði bara smá samantekt hér:
3080 Ti: 251.000
https://www.amazon.de/-/en/gp/product/B095X7V2HH3080: 195.000
https://www.amazon.de/-/en/gp/product/B097QDFX753070 TI Vision: 156.000kr
https://www.amazon.co.uk/gp/product/B095X7XXQKRTX 3060 Ti: 108.000
https://www.amazon.de/-/en/gp/product/B097QC2M42Auðvitað gæti verið að einhver auka gjöld bætist við en ég bætti þessum kortum í cart, fór í checkout og tók verðið þaðan og notaði myntbreytuna á heimasíðu Landsbankans. Ég reyndi aðeins að leita á öðrum síðum en þar sem um einfaldan samanburð var að ræða endaði ég á að láta amazon duga.
Gæti verið að tími ofurverða á skjákortum sé að líða?
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Mið 09. Mar 2022 18:41
af jonsig
Það væru örugglega ágætis verð í gangi í sumar ef Rússar hefðu ekki tekið uppá vissu rugli.
Verð á Palladium og Xenon gasi hefur rokið upp sem eru ómisandi efni við alla kubbaframleiðslu.. Kannski versnandi efnahagshorfur í heiminum hafi kannski áhrif á eftirspurnina og lækki þannig verð.
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Mið 09. Mar 2022 19:50
af Lexxinn
Er það ekki bara amazon.com sem gerir ráð fyrir tollum og aðflutningsgjöldum?
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Mið 09. Mar 2022 20:06
af gunni91
Lexxinn skrifaði:Er það ekki bara amazon.com sem gerir ráð fyrir tollum og aðflutningsgjöldum?
Rétt, ég er amk ekki að fá upp VAT/customs price upp líkt og vaninn er á Amazon included í verðinu.
Það er svosem hægt að spara einhverja þúsund kalla en á móti eru kortin ábyrgðarlaus hérlendis.
Dugir að senda kortið einu sinni út í ábyrgðarviðgerð og þá ertu strax byrjaður að tapa á þessu.
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Fim 10. Mar 2022 11:01
af njordur9000
Lexxinn skrifaði:Er það ekki bara amazon.com sem gerir ráð fyrir tollum og aðflutningsgjöldum?
Bara Amazon.com gefur það upp þegar þú skoðar verðmiða vörunnar en Amazon.de og Amazon.co.uk gefa það upp þegar þú setur í körfu og ætlar að borga.
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Fim 10. Mar 2022 12:40
af drengurola
Mindfactory eru með ágæt verð núna, miðað við (t.d. á 6800). Hefur einhver pantað þaðan? Ég reikna með að þeir taki vsk af við útflutning (19%) sem þýðir að verðið sem maður myndi fá hjá þeim + sendingarkostnaður er nánast verðið sem maður borgar þegar þetta er hingað komið. (19% af, 24% á)
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Fim 10. Mar 2022 18:35
af Gurka29
drengurola skrifaði:Mindfactory eru með ágæt verð núna, miðað við (t.d. á 6800). Hefur einhver pantað þaðan? Ég reikna með að þeir taki vsk af við útflutning (19%) sem þýðir að verðið sem maður myndi fá hjá þeim + sendingarkostnaður er nánast verðið sem maður borgar þegar þetta er hingað komið. (19% af, 24% á)
Senda þeir til Íslands ? Reyndi eitthvertímann að kaupa frá þeim en það virkaði ekki.
Re: Staðan á skjákortum
Sent: Fim 10. Mar 2022 21:01
af Sinnumtveir
njordur9000 skrifaði:Lexxinn skrifaði:Er það ekki bara amazon.com sem gerir ráð fyrir tollum og aðflutningsgjöldum?
Bara Amazon.com gefur það upp þegar þú skoðar verðmiða vörunnar en Amazon.de og Amazon.co.uk gefa það upp þegar þú setur í körfu og ætlar að borga.
bhphotovideo.com er með lægri sendingarkostnað en Amazon.com og býður eins og amazon upp á að aðflutningsgjöld/umstang sé gert upp við kaup á netinu. Það er frábært að losna við endalaust þúsundakallaplokk Póstins sem er uþb óumflýjanlegt án þessarar þjónustu. Amazon.co.uk og Amazon.de bjóða upp á sambærilegt. Passið ykkur samt á því að varan verður að vera afgreidd ("fullfilled") af amazon til að þetta eigi við, annars er maður tekinn í bakaríið. Síðast þegar ég pantaði frá Þýskalandi keypti ég frekar sérstæða peru sem kostaði þúsundkall. Mér yfirsást að hún féll ekki undir áðurnefnda skilmála og pera sem ég hafði ekki bráða þörf fyrir kostaði mig á endanum um 7 þúsund krónur.