Síða 1 af 1

finna lappa fyrir pápa

Sent: Fim 03. Feb 2022 23:26
af J1nX
jæja lappinn hans pabba er alveg við það að gefa upp öndina, enda orðin hundgamall og honum langar að fá sér nýjan.

mæliði með einhverri? hann notar þetta aðallega í að setja inn snjósleðavídjó á youtube (með einhverju minimal editi) og svo bara til að glápa á netflix og svoleiðis þegar hann er að ferðast, ég var að pæla í https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Fa ... 390.action eða https://kisildalur.is/category/28/products/2323, hann vill helst ekkert fara í mikið dýrara en 10-15kall til eða frá ætti ekkert að vera mikið mál.

*edit* er eitthvað merki sem maður ætti að halda sig frá, eða örgjörvar eða eitthvað svoleiðis?

Re: finna lappa fyrir pápa

Sent: Fös 04. Feb 2022 03:17
af Sinnumtveir
Ef valið er um þessar tvær tölvur er það hlægilega auðvelt. HP tölvan er með tvöfalt afkastameiri örgjörva og það er hægt að auka við minnið í henni.

Það á ekki nokkur heilvita maður að kaupa nýja tölvu í dag sem hefur ekki nema 8GB minni, óstækkanlegt.

Re: finna lappa fyrir pápa

Sent: Fös 04. Feb 2022 07:48
af ColdIce

Re: finna lappa fyrir pápa

Sent: Lau 05. Feb 2022 13:47
af Cozmic
https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Fa ... 933.action

Á eina svona ( reyndar með amd örgjörva ) og er rosa sáttur.

Batteríið endast lengi, slim og þægileg til að ferðast með, ál.

Mundi bara skoða í búðum hvað er í boði og hvað hann vill, glossy eða mattan skjá t.d fer eftir persónum.

Re: finna lappa fyrir pápa

Sent: Sun 06. Feb 2022 02:03
af johnnyblaze

Re: finna lappa fyrir pápa

Sent: Sun 06. Feb 2022 09:49
af Viktor
Ef hann vill miklu öflugri vél sem þarf bara að hlaða á tveggja daga fresti þá kemur bara eitt til greina: https://www.coolshop.is/vara/apple-macb ... ey/237M5T/

Re: finna lappa fyrir pápa

Sent: Sun 06. Feb 2022 15:10
af Trihard
Mæli líka með iPad spjaldtölvu + folio lyklaborði. Spjaldtölvan sjálf endist í langan tíma og er með öflugum örgjörva svipað og Macbook Air og þessi örri þýtur léttilega framhjá öllum Windows fartölvum á þessu verði. iPadinn og lyklaborðið vega samtals í kringum 1.1kg versus 1.9kg HP fartölvan sem er nokkur munur.
https://www.coolshop.is/raftaeki/?q=ipad%20air