Síða 1 af 1

Input Lag

Sent: Mið 04. Nóv 2020 19:48
af yngvijohann
Sæl og blessuð

Í vikunni þá var ég að spila warzone og blablabla, kemur ekki bara rosalega skrýtið input lag sem heldur áfram þrátt fyrir að Ég restarta tölvunni og breyti settings+uppfæra skjákortið og uppfæri windows

Ég er með frábær frames í leikjunum sem Ég er að spila og ég kíkti hvort ég væri að fá input lag í öðrum leikjum, þannig ég opnaði 3 leiki (einn af þeim er Half Life 1 sem kom út 1998 hah) og er samt að fá input lag í þeim líka

Ég veit ekki alveg hvort Ég er að fá þetta lagg líka í lyklaborðinu en það sýnist mest á músini, og Ég keypti músina mína fyrir 2 mánuðum síðan sem er "Corsair Harpoon RGB"

Sá gæja á netinu sem bjargaði nokkrum frá þessum galla með því að breyta "voltages" í bios en Ég bara treysti mér ekki að vera að fikta í því

Hvað gæti verið að? ég er búinn að vera að googla á fullu um þetta en finn ekki neitt sem virkar

Endilega hendið í comment ef þið vitið um eitthvað sem er hægt er að gera til að laga þetta
Cheers. :megasmile

Hér eru specs:
Turn:
- Corsair Carbide SPEC-01
Aflgjafi:
- Corsair RM750x
Móðurborð:
- Asus Z170-Pro Gaming
Örgjörvi:
- Intel Core i5 6600K
Vinnsluminni:
- Corsair Vengeance 2x8gb (16gb) 2400mhz
Skjákort:
- MSI GF980 Gaming
Kæling:
- CoolerMaster Hyper TX3
Diskur: 2TB HD

Re: Input Lag

Sent: Mið 04. Nóv 2020 20:24
af SolidFeather
Tékkaðu hvort þú sért með kveikt á Vertical Sync í nvidia control panel, ef svo er settu það á Off.

Re: Input Lag

Sent: Mið 04. Nóv 2020 20:31
af gotit23
https://www.wagnardsoft.com/forums/viewtopic.php?t=1256
getur prófað að setja þetta upp,
þetta improvar flesta leiki um nokkur fps.
og lagar input lag

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 00:37
af kizi86
hvernig skjá ertu með?

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 07:55
af yngvijohann
V-sync er alltaf "off" og öll settings hafa alltaf verið í lagi, þetta músalagg kom upp úr þurru
Ég er með 60hz philips 273V5LHSB 27" skjá, (Full HD 1920x1080, 1ms)
ég hef prófað þetta "intelligent standby list cleaner" áður og það virðist ekki hjálpa
ég er með frábær frames í öllum leikjum, tildæmis half life1 sem allar tölvur nýjar eða gamlar geta runnað, en eitthvað í tölvunni er að valda þetta mouselag

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 08:00
af yngvijohann
Ég nota Nvidia Control Panel mjög mikið ef ég er að spila stóra leiki eins og warzone eða battlefield5 og það hefur bara svínvirkað
gæti þetta verið einh galli sem er að koma frá windows stýrikerfinu eða nvidia gr driver?

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 08:20
af Dr3dinn
Mig rámar í uppfærslu um daginn sem restartaði stillingum hja mer ingame og í nvidia settings.

Hef samt séð aðra vera að kvarta líka útaf "laggi" ingame. (csgo mest)

Spurning hvort eldri driver á nvidia væri test sem væri þess virði að prófa.

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 09:08
af k0fuz
1. Það kom ný stilling í warzone um daginn (nokkrar vikur síðan) sem á að minnka input lag, ertu búin að skoða það?

2. Gætir prófað að setja GPU Scheduling í windows á, það er ný stilling í windows sem bætir performance í leikjum, kannski hjálpar það.

3. Uppfæra GPU driverinn.

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 10:08
af yngvijohann
Er búinn að tjékka á nýju stillinguni og hún hjálpar bara með fps en ekki músina
ef ég gæti útskýrt hvernig músin er í leikjum þá er hún eins og að hún pikkar ekki upp fljótar hreyfingar, og þótt ég slidea mjög hægt þá er eins og mouse sensitivityið lækkar ógeðslega mikið niður
þetta er öruglega mest pirrandi vandræði sem ég hef lent í
en ég ætla að kíkja á þetta gpu scheduling

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 10:14
af yngvijohann
obb tölvan mín er ekki með þetta option fyrir gpu scheduling, stendur bara "graphics performance preference" þar sem ég get bara enablað fyrir sérstaka leiki, prófaði það um daginn og það virkaði ekki heldur

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 10:16
af worghal
ertu með eitthvað overclocking í gangi á cpu?
getur prufað að taka af downclocking svo hann sé stöðugu Ghz
jafnvel sniðugt að prófa að overclocka bara aðeins. kanski stöðugt 4 Ghz þar sem stock boost er 3.9 Ghz

hérna eru leiðbeiningar með þínum cpu og mb
https://rog.asus.com/forum/showthread.p ... Pro-Gaming

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 10:44
af yngvijohann
Ég eyddi MS afterburner því það virkaði ekki, ég er búinn að overclocka cpuið en örgl ekki vel.
ætla að tjékka á þessu núna

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 10:47
af yngvijohann
https://imgur.com/32OfXtQ
hér er linkur til að sjá hvernig cpuið var

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 11:21
af yngvijohann
Ég prófaði þetta overclock og er ekki viss hvort það saveaðist, eftir að ég gerði "save & reset" þá var bara svartur skjár og vifturnar alveg á fullu í nokkrar mínutur þannig ég ákvað að skipa tölvunni að slökkva á sér
ætla að prófa að hoppa inní leik og sjá hvort þetta hefur eitthvað lagast

EDIT: ég breytti bara overclockinu í það sama og sem stóð á myndini, heyrðu það lagaði smá en ekki nóg, frábært overclock takk fyrir að sýna mér það
edit 2:
Alfa
ég prófaði að lækka polling rate í 500 og jafnvel 250 og það er enþá sama vandamál

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 11:34
af worghal
hvað settiru overclockið hátt?

muna líka að nota edit takkann í stað þess að setja inn marga pósta í röð

Re: Input Lag

Sent: Fim 05. Nóv 2020 14:08
af Alfa
Svona til að prufa eitthvað annað og þú talar um usb lagg og keyboard lagg !

Hvað er polling rate á usb ? Ég hef lent í svona á einhveri tölvu fyrir mörgum árum sem bara gjörsamlega gúdderaði ekki að hafa það í 1000hz, en þegar ég minnkaði það niður í 500hz þá var allt í fína. Man ekki hvort þetta hafi lagast seinna með nýjum driver.

Getur breytt því t.d með ICUE frá Corsair (miðað við uppgefna mús)

https://zowie.benq.com/ja/support/mouse ... ecker.html