Síða 1 af 2
Er að fara kaupa mér LCD skjá, þarf comment
Sent: Fös 17. Jún 2005 20:54
af appel
Er með budget upp á svona 70k (give or take 10k) og er að leita eftir góðum 20" (ekki minni) LCD skjá sem dugar í leiki auðvitað og svo windows vinnslu.
Er búinn að vera skoða þennan Dell 20" Wide LCD skjá:
http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... ID=2005FPW
Hann er svona það besta sem ég hef séð, en er í dýrari kantinum. Reyndar myndi ég kaupa hann ef ég myndi ekki sjá neina ódýrari í sama flokki.
Hvað finnst ykkur, hafiði hugmyndir um betri skjái?
ty!!
Sent: Fös 17. Jún 2005 20:57
af kemiztry
Þetta er mjög góður skjár.. sami panell í þessum og í 20" Apple Cinema display... þannig það er óhætt að mæla með þessum
Sent: Fös 17. Jún 2005 21:17
af appel
Hmm.... ég er currently með ATI 9600XT 256mb kort, en mér sýnist það ekki styðja þennan skjá. Er búinn að skoða skjákort sem styðja þennan skjá og þau kosta öll um 30þús kall.
Þannig að maður er farinn að eyða yfir 100k í þetta. Hm...það er vel yfir budgetið mitt.
Sent: Fös 17. Jún 2005 21:47
af ICM
appel hvað ertu að tala um það er ekki eins og þetta sé 30" Cinema skjár
Sent: Fös 17. Jún 2005 21:49
af hahallur
Það ráða öll kort sem gefin hafa verið út í mörg ár við þennan skjá
Re: Er að fara kaupa mér LCD skjá, þarf comment
Sent: Lau 18. Jún 2005 10:03
af ponzer
appel skrifaði:Er með budget upp á svona 70k (give or take 10k) og er að leita eftir góðum 20" (ekki minni) LCD skjá sem dugar í leiki auðvitað og svo windows vinnslu.
Er búinn að vera skoða þennan Dell 20" Wide LCD skjá:
http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... ID=2005FPWHann er svona það besta sem ég hef séð, en er í dýrari kantinum. Reyndar myndi ég kaupa hann ef ég myndi ekki sjá neina ódýrari í sama flokki.
Hvað finnst ykkur, hafiði hugmyndir um betri skjái?
ty!!
Ég er með 2 svona skjái í vinnuni, flottur og svaðalega flott og skýr myndin í þessum skjá
ég mæli með þessum
Sent: Lau 18. Jún 2005 12:05
af gnarr
ef þú pantar hann frá dell.com, geturu sparað þér minnst 20k. Ef þú finnur eitthvað flott coupon fyrir þennan skjá, á gætiru jafnvel verið að spara þér 30k.
Sent: Lau 18. Jún 2005 21:15
af skipio
Jamm, annaðhvort pantar maður Dell skjáinn að utan eða þá tekur maður
Apple 20" LCD skjáinn á sama pening á Íslandi.
Fáránlegt að EJS sé að rukka það sama fyrir Dell 2005FPW og Apple búðin tekur fyrir 20" Apple Cinema skjáinn sem er miklu flottari skjár, með betra backlight og svo er hægt að minnka backlightið (ef maður er í grafíkvinnslu skiptir það miklu). Auk þess er um nokkuð vandaðri framleiðslu hjá Apple en Dell.
Dell skjárinn er seldur á sirka $400 hjá Dell.com með réttum coupons. Það er vesen að fá sent til Íslands hinsvegar.
Sent: Lau 18. Jún 2005 23:29
af SolidFeather
Samhæfður við VESA festingar
Athyglisvert...
Sent: Mán 20. Jún 2005 00:57
af busted
Uppi á ruv eru margir með feita 20 tommu Dell skjái eða ekki feita. ætli að þeir panti bara mikið magn á netinu og fái sent í sér gám með ruv dóti og svo hljóta þeir að fá feitan magnafslátt
annars er frekar súrt að vera með Apple skjá við pc tölvu
Sent: Mán 20. Jún 2005 01:00
af Birkir
busted skrifaði:Uppi á ruv eru margir með feita 20 tommu Dell skjái eða ekki feita. ætli að þeir panti bara mikið magn á netinu og fái sent í sér gám með ruv dóti og svo hljóta þeir að fá feitan magnafslátt
annars er frekar súrt að vera með Apple skjá við pc tölvu
Af hverju er það súrt?
Sent: Mán 20. Jún 2005 02:06
af skipio
busted skrifaði:Uppi á ruv eru margir með feita 20 tommu Dell skjái eða ekki feita. ætli að þeir panti bara mikið magn á netinu og fái sent í sér gám með ruv dóti og svo hljóta þeir að fá feitan magnafslátt
annars er frekar súrt að vera með Apple skjá við pc tölvu
Neinei, þeir fá bara afsláttarverð hjá EJS. Held að algengt afsláttarverð fyrir fyrirtæki á Dell 2005FPW sé í kringum 70þ. kall. Ef þeir kaupa marga gæti verðið vel farið niður í 60þ. krónur og jafnvel mögulega séð lægra.
Sent: Mán 20. Jún 2005 02:18
af ICM
Birkir skrifaði:busted skrifaði:Uppi á ruv eru margir með feita 20 tommu Dell skjái eða ekki feita. ætli að þeir panti bara mikið magn á netinu og fái sent í sér gám með ruv dóti og svo hljóta þeir að fá feitan magnafslátt
annars er frekar súrt að vera með Apple skjá við pc tölvu
Af hverju er það súrt?
því þú ert f*cked ef þú þarft að stilla BIOS eða spila gamla leiki, hann sýnir ekkert nema native upplausnina svo þú yrðir að hafa annan við hendina.
Sent: Mán 20. Jún 2005 17:26
af valur
vonandi virkar þessi link
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6824116285
Kostar 112þús stgr. hjá boðeind.. 65 þús kominn í gegnum shopusa
smá álagning
Sent: Mán 20. Jún 2005 17:44
af hahallur
Þessi Viewsonic er geðveikur.....bara ekki kaupa hann hjá boðeind....helvítis okur og spam
Sent: Mán 20. Jún 2005 18:10
af Yank
Sent: Mið 22. Jún 2005 19:37
af busted
Hey, afhverju er ekkert frá þessari thor.is síðu á vaktin.is?? Það er allt autt í dálkunum fyrir neðan Þór HF. samt eru þeir með alla íhluti í tölvur á thor.is Það þarf að updeita vaktin.is
Sent: Mið 22. Jún 2005 21:27
af arnarj
svaka skjár, á eitt stykki
Sent: Fim 23. Jún 2005 01:10
af gnarr
þeir sjá sjálfir um að uppfæra sig. kvartaðu við þá.
Sent: Fös 24. Jún 2005 19:08
af Frikkasoft
Ég keypti tvo svona 20.1" widescreen dell skjái í USA á 23.000kr stykkið um daginn. Keypti beint af dell.com og nýtti mér coupons, hlakka til að koma heim og setja þá upp
Sent: Lau 25. Jún 2005 01:08
af busted
Ekki ætlaru að nota tvo 20" widescreen saman á einni tölvu ??
Sent: Lau 25. Jún 2005 01:26
af Frikkasoft
busted skrifaði:Ekki ætlaru að nota tvo 20" widescreen saman á einni tölvu ??
Jú að sjálfsögðu...
Reyndar er tölvan mín heima á íslandi ekki með skjákorti með 2 dvi tengjum, þannig að ég keypti bara 6600gt með 2 dvi útgöngum hérna í usa líka (keypti líka nýtt móðb, cpu, minni, enda kominn tími til að uppfæra).
Að hafa 2 svona skjái heima, sérstaklega þegar ég er að forrita og þvíumlíklgt, er algjör snilld, og heyy! skárinn kostaði mig bara 23þ stykkið sem er ákkúratt undir tollamörkum í leifsstöð þegar ég kem heim eftir nokkrar vikur.
Svo keypti maður sér líka nýja ferðatölvu + psp + cameru + ... + 500dvd diska, osfrv.
Þið ættið að fara í Best Buy hérna úti, maður fær alveg kast, það er allt svo ódýrt
Sent: Lau 25. Jún 2005 03:57
af busted
Snilld! til hamingju! Eru LCD skjáir ekki seldir í Leifstöð. En ef þú verður tekinn með þetta þá verðuru að vera með kvittun fyrir að þetta kostaði bara 23000kr. hvað er Psp?paint shop pro? wow 500 dvd bara heilt suitcase undir þá
Sent: Lau 25. Jún 2005 06:09
af hilmar_jonsson
Sæll.
Ég nota tvo skjái, E173FP 17" Dell, og VP201b 20.1" ViewSonic. Ég fékk þann fyrrnefnda fyrst og fannst hann frábær, mikil litadýpt, góð birta, góð svörun og heillandi útlit. Seinna fékk ég þann síðarnefnda. Hann skilar dýpri litum, skýrari mynd, er fljótari að skipta um upplausn og hægt er að sjá myndina frá öllum áttum öfugt við Dell skjáinn.
Ég mæli eindregið með ViewSonic VP201b skjánum.
Es. PSP = PlayStation®Portable.
Góð ágiskun engu að síður.
Sent: Lau 25. Jún 2005 06:39
af Frikkasoft
busted skrifaði:Snilld! til hamingju! Eru LCD skjáir ekki seldir í Leifstöð. En ef þú verður tekinn með þetta þá verðuru að vera með kvittun fyrir að þetta kostaði bara 23000kr. hvað er Psp?paint shop pro? wow 500 dvd bara heilt suitcase undir þá
Psp er playstation portable.
Ég efast um að leifsstöð býður upp á allsæmilega lcd skjái, amk sá ég enga þegar ég fór út. Mín reynsla af leifsstöð er ekki góð, allt er jú aðeins ódýrara, en úrvalið er varla uppá marga fiska.
Annars þurfti ég að hafa smá fyrir því að finna þessa skjái á 23.000, en ég fylgdist daglega með slickdeals.net eftir afsláttarmiðum, einn daginn komst ég í feitt, og pantaði 2 skjái. Ég á eftir að muna eftir kvittuninni, believe me! Svo er bara að koma þeim í handfarangur í flugvélinni
Ein vinkona mín bað mig um að kaupa handa sér 100 dvd diska, ég skoðaði bestu dílana hérna í usa, og fann þetta fína tilboð á amazon, semsagt 100 diska spindil af dvd diskum á 30 dollara, um 2000kr, frí heimsending. Vegna minnar óstjórnarlegu kaupgræðgi keypti ég 5 þannig, konunnar minnar til mikillar óánægju
En þetta er ótrúlega lágt verð fyrir þessa diska, þarf maður ekki annars að borga 50kr af hverjum dvd disk í skatt til varnar höfunarrétti heima í bananalýðveldinu, ég bara spyr?
Svei mér þá ef það er ekk ódýrara að fljúga til usa, kaupa sér lappa eða skjái eða hvað það er sem þú vilt, og flytja það heim, heldur en að kaupa það heima á Íslandi. Allavega þá mun ég beina mínum tölvukaupum erlendis héðanaf eftir þessa stuttu dvöl mína erlendis.
kv,Frikki