Síða 1 af 1
Hiti á hörðum diskum
Sent: Fös 13. Jún 2003 13:36
af Skoop
Er eðlilegt að ég hálf brenni mig þegar ég snerti hörðu diskana mína
hvað er td eðlilegur hiti á hd ?
er með wd 120 gb
Sent: Fös 13. Jún 2003 16:46
af elv
Það er eðlilegt að þeir hitni svolítið, En að þú brennir þig við að koma við þá er allt of mikið.Það er talað 55c sé max.
Held að þú þurfir að fá þér meiri kælingu í kassan.
Sent: Fös 13. Jún 2003 17:13
af kiddi
Það er voða erfitt að kæla harðadiska, enda eru þetta nánast gegnheilir járnkubbar! Ég er með hitamæli á einum af mínum HDD og undir miklu álagi hef ég séð hann fara upp í °70, og hann hlaut engan skaða af. Í vinnunni er ég með SCSI raid diska í litlum stálkössum og ég vil ekki einusinni vita hversu heitir þeir verða.
Ég prófaði einusinni svona "HDD kælingu" sem er hægt að kaupa á mörgum stöðum fyrir klink, 900-1900kr og hún virkar ekki baun, lækkar hitann um °2 í mesta lagi.
Ef þið viljið kaldari diska þá er annaðhvort að nota vatnskælingu á þetta eða einfaldlega kaupa 5400RPM diska
Sent: Fös 13. Jún 2003 19:33
af Spirou
Ég mæli með því að þú hafi þá sem lengst frá hvor öðrum. 1" er eiginlega lágmark nema þú sért með viftu sem blæs á milli þeirra.
Sent: Fös 13. Jún 2003 20:17
af elv
Ódýr og ágætt leið til að kæla diskanna er að taka tvær ál plötur sem eru aðeins stærri en diskurinn og setja hann á milli ál platana. Þá ertu búin að auka kæliflötin.Lítur kannski best út en virkar...
http://www.silentpcreview.com/modules.p ... =11&page=1
Sent: Fös 13. Jún 2003 20:48
af gumol
Ég er ekki alveg að skilja tilhvers einangrunin er
Sent: Fös 13. Jún 2003 21:04
af elv
Til að minnka hávaða. TD hátíðnihljóðið í Western Digital
Sent: Fös 13. Jún 2003 21:06
af halanegri
elv skrifaði:Til að minnka hávaða. TD hátíðnihljóðið í Western Digital
Nei, þetta hátíðnihljóð er bara galli sem kmr í sumum diskum, ég efast að svona dæmi myndi ná að þagga niður í því.
Sent: Fös 13. Jún 2003 21:06
af gumol
En hækkar það ekki hitann of mikið ?
Sent: Fös 13. Jún 2003 21:12
af elv
Nei, hiti leitar upp en ekki til hliðar
Sent: Fös 13. Jún 2003 21:51
af Voffinn
ég er með 2x80WD, þeir sem eiga að vera hva verstir í sambandi við hávaða, en um daginn, fór ég, opnaði kassan og lagði eyrað alveg uppvið diskinn, þá heyrði ég þetta hljóð ykkar... en það er ekki nærri því eins slæmt og þið lýsið því
Sent: Fös 13. Jún 2003 21:57
af elv
Smá eðlisfræði....
Til að minnka lág hljóð t.b bassa og svoleiðis þá notar maður mjúka hluti svampa, steinull t.d
En þegar um hátíðnihlóð er um að ræða notar maður harða hluti , málma og svoleiðis.
Sent: Fös 13. Jún 2003 23:46
af MezzUp
ég er algjörlega á móti því að kæfa harða diska til þess að lækka í þeim, ég vill frekar setja dempara á þá.
Nema að maður sé með vantskælingu á harðadisknum, þá er alltílagi að kæfa hann með ull sem að dempar bæði titring og venjulegt sánd....
Sent: Mið 18. Jún 2003 08:28
af Gothiatek
Hvernig eru þessir demparar að koma út, eru þeir eitthvað að lækka hljóðið í hörðu diskunum af viti??
Sent: Mið 18. Jún 2003 12:35
af MezzUp
ekkert rosalega nei.....
ágætir ef að HD er háværasti hluturinn í tölvunni eða ef að maður er með silent tölvu og t.d. hljóðlátu Seagate Barracuda diskana, þá hugsa ég að sona borgi sig.....