Vil koma aðeins inn og taka reyna að útskýra aðeins þessa verðlagningu en
vil þó taka fram að allt sem ég skrifa er eitthvað sem ég tel og held frekar heldur en eitthvað sem ég veit fyrir víst.Þó svo að ég sé hlynntur því borga aðeins meira fyrir vöru og "versla við kaupmanninn á horninu" til að halda honum lifandi og geta fengið hands-on reynslu og þjónustu nálægt mér þá er ég alveg sammála um að þetta verðdæmi sem hér er tekið með Ryzen 5000 eigi alveg rétt á að vera í umræðunni þar sem verðin eru vissulega umtalsvert hærri hérlendis þegar þau eru borin saman við verð í Evrópu og miðað við margar aðrar vörur.
Hinsvegar tel ég að svo stöddu að það sé eðlileg útskýring fyrir þessum verðmun á þeim tímapunkti þegar þetta er skrifað.
Og hefst þá útskýringin. Frá því að umræddir örgjörvar voru kynntir þangað til þeir komu í sölu á heimsvísu, 5.11.2020, birti enginn íslenskur söluaðili nokkur verð sem segir okkur að líklegast hafi enginn fengið endanlega úthlutun í pöntun frá sínum birgjum með endanlegum verðum. Þetta má styðja með því hversu lítið stock virðist hafa verið af þessum örgjörvum á heimsvísu fyrst um sinn og því erfitt að áætla hvað hvert markaðsvæði gæti hafa fengið mörg eintök.
Þann 5.11.2020 birta þó Kísildalur verð, fyrstir allra söluaðila hérlendis, og bjóða upp á forpantanir hjá sér. Daginn eftir, þann 6.11.2020, afhenda þeir síðan fyrstu eintökin! Ég endurtek, daginn eftir að ein heitasta PC vara ársins fer í sölu í heiminum afhenda Kísildalur fyrstu örgjörvana út um dyrnar hjá sér. Á sama tíma er enginn annar söluaðili hérna heima búnir að birta verð eða opna á forpantanir hjá sér. Hvað segir þetta okkur? Jú, Kísildalur hafa að öllum líkindum (tek sérstaklega fram að ég veit þetta ekki beint heldur áætla) tekið fyrstu örgjörvana einhverjar óhefðbundnar leiðir til að geta boðið upp á þá á svona snemma.
Það að taka örgjörva, eða aðrar vörur, með óhefðbundnum leiðum bætir að sjálfsögðu við kostnaðinn en þau sem vilja fá vöruna strax í hendurnar sætta sig þá væntanlega við að borga aðeins meira til að geta gert slíkt.
Hvernig spilar þetta inn í "almennt verðlag" á örgjörvunum eins og er hér til umræðu? Jú, vegna þess að Kísildalur eru fyrstir til að birta verð sem eru tiltölulega há þá eru það verðin sem hinir söluaðilarnir miða við í sinni verðlagningu. Þegar þetta er skrifað eru bæði Tölvulistinn og Tölvutek búnir að birta verð og eru bæði yfir verði Kísildals, hinsvegar bendir ekkert til þess að þessir aðilar hafi fengið einhver "early" eintök og bjóða nú upp á forpöntun/skráningu sem afhendist þegar þeir fá örgjörvana með sínum hefðbundnu leiðum.
Nú gæti einhver spurt sig: "Af hverju eru þá ekki þeir söluaðilar sem taka örgjörvana með hefðbundnum leiðum að bjóða þá ódýrari?" og því mætti svara með: "Af hverju ættu þeir?" Þessir örgjörvar munu allir seljast upp á því verði sem sett er á þá fyrst um sinn, þangað til að markaðurinn mettast. Þeir sem vilja kaupa bara þau eintök sem eru til þegar þau eru til, þannig virkar "supply and demand". Þegar markaðurinn mettast hinsvegar og örgjörvarnir fara að vera til sem lagervara má áætla að verðin lækki, en ekki mikið fyrr.
En annað mál varðandi verð á öðrum vörum í tölvuverslunum hérlendis. Þar verð ég að gefa íslenskum kaupmönnum stórt hrós. Var að fara í gegnum nýtt build fyrir Ryzen 5000 og sama hvað ég reyndi í íhlutavali tókst mér ekki að finna hlutina í það nægilega mikið ódýrari erlendis frá til þess að það meikaði sens að panta þaðan. Í heildina hefði ég sparað mér örfáa þúsundkalla með því að panta að utan og mögulega ekki neitt þegar búið væri að taka tollskýrslugerð og slíkt í reikninginn. Íslensku verðin voru einfaldlega mjög góð og ég get sótt ábyrgðarþjónustu í heimabyggð ef þess þarf.
Tek aftur fram að allt sem ég skrifa er eitthvað sem ég tel og held frekar heldur en eitthvað sem ég veit fyrir víst og ég tala alls ekki fyrir hönd neinnar tölvuverslunar eða með beinni vitneskju.Til að svara OP síðan beint
Zakkimann skrifaði:Má þetta bara? Er ekki hægt að fara fram á einhverja massívar hóppantanir á tölvuíhlutum frá erlendum fyrirtækjum og skera þannig út þennan millimann?
Já, þetta má að sjálfsögðu í frjálsu markaðskerfi eins og bent hefur verið á. En varðandi hóppöntunina, nei sennilega er það ekki hægt eða mjög erfitt. Íslenskar tölvuverslanir eru eiginlega bara þessi hóppöntun sem þú talar um. Þeir panta í magni, selja síðan og taka smá hlut fyrir. Ég veit svosem ekki hvernig þú sérð fyrirkomulag á svona hóppöntun fyrir þér en ætlaru þér að sjá um slíka pöntun frítt og koma út á núlli kostnaðarlega sér en í miklu tapi í tíma? Eða ætlaru þér að leggja "sanngjarnt" ofaná hverja vöru til að standa á móti kostnaðnum sem þessu fylgir? Ertu þá ekki bara orðinn tölvuverslun í bílskúrnum hjá þér?