Síða 1 af 1

LCD skjáir

Sent: Fim 17. Nóv 2005 00:28
af Nemesis
Ég er að leita mér að lcd skjá og er búinn að skoða úrvalið dálítið. Mér líst best á þessa skjái:

Hyundai B70A Multiscan LCD 17"
Computer.is
Verð: 25.555 kr.

Acer AL1751AS 17"
Computer.is
Verð: 27.063 kr.

Samsung 913N 19"
Tölvuvirkni
Verð: 33.130 kr.

Hyundai LCD ImageQuest L90D+ 19"
Computer.is
Verð: 38.600 kr.

Acer viewable 1951AS 19"
Att.is
Verð: 38.950 kr.

Ég hef hins vegar ekki mikið vit á LCD skjáum þannig að mig vantar ráð.
Ég las að með því að kaupa skjá með lágan svartíma eins og t.d. 8ms þá væri ég að missa litagæði og sæi verr frá hlið en á skjáum með hærra ms

Hverjir af þessum skjáum eru bestir?
Eru fleiri gerðir sem ég ætti að skoða?
Eitthvað sem ég þarf að hafa sérstaklega í huga?

Endilega segið ykkar skoðun.

Sent: Fim 17. Nóv 2005 10:32
af Stutturdreki
Horfir þú mikið á skjái frá hlið?

Og svo IMHO þá eru 19" skjáir ekki þess virði að borga 10þ meira fyrir þá, ráða bara við sömu upplausn og 17".

Varðandi skerpu og myndgæði þá þekki ég ekkert af þessum skjáum, en finnur örugglega fullt af reviews á google.

Sent: Fim 17. Nóv 2005 12:27
af tms
120xX er eflaust nóg í leikina en það fer meiri tími hjá mér í ýmsa vinnu og óvinnu samtímis, er með 19" í 1600x1200 núna og finnst það í raun fínt en get ekki hugsað mér að minnka upplausnina.

Finnst fólki 1280xX nóg á 19" skjáum?

Sent: Fim 17. Nóv 2005 12:29
af DoRi-
ekki finnst mér það, er að pæla í einum CRT til að komast uppí 1600*1200 sem er alveg nóg fyrir mig

Sent: Fim 17. Nóv 2005 15:19
af kristjanm
Ég er með 19" Samsung 913N og er mjög sáttur við hann.

Er að keyra hann á 1280x1024 og finnst það bara mjög þægilegt, var áður með 19" CRT á 1600x1200.

Ekki sérstaklega þægilegt að horfa á hann frá hlið samt.

Sent: Fim 17. Nóv 2005 16:21
af hilmar_jonsson
Skjáir eru ekki að missa litgæði á lágum svartíma nema þeir séu keyrðir á overdrive, og þá samt ekki alltaf. Viewsonic er með nokkra þannig skjái og sá nýjasti sem þeir sendu frá sér er með 8ms svartíma og skv. Tomshardware tapar hann engum litgæðum á þessu. Þar að auki er hann með næstum 180° áhorfspunkt. Það hefur auk þess ekki verið tengt saman að áhorfspunktur og svartmi séu með fylgni. Ég mæli bara með því að þú farir og skoðir skjáina í búðum.

Ég kom við í tölvulistanum um daginn og þar líkaði mér best við ACER 17" skjá, án CrystalBrite tækninnar. Mér líkar bara ekki CrystalBrite.

Sent: Fim 17. Nóv 2005 22:25
af TheKeko
Ég er með Samsung 913N 19" og hann er helviti fín fyrir mína notkun.

Sent: Fim 17. Nóv 2005 23:20
af viddi
ég er að spá í að fá mér þennan, hvernig er hann ?
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1148

Sent: Fim 17. Nóv 2005 23:29
af Veit Ekki
viddi skrifaði:ég er að spá í að fá mér þennan, hvernig er hann ?
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=1148


Ekki góður.
Mr.Jinx átti svona skjá, var backlight vesen og þeir hjá Start sögðu að það væri svona vesen í öllum skjáunum hjá þeim meira að segja sýningarskjárinn þeirra var með þennan galla og þetta væri bara svona í þessari tegund.

Sjá þráð: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=8858

Sent: Fim 17. Nóv 2005 23:57
af SolidFeather
Hef heyrt gott um þennan:

http://www.computer.is/vorur/5225

Sent: Fös 18. Nóv 2005 01:11
af MuGGz
SolidFeather skrifaði:Hef heyrt gott um þennan:

http://www.computer.is/vorur/5225


bróðir minn er með svona skjá, var að spila doom3 heima hjá honum á dagin á þessu, bara tussu fínt :8)

hann er líka mjög sáttur