Síða 1 af 1

Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 15:47
af Zakkimann
Sælir vaktarar

vantar álit á þessu buildi. Aðallega hvort að ég get eytt minna án þess að minnka performance
https://builder.vaktin.is/build/D72EE

Re: Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 15:48
af Njall_L
Gætir sleppt örgjörvakælingu, kælingin sem fylgir 5600X er mjög fín.

Re: Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 21:34
af Sinnumtveir
Sammála Njall_L. Sleppa örgjörvakælingu, amk til að byrja með.

Svo myndi ég skella mér á G.SKILL Trident Z 32GB kit (2x16GB) 3600MHz sem kostar 30.900 hjá Tölvutækni.

Ath. einnig að "Black Friday" er 27. nóv. og þá verður sennilega komin samkeppni í skjákortin því Radeon RX-6000 koma í vikunni.

Re: Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 21:44
af DaRKSTaR
sammála síðasta ræðumanni,, droppar kælingunni og ferð í 32gb vinnsluminni þá ertu góður.

Re: Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 22:27
af pepsico
Ég væri til í að heyra réttlætinguna á bakvið þau meðmæli að fara yfir 16GB af vinnsluminni án þess að hafa neinar haldbærar upplýsingar um að kaupandinn muni nokkurn tímann nýta það--og það þvert á tilmælin að nýta hverja krónu sem best.

Re: Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 22:47
af Klemmi
Af hverju svona dýrt móðurborð, og þessi kæling?

Ef þú ert ekki að fara að yfirklukka, þá sé ég ekki ástæðu til að splæsa svona miklu í þetta tvennt.

Og svo eins og fyrri ræðumenn nefna, þá myndi ég bíða eftir black friday/cyber monday, og vona að búðirnar séu með einhvern afslátt (Computer.is hafa verið góðir með það að hafa a.m.k. 10% afslátt á öllum vörum á þessum dögum síðustu ár).

Re: Álit á vél

Sent: Sun 15. Nóv 2020 23:09
af kobbi keppz
M.v þetta video (https://www.youtube.com/watch?v=ITtouejRluk) og fleiri, þá persónulega færi ég í aftermarket örgörvakælingu. Örgjörvinn getur downclockað sig og dregið úr afköstum ef hann fer upp fyrir visst hitastig.

Re: Álit á vél

Sent: Mán 16. Nóv 2020 10:20
af Zakkimann
Klemmi skrifaði:Af hverju svona dýrt móðurborð, og þessi kæling?

Ef þú ert ekki að fara að yfirklukka, þá sé ég ekki ástæðu til að splæsa svona miklu í þetta tvennt.

Og svo eins og fyrri ræðumenn nefna, þá myndi ég bíða eftir black friday/cyber monday, og vona að búðirnar séu með einhvern afslátt (Computer.is hafa verið góðir með það að hafa a.m.k. 10% afslátt á öllum vörum á þessum dögum síðustu ár).


Eru einhver móðurborð sem að þú mælir með?(Er ekki mjög klár að velja, tbh valdi bara eitthvað) Er líka búinn að heyra það að það er að borga sig að nota öll ram slottin á 5000 seríunni.

Re: Álit á vél

Sent: Mán 16. Nóv 2020 13:42
af Klemmi
Myndi frekar skoða móðurborð í þessum flokki, og svo setti ég sömu kælingu nema bara með 1x viftu í stað 2x.
https://builder.vaktin.is/build/C9E34

Ef þú vilt spara enn frekar, þá geturðu spáð í þessu, en þykir Gigabyte borðið bara mikið fallegra, og er Gigabyte aðdáandi :)
https://kisildalur.is/category/8/products/1875

Kælingin, þá færðu mikið fyrir peninginn með þessari Deepcool, en samkvæmt reviewum, þá eru festingarnar fyrir AM4 ekki merkilegar...
https://kisildalur.is/category/13/products/1858

Varðandi vinnsluminnin, þá virðist það ekki vera fjöldi minniskubba, heldur ranka sem skiptir máli. Virðist vera að best sé að hafa 4 ranks. Færð minna performance virðist vera með 2 ranks, og 8 ranks getur svo verið slæmt fyrir yfirklukkun. Hins vegar eru flestir 8GB kubba 1 rank, sem útskýrir af hverju talið er að það sé betra að fylla raufarnar af minni. Hins vegar getur þú líka farið í 2x 16GB 2rank kubba, og þar með ekki fyllt raufarnar en fengið sömu afköst...