Síða 1 af 1
Vifta á skjákorti
Sent: Lau 21. Jún 2003 17:23
af Gothiatek
Það er ekki ýkja langt síðan ég keypti mér skjákort og hefur allt virkað fínt þangað til nýlega....þá fór viftan á skjákortinu að vera heldur hávær þegar ég startaði tölvunni. Síðan hvarf nú hljóðið en eftir að ég startaði tölvunni síðast hefur viftan verið með þessi leiðindarhljóð.
Ég er búinn að skoða kortið og það er ekkert sem "flækist" í viftunni eða neitt slíkt. Er ekki kortið bara eitthvað gallað?? Getur um eitthvað annað verið að ræða??
Þetta er Asus Ti4200 kort.
Sent: Lau 21. Jún 2003 17:25
af kemiztry
Getur verið að einhver snúran hafi flækst í? Ég lenti í því einu sinni á örgjörvaviftu og eftir það þá kom alltaf þvílíkt pirrandi random hljóð í hana
Sent: Lau 21. Jún 2003 17:30
af Gothiatek
Neibb, ekkert svoleiðis....þetta byrjar ægilega hávert þegar ég starta tölvunni en minnkar svo aðeins!!
Sent: Lau 21. Jún 2003 18:17
af MezzUp
lenti í svipuðu vandamáli með kortið mitt.
heyrðist sona upp og niður í viftunni og stundum hætti það........
ef að það eru minna 2 ár síðan þú keyptir kortið þá skaltu bara fara með það í búðina og láta þá gera við þetta
Sent: Lau 21. Jún 2003 20:36
af OverClocker
Þú gætir líka notað tækifærið og fengið þér betri kælingu á kortið.. sbr
http://start.is/default.php?cPath=46
Sent: Lau 21. Jún 2003 23:57
af Damien
Eg hef lent í þessu, þá var rykið inni í tölvunni búið að límast í smurninguna á öxlinum á viftunni og hann var næstum þurr, þá kom þetta leiðinlega hljóð
Þar sem það er erfitt að smyrja viftur þá er viturlegast að fá sér nýja or sum...
Sent: Sun 22. Jún 2003 13:35
af Gothiatek
Það er bara tæpur mánuður síðan ég keypti kortið...ætla bara að fara með það þangað sem ég keypti það og láta þá fixa þetta!!
Sent: Mán 23. Jún 2003 15:16
af Jakob
Allar þessar "mini" viftur sem eru notaðar á skjákort, móðurborð (chipset cooling) ofl. eru helvítis sorp.
Ég var að lennti í þessu núna um helgina, viftan sem kælir SIS chipsettið á Giga-Byte SINXP1394 móðurborðinu mínu bilaði, frekar pirrandi hljóð sem kom.
Tók hana bara úr sambandi, og vélin keyrir fínt !!!
Sent: Mán 23. Jún 2003 15:46
af Gothiatek
Maður vill nú samt að þetta endist aðeins lengur, ekki alveg tilbúinn í að kaupa mér nýja viftu á kortið strax...margt annað kúl stöff sem hefur forgang
Ég er nú heldur ekki spenntur að taka viftuna úr sambandi, er þá ekki bara spursmál hvenær ég finn dýrindis brunastækju!!
PS: Hvenær losna ég við þennan Nýgræðlingsstimpil???
Sent: Mán 23. Jún 2003 17:18
af MezzUp
þegar okkur finnst þú vera orðinn soldill græningi.....
Sent: Mán 23. Jún 2003 17:45
af kemiztry
Fáðu þér bara Zalman VGA-cooler... ekkert viftuvesen lengur
Sent: Mán 23. Jún 2003 17:51
af Castrate
já ég held það sé lang sniðugast fyrir þig að kaupa þer zalman vga cooler eins og kemiztry segir
Sent: Mán 23. Jún 2003 18:32
af Gothiatek
Það endar náttúrulega með því að ég læt undan þrýstingi og kaupi mér cooler..
þetta hljómar mjög vel
ætla samt að fara með kortið á morgun eða hinn og láta þá kíkja aðeins á þetta....
Sent: Mán 01. Sep 2003 08:50
af Gothiatek
Hjálpi mér allir heilagir Hollendingar, nú er viftan farin að láta heyra fullmikið í sér aftur. Ég fór með kortið og fékk nýtt þegar þetta kom upp síðast....en sé fram á að það sé bara skammtímalausn að gera það aftur. Því keypti ég mér aðra viftu....vona að hún verði almennileg.
Á einhver annar hérna Asus Ti4200 kort?? Hefur viftan hagað sér sæmilega á því??
Sent: Mán 01. Sep 2003 10:42
af Xts
Já, Asus Ti 4200 128 mb hér.
Hefur ekki verið að bögga mig neitt, ég hef allavega ekki tekið eftir því...
Ég ætla að skoða þetta samt betur.