Jæja, þar fór 20k út um gluggann. Í vor keypti ég ADATA XPG NVME drif hjá Tölvutækni. Ég hef verið mjög ánægður með það og keypti meira að segja annað drif með 1TB af geymsluplássi. Með drifinu fylgdi lítill heat spreader sem er nokkuð aumingjalegur en ég ákvað að líma hann á upp á flippið þar sem ATX móðurborðið mitt er ekki með heatsink yfir M.2 raufunum.
Í dag ætlaði ég að flytja drifið yfir í annað móðurborð sem hefur nokkuð vígalegan heatsink. Ég hugsaði að það væri ekki ráðlagt að hafa heat spreaderinn undir heatsinkinu og reiknaði með því að það yrði ekkert mál að fjarlægja hann þar sem hann var ekki áfastur við kaup. Þegar ég byrjaði að reyna að ná honum af fannst mér hann undarlega fast límdur á og ákvað að nota plast-spudger til að skera varlega á límið meðan ég lyfti heat spreaderinum af. Mikið af líminu sat eftir... sem ég var ekki sérlega sáttur með en ég reiknaði með því að það myndi ekki skipta miklu máli í stóru myndinni. Þetta var hægt ferli, og ég fór mjög varlega að.
Ég hafði náð að fjarlægja heatspreaderinn af helming minnisflaganna þegar það small allt í einu eitthvað og hann losnaði.
Þá hafði ég ekki einungis náð að taka heat-spreaderinn sjálfan af... heldur hafði ég rifið upp heila minnisflögu, lóðtengi hennar og nokkur "trace" af prentplötunni. Sjá mynd
Nú hef ég hringt í Tölvutækni til að kanna ábyrgðarmál og bíð eftir svari.
Ég vildi vara ykkur við þessu og mæla eindregið gegn því að þið límið heat spreaderinn sem fylgir með drifunum á.
NVME slys með ADATA XPG
NVME slys með ADATA XPG
Síðast breytt af valtyr á Þri 09. Feb 2021 21:38, breytt samtals 1 sinni.
Ryzen 3900X RTX 3070 Gaming OC LG 32UD99-W 32'' 4K HDR10
Re: NVME slys með ADATA XPG
Úff, þetta er sárt að sjá!
|| Ryzen 7 7800X3D - NH-D15 - 32GB (2x16) DDR5 6000 CL30 - Gigabyte B650 AORUS ELITE AX
|| RTX 3080 ASUS TUF - 1TB Samsung 970 M.2 SSD - PSU Corsair RM1000x
|| Fractal Design Define 7 Compact
|| 2x Asus ROG VG27AQ
|| RTX 3080 ASUS TUF - 1TB Samsung 970 M.2 SSD - PSU Corsair RM1000x
|| Fractal Design Define 7 Compact
|| 2x Asus ROG VG27AQ
Re: NVME slys með ADATA XPG
Þetta er glatað að heyra, en ég verð að vera sammála fyrri ræðumönnum, ég efast um að nokkur verslun myndi taka þetta í ábyrgð
Re: NVME slys með ADATA XPG
Jááá grunar það líka svosem en það sakar ekki að fara og athuga það. Sérstaklega þar sem ég þarf annars hvort eð er að kaupa drif uppi í tölvutækni
Síðast breytt af valtyr á Þri 09. Feb 2021 22:31, breytt samtals 1 sinni.
Ryzen 3900X RTX 3070 Gaming OC LG 32UD99-W 32'' 4K HDR10
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1251
- Skráði sig: Fim 10. Des 2009 17:06
- Reputation: 100
- Staða: Ótengdur
Re: NVME slys með ADATA XPG
myndir sýna eiginlega bara það sem skeði, byrjaðir að skera límið og náðir svo að toga það af með ágætis árangri og svo bara aðeins of mikið afl, 3 pinnar enþá á chip og rest brotið/slitið, þetta er engan vegin ábyrgðar mál sorry með þetta samt, þetta skeður fyrir bestu menn
CPU: Intel i9-14900KS
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x24gb 8400mhz cl40
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Dark Power Pro 1600w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB x2
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos
Móðurborð: Asus z790 apex encore
Minni: G.skill 2x24gb 8400mhz cl40
Skjákort: RTX 4090 rog strix
Turn psu: lian li o11d xl rog, Dark Power Pro 1600w13xQL120
Kæling: EK CR360 direct die AIO
SSD: Samsung SSD 980 PRO 1TB x2
Skjár: asus pg32uqr
Lyklaborð Mús heyrnatól : Corsair k100 rgb, corsair Virtuos
Re: NVME slys með ADATA XPG
Ég hugsa að hiti hefði mjög líklega gert límið mýkra og líklegra til að sleppa taki. Hárblásari getur gert magnaða hluti gagnvart tvíhliða lími.
En hrikalega súrt að sjá þetta og vonandi ekki nein gögn á þessu diski sem þér var annt um
En hrikalega súrt að sjá þetta og vonandi ekki nein gögn á þessu diski sem þér var annt um
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: NVME slys með ADATA XPG
Fúlt. En það þarf alltaf hita til að fjarlægja lím. Svo gamla góða tuggan "don't fix it if it aint broken"
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
- FanBoy
- Póstar: 726
- Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
- Reputation: 43
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: NVME slys með ADATA XPG
oof... hægt að nota https://kemi.is/verslun/hreinsiefni/leysiefni/isopropanol-isopropyl-alcohol-98/ til að leysa upp lím
IBM PS/2 8086