Síða 1 af 3

Uppfærsla

Sent: Fim 12. Jún 2003 21:09
af Bitchunter
Getiði gefið mér hugmyndir um uppfærslu?

á að vera helst undir 90 þús.

og að vera mjög mjög góð tölva fyrir tölvuleiki.
lika mjög hröð og svoleiðis
----------
Gamla tölvan mín(ég er þreyttur á henni, get varla spilað neitt lengur):
1,1ghz
256mb minni
32mb geforce2
19gb diskur

ég vil helst mikla tilbreytingu

Sent: Fim 12. Jún 2003 23:07
af gumol
Þetta finnst mér líta vel út.


Örri: Pentium 4 2.4GHz (478/800)R 23.666
Móðurborð: Gigabyte GA-SINXP 1394 21.490
Skjákort: Radeon9500 128MB 18.900 eða GF-FX5600 256MB 23.655 [ég veit lítið um þessi kort]
Vinsluminni: DDR 512MB (400) 7.790
Diskur: 80GB (7200/8MB/ATA100) 9.902

Samtals:
Með GeForce: 86.503,00 kr. + Kassi (400W) 7000 - 20.000
Með Radeon: 81.748,00 kr. + Kassi (400W) 7000 - 20.000

Ef þú notar þennan lista, geriru það á þína eigin ábyrgð :)

Sent: Fös 13. Jún 2003 01:52
af kemiztry
Taka frekar annað móðurborð fyrst þú velur 800FSB örgjörva. Gigabyte SINXP er ekki 800FSB móðurborð :?

Sent: Fös 13. Jún 2003 15:23
af gumol
Þetta var bara hugmynd, borgar sig ekki annars að velja 800 FSB örrann?

Sent: Fös 13. Jún 2003 15:42
af Bitchunter
einhverjar aðrar hugmyndir

Sent: Fös 13. Jún 2003 16:11
af kemiztry
Það er spurning hvað AMD nörrarnir mæla með :D

Sent: Fös 13. Jún 2003 17:22
af Atlinn
Ég myndi taka:
Örgjörvi:
AMD Barton 2500XP (333) ódýrast 12.900 kr
Móðurborð:
Gigabyte GA7VA1394 á 11.590 kr
// eða \\
K7N2 Delta - nForce2, 400FSB, ATA133 frá Tölvulistanum á 12.900 kr
Minni:
PC2700 2x512MB DUAL PACK Level2 CAS222 á 22.990 kr
Harður Diskur:
Þessi 200 gig diskur af því að hann er ATA 133 28.490 kr
Skjákort:
ATI Radeon 9600 pro betrumbætt útgáfa af 9500 pro 24900 kr

þannig er þetta í kringum 90k

Sent: Fös 13. Jún 2003 17:45
af kemiztry
Atlinn... og það er VIA chipset á þessu móbói.. baah, fyrr myndi ég brenna í helvíti en að mæla með þessu chipseti! :evil:

Sent: Fös 13. Jún 2003 19:42
af MezzUp
hva? hvað er að VIA? klassa chipset.......

ps. hreyfði þráðinn í "Vélbúnaður: Annað" af því að þú varst ekki að óska eftir að kaupa

Sent: Fös 13. Jún 2003 21:05
af halanegri
Það eru svo oft einhver vandamál með VIA chipset....

Annars er hægt að fá sér SiS, Intel eða nvidia(nForce) chipset

Sent: Lau 14. Jún 2003 03:16
af kemiztry
SiS er gott allavegana fyrir Intel :D

Sent: Lau 14. Jún 2003 22:14
af gumol
Veit einhver um gott móðurborð sem stiður 800 FBS

Sent: Sun 15. Jún 2003 12:51
af Gunnar Dagur
Gumol hvar færðu radeon 9500 128 á 18,900 bara séð 64 mb á þessu verði.
Atlinn radeon 9600 er ekki að gera eins góða hluti og 9500 pro fær allavega færri stig í 3d mark.

Sent: Sun 15. Jún 2003 13:02
af gumol
Samkvæmt Vaktinni er Radeon9500 128MB á 18.900 kr. í Expert

Sent: Sun 15. Jún 2003 13:43
af Atlinn
Gunnar Dagur skrifaði:Gumol hvar færðu radeon 9500 128 á 18,900 bara séð 64 mb á þessu verði.
Atlinn radeon 9600 er ekki að gera eins góða hluti og 9500 pro fær allavega færri stig í 3d mark.


Það er líka til 9600 pro sem er ekkert annað en overclockað 9500 pro með betri kælingu

Sent: Lau 28. Jún 2003 00:24
af Bitchunter
hey

get ég ekki bara búið til nýja tölvu ef ég er að skifta um floppy, cd drive, móðurborð, örgjörva, skjákort,harðan disk,og ram? :?

Sent: Lau 28. Jún 2003 00:38
af gumol
Þig vantar kassa.

Sent: Lau 28. Jún 2003 00:53
af Bitchunter
já ég gleymdi kassa, einnig hljóðkort

Sent: Lau 28. Jún 2003 01:25
af gumol
Og svo kanski eitthvað til að komast á netið :)

Sent: Lau 28. Jún 2003 01:48
af Bitchunter
já, ég er sko með utanaðliggjandi 512kb adsl

Sent: Lau 28. Jún 2003 13:08
af Bitchunter
ég er búinn að plúsa saman nýrri tölvu, plís segið mér ef það vantar eitthvað


P4 3.0GHz (478/800)R

120GB WD með 8mb buffer

Radeon9700Pro 128MB

HLJÓÐKORT - Creative Labs Sound Blaster Live Audigy MP3 - innpakkað

DDR 1024MB (333)

MÓÐURBORÐ - ASUS P4C800 DL Raid, Pentium 4, 800/533/400 MHz FSB, AGP Pro 8x, 5 PCI raufar, DDR, 4 SATA tengi, 8 USB, með innbyggðu hljóðkorti og 3COM Gigabit LAN ásamt 1394 Firewire.

DISKETTUDRIF - NEC / Techmedia 1.44 MB, 3,5 tommu floppydrif

DVD GEISLADRIF - Artec 16x/48x Tray Load DVD CD ROM - innpakkað

GEISLASKRIFARI - LG 52/24X/52 skrifar og endurskrifar, með Superlink skrifvörn

LYKLABORÐ - Keytronics PS/2 lyklaborð með ígreiptum íslenskum stöfum

Antec Performance+ Metal/Gray

Sent: Lau 28. Jún 2003 15:18
af halanegri
Ætlaru virkilega að kaupa 3.0GHz pentium 4? Verðið(53.960) á honum er algjört bull!(hann er alltof nýr) Fáðu þér frekar P4 2.4GHz (478/800)R á 23.655 eða P4 2.6GHz (478/800)R á 29.925. Ef þú vilt endilega hafa Hyper-Threading tæknina sem er aðeins í 3.0GHz og uppúr, þá skaltu bara bíða þangað til að hann lækki í verði, nema þú tímir þessu.

Harði diskurinn er góður, og á góðu verði.

Sama með skjákortið.

Ég veit ekki með hljóðkortið, þetta er nú víst Audigy 1. Vil benda þér á að þú getur fengið Audigy 2(nýrra og betra) á 9.300 kall á http://www.argon.is ef þú vilt það frekar.

Þú ættir ekki að kaupa þér einn 1024mb DDR 333Mhz kubb. Kauptu frekar tvo 512mb DDR 400MHz kubba. Það er ódýrara, hraðara minni, og þá geturu nýtt þér DualDDR tæknina á móðurborðinu sem þú valdir.

Þetta er frábært móðurborð, sérstaklega Deluxe útgáfan(sem þú valdir), erm eð öllu sem þarf.

Ég myndi ekki kaupa mér floppy drif(nota það aldrei), en ef þú notar það eitthvað, þá kaupiru þér það.

Já, allt í lagi með þetta DVD drif.

Ég mæli frekar með nýjustu Lite-On eða Plextor skrifurunum, þeir geta skrifað allt og eru langbestir í þessum bransa.

Allt í lagi með lyklaborðið.

Góður kassi.




Vona að þetta hjálpi eitthvað.

Sent: Lau 28. Jún 2003 15:26
af Voffinn
Við kaup á skrifurum borgar sig lítið að spara og kaupa noname, gerðu markaðskönnum, http://www.cdfreaks.com er fín í það. Þú kaupir t.d. TEAC eða Plextor, færðu betri skrifara og jafnframt eru þeir búnir "tækni" sem aðrir hafa ekki.

T.d. geturu ekki skrifað sérstaka tegund af copyrighted cdum (þegar kmr að því að gera ehh.. öryggisbackup ;) )nema með ákveðnum skrifurum, sem eru yfirleitt TEAC eða Plextor, það eru einnig mörg góð merki....

Sent: Lau 28. Jún 2003 15:31
af halanegri
Neee, TEAC geta ekki skrifað mikið þessa dagana, Lite-On eru þeir skrifara sem geta skrifað flesta leiki með copy-protection, og Plextor svipaðir.

Sent: Lau 28. Jún 2003 15:35
af Bitchunter
með 3ghz ég ætlaði líka ekki að kaupa hann fyrr en hann lækkaði aðeins