Síða 1 af 1
34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 09:43
af blitz
Ég er að gæla við að prófa að henda mér á 34" skjá - líklegast einn af þessum þremur:
Gigabyte G34WQCAcer Nitro XVO Series XV340CKMSI Optix MAG342CQRVÞeir koma allir vel úr prófunum (m.v. verð og mixed use)
MSI og Gigabyte eru báðir 1500r sem er nokkuð aggresíft curve á meðan Acer skjárinn er flatur.
Ég sit c.a. 100 cm frá skjánum og þetta er hugsað sem "mixed use" - sörf, vinna og gaming.
Einhver með reynslu sem getur komið með input?
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 09:56
af brynjarbergs
Ég hef sagt það áður - og segi það aftur.
Ég er með þetta eintak og er brjálæðislega sáttur so far!
https://mii.is/collections/hljod-og-myn ... monitor-34Var ekki með curved en þetta var hrikalega fljótt að venjast :-)
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 10:50
af g0tlife
Ég var að fjárfesta í
https://elko.is/gaming/leikjaskjair/sam ... g75tqsuxen Fyrsti curved skjárinn og þetta er gargandi snilld.
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 10:56
af Dr3dinn
Keypti eimmit þenann líka í síðustu viku og bíð enn...
Margir með hann í vinnunni og gefa honum topp einkunn...
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 11:01
af hagur
Þegar þú ert komin í skjá af þessari stærð þá myndi ég alltaf velja curved fram yfir flatann.
Curved sjónvörp = Algjört rugl, nema þú sitjir alveg ofan í sjónvarpinu og sért alltaf einn fyrir framan það.
Curved tölvuskjáir = Hrikalega þægilegir
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 11:14
af oskar9
Sammála, er með 35" BenQ 3440x1440 21:9 hann er vel beygður og ég sit frekar nálægt, finnst það alveg sturlað
.
Er mun sáttari við stóran UltraWide en að hafa farið í 16:9 4K skjá
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 11:47
af Viktor
Mæli með curved í þessari stærð.
En alls ekki nauðsynlegt. Bæði bara mjög fínt.
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 12:28
af osek27
Xiamoi skjarinn er klikkaður. Er með MSI 32 tommu curved og bíð eftir að geta fengið mér xiaomi næst.
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 12:43
af blitz
Fer þá í curved.
Gigabyte líklegast fyrir valinu - hann er um 20.000 ódýrari en Xiaomi og virðist almennt fá örlítið betri dóma - sami panell samt!
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 13:47
af Jón Ragnar
blitz skrifaði:Fer þá í curved.
Gigabyte líklegast fyrir valinu - hann er um 20.000 ódýrari en Xiaomi og virðist almennt fá örlítið betri dóma - sami panell samt!
Hvar er sá skjár til sölu?
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Mið 09. Des 2020 14:03
af blitz
Jón Ragnar skrifaði:blitz skrifaði:Fer þá í curved.
Gigabyte líklegast fyrir valinu - hann er um 20.000 ódýrari en Xiaomi og virðist almennt fá örlítið betri dóma - sami panell samt!
Hvar er sá skjár til sölu?
B&H Photovideo
Edit: Spurning samt hvort að munurinn sé þess virði að eltast við, bíða til 11. janúar og fá frá þeim. Mii er með þetta á lager
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Sun 27. Des 2020 02:36
af Skizzo
@blitz
Hvorn skjáinn endaðiru á að fá þér? Ég er einmitt í skjápælingum líka. Ætlaði bara í 27" fyrst en margir að reyna sannfæra mig í stærra. Er því að browsa skjáþræði og þætti gaman að heyra þína reynslu.
Er með 3070 kort, eru G-Sync vs. FreeSync big deal í dag?
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Sun 27. Des 2020 03:19
af Bourne
Fékk Alienware AW3420DW í jólagjöf frá konunni, alveg sick skjár.
Eccóa það sem fyrr hefur komið fram, smá curve er næs.
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Sun 27. Des 2020 09:25
af blitz
Skizzo skrifaði:@blitz
Hvorn skjáinn endaðiru á að fá þér? Ég er einmitt í skjápælingum líka. Ætlaði bara í 27" fyrst en margir að reyna sannfæra mig í stærra. Er því að browsa skjáþræði og þætti gaman að heyra þína reynslu.
Er með 3070 kort, eru G-Sync vs. FreeSync big deal í dag?
Ég fór í hundrað hringi og endaði á
MSI MAG342CQRV en gafst að lokum upp á því að bíða eftir því að hann kæmi og færði mig í
ViewSonic VX2758-2KP-MHD en konan vildi á endanum 2 skjái frekar en einn 21:9.
Re: 34" 21:9 - flat eða curved?
Sent: Sun 27. Des 2020 09:49
af jonsig
Einhver reynslu af þessum ? Maður er vanur 27" spurning hvort maður verði úteygður af svona stórum skjá ?
https://kisildalur.is/category/18/products/1835