Síða 1 af 1
Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fim 02. Des 2021 18:41
af Onyth
Daginn kæru vaktarar.
Mig langar að uppfæra hjá mér CPU. Er með i5 9600kf eins og er og því alveg kominn tími til. Er með flott GPU og gott 32gb DDR4 minni svo CPU er bottleneck eins og er. Langar að fá smá ráðleggingar um hvað fólk myndi kaupa með tvennt í huga: best bang for buck og future-proofing. Hef alltaf verið team blue en svo sem alveg opinn fyrir AMD.
Ætti ég að kaupa 1700 socket mobo og Alder Lake örgjörva?
Eða Rocket Lake? En það er þá ekki nærri því jafn future proof?
Eða fara í AMD?
Allar ráðleggingar vel þegnar. Budget er ekki heilagt en þó ekki mikið yfir 100k.
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fim 02. Des 2021 23:24
af Klemmi
Ekkert vit í að fara í Rocket Lake í dag, þar sem það virðist ekki vera mikið mál að komast í Alder Lake örgjörva.
Veit ekki með AMD... fyrir Alder Lake, þá hefði mátt skoða það, en Alder Lake virðist bara vera að koma svo vel út, með fyrirvara um orkunotkun og þar með hitamyndun, fer eftir því í hvernig vinnslu þú ert að fara í.
Ég keypti i5-12600K nýlega og ætla svo bara að bíða spakur eftir B660 móðurborðunum.
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 03. Des 2021 04:31
af Sinnumtveir
Ertu ekki heldur snemma í því, að fara að leggja i5-9600kf akkúrat núna?
Auðvitað skiptir máli hvað þú ert að gera og hverskonar skjákort þú ert með en ég giska á að uppfærslan sem þú ert að spá verði heldur rýr, td í leikjaspilun.
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 03. Des 2021 12:01
af CendenZ
Myndi allan daginn bíða smá.. fara svo í i5-12600 vél, ddr5 móðurborð og minni. Það gæti verið í kringum 100 kallinn.
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 03. Des 2021 12:43
af Onyth
Takk fyrir góð svör. Ég held ég bíði þá aðeins
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 15. Nóv 2024 07:37
af Lorenzocarlum
Ertu enþa með i5 9600kf?
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 15. Nóv 2024 10:20
af worghal
Oddy er reyndar með rosalegann pakka til sölu og ég get mælt með Oddy
viewtopic.php?f=11&t=98276
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 15. Nóv 2024 17:25
af gunni91
Þetta er þráður síðan 2021
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 15. Nóv 2024 18:49
af GuðjónR
Bottarnir eru farnir að nota íslenskar ip tölur ... þessi skráir sig í gegnum farsímanet NOVA.
Re: Uppfæra CPU og Mobo. 100k budget sirka.
Sent: Fös 15. Nóv 2024 18:59
af GuðjónR
Annar spammari með sömu ip tölu ...