Síða 1 af 1

Dual CPU móðurborð

Sent: Mán 27. Jún 2005 00:21
af Zeke
Hvernig virkar þetta ef þú ert með móðurborð fyrir 2 örgjörva, hvernig þarf þetta að vera til að allt passi saman? Getur einhver sagt mér hvar maður fær þessi móðurborð? :?

Sent: Mán 27. Jún 2005 10:17
af Stutturdreki
Það fyrsta sem þú þarft að spyrja þig að: "Hvað í ansk... ætla ég að fara að gera við dual cpu tölvu?"

Síðan þarftu að átta þig á því að það eru ekki öll stýrikerfi sem styðja það, hvað þá forritin sem þú keyrir. Og jafnvel þó stýrikerfi eru sögð styðja tvo eða fleirri cpu er ekki víst að þú fáir nokkurn ávinning af því.

Annars eru svona móðurborð einna helst notuð í servera þannig að það er líklegar að þú fáir svona í fyrirtækjum sem selja servera. Annars eru þau til á td. newegg.com.

Sent: Mán 27. Jún 2005 11:01
af Zeke
Ég hefði kannski átt að bæta aðeins meira við efnið hér að ofan.
En mig langaði bara að kynna mér þetta og athuga hvort einhver er með reynslu af þessu. Ég veit alveg hvernig þetta virkar í grunnatriðum en ég var bara að velta því fyrir mér hvort það væru t.d. bara sérstakir örgjörvar sem styðja þetta?. Og síðan punkturinn sem kom hérna með stýrikerfin, veit einhver hvaða stýrikerfi styðja þetta?.

Sent: Mán 27. Jún 2005 12:26
af hahallur
Auðvitað eru bara sérstakir örar sem styðja það Intel XEON og AMD Opteron td.....svo er allveg hægt að fá sér dual core.

Sent: Mán 27. Jún 2005 13:47
af xpider
hahallur skrifaði:Auðvitað eru bara sérstakir örar sem styðja það Intel XEON og AMD Opteron td.....svo er allveg hægt að fá sér dual core.


http://www.newegg.com/Product/Product.asp?Item=N82E16813151116

Það eru til dual socket A móðurborð. Las um einn gaur sem var með tvo mobile örgjörva, hel kúl. Þú ættir að geta notað win XP og win 2000 með dual móbói.

Sent: Mán 27. Jún 2005 14:37
af MezzUp
xpider skrifaði:
hahallur skrifaði:Auðvitað eru bara sérstakir örar sem styðja það Intel XEON og AMD Opteron td.....svo er allveg hægt að fá sér dual core.


http://www.newegg.com/Product/Product.asp?Item=N82E16813151116

Það eru til dual socket A móðurborð.
Jamm, og það tekur væntanlega sérstaka Athlon MP örgjörva, en ekki hina almennu Athlon XP örgjörva? :)

Sent: Mán 27. Jún 2005 16:32
af hahallur
ég sagði td....svo er allveg hægt að vera með quadriple Sunon drasl.

Sent: Mán 27. Jún 2005 18:17
af xpider
MezzUp skrifaði:Jamm, og það tekur væntanlega sérstaka Athlon MP örgjörva, en ekki hina almennu Athlon XP örgjörva? :)


My bad :oops:, en reyndar ræður þetta móðurborð við amd xp örgjörva líka, en þá bara eitt stykki.

Sent: Mán 27. Jún 2005 19:33
af Stutturdreki
xpider skrifaði:Þú ættir að geta notað win XP og win 2000 með dual móðurborði.
Win XP PRO, Win XP Home styður bara einn CPU.

Windows 2000 Professional (ie. ekki server) verður að hafa SP4, í fyrri útgáfum fengust minni afköst með tveim CPU heldur en með einum CPU. Og svo náttúrulega Windows 2000 og 2003 server, til í mörgum útgáfum en held að þeir styðji allir +1 CPU vinnslu.

Svo Linux, held það þurfi að vera Core 2.4 eða nýrri.. þekki það reyndar ekki nógu vel.

Sent: Mán 27. Jún 2005 19:44
af Pandemic
Windows xp pro styður uppí 4 minnir mig.

Sent: Mán 27. Jún 2005 20:32
af skipio
Mér finnst nú hálf asnalegt að kaupa tveggja örgjörva móðurborð bara rétt áður en hægt verður að fá dual-core örgjörva frá bæði AMD og Intel sem þjóna alveg sama tilgangi og verða miklu ódýrari kostur.

Sent: Mán 27. Jún 2005 23:18
af tms
skipio skrifaði:Mér finnst nú hálf asnalegt að kaupa tveggja örgjörva móðurborð bara rétt áður en hægt verður að fá dual-core örgjörva frá bæði AMD og Intel sem þjóna alveg sama tilgangi og verða miklu ódýrari kostur.

Já maður bíður eftur dual dualcore móðurborðunum :D

Sent: Mán 27. Jún 2005 23:21
af galileo
þarft ekkert dualcore móðurborð nema að þú ert með intel.