Síða 1 af 1
hvaða LCD skjá á að velja?
Sent: Mán 16. Jún 2003 22:25
af odinnn
hvað finnst ykkur um þennan skjá
http://www.samsungusa.com/cgi-bin/nabc/product/b2c_product_detail.jsp?eUser=&prod_id=191T-Silver en hann kostar 636$ eða um 60k eða vitiði um einhvern annan LCD skjá á svipuðu verði?
Sent: Fim 19. Jún 2003 21:51
af Jakob
Fáðu þér NEC skjá frá
Ormsson.is...
Ég mæli með
þessum hérna.
Sjálfur er ég með NEC 1701, og er mjög ánægður með hann.
Virkar mjög vel í tölvuleikum. Þar er 16ms refresh tími mjög mikilvægur!
Ég held að þetta séu einu skjáirnir sem eru með undir 20ms refresh tíma.
Ef þú vilt lítið sem ekkert "ghosting" (í leikjum, bíomyndum osfrv..) taktu þá þennan skjá.
Sent: Fim 19. Jún 2003 22:10
af odinnn
hvað kostaði 17" skjárinn hjá ormson?
Sent: Fim 19. Jún 2003 22:45
af Jakob
1701 kostaði ca. 80.000 kall.... 1760 (sem er með dvi tengi ofl.) kostar ca. 100.000.
Sent: Fös 20. Jún 2003 12:14
af odinnn
er eitthvað nauðsinlegt að vera með dvi tengi?
Sent: Fös 20. Jún 2003 14:17
af Jakob
Nei, mér finnst það óþarfi.
Converteranir eru svo góðir í dag að það er nánast enginn munur á þessum tengjum!
Sent: Fös 20. Jún 2003 19:54
af odinnn
en er einhver virkilegur munur á skjá með 16ms og 25ms? því maður getur fengið Hansol 19" á 80k í tölvulistanum sem er jafn mikið og fyrir Nec 17" skjáinn.
samt væri það viturlegasta í stöðunni að kaupa sér bara venjulegan skjá, þá það sé ekki jafn flott.
Sent: Fös 20. Jún 2003 20:33
af kiddi
Ég verð að rétta upp hönd hérna og vara fólk við því að kaupa Hansol, þetta er það alversta drasl sem ég hef á ævinni snert.
Það marg-marg-marg-MARG borgar sig að spara EKKI við skjákaup. Þetta eru dýr kvikindi og ef þau bila þá er það dýrt, tímafrekt og ótrúlega pirrandi. Skjár er fjárfesting sem fellur mjög hægt í verði. Ef þú ætlar að kaupa CRT, keyptu það besta, ef þú ætlar að kaupa LCD, keyptu það besta!
Sent: Fös 20. Jún 2003 21:02
af MezzUp
huh, hvað er að Hansol?
Ég er búinn að eiga Hansol 920D í nokkra mánuði og allt er að virka fínt
Sent: Fös 20. Jún 2003 21:07
af kiddi
Ég er búinn að sjá 3x hansol "15 LCD fara í hönk á fyrstu vikum lífs síns og einn "19 CRT
Sent: Fös 20. Jún 2003 21:18
af GuðjónR
Það er með þetta eins og allt annað...betra að kaupa "merki"
ég myndi aldrei kaupa mér hankokk eða eitthvað álíka noname...
Sent: Lau 21. Jún 2003 00:06
af odinnn
hvað á maður þá að kaupa? ég veit ekki neitt um þetta.
Sent: Lau 21. Jún 2003 16:34
af kemiztry
Dell, Nec, Viewsonic til dæmis