Síða 1 af 1
3070 kaup
Sent: Mið 28. Okt 2020 11:47
af ViktorW
Hvar er best að panta 3070 á netinu til íslands?
Re: 3070 kaup
Sent: Mið 28. Okt 2020 12:07
af Viktor
Fáðu þér UK heimilisfang hér og þá eru þér allir vegir færir
https://www.forward2me.com/
Re: 3070 kaup
Sent: Mið 28. Okt 2020 17:06
af Robotcop10
Re: 3070 kaup
Sent: Mið 28. Okt 2020 19:27
af jonsig
Robotcop10 skrifaði:https://www.computer.is/is/product/skjakort-palit-rtx3070-gaming-pro-8gb-gddr6
fæ það á 93k innflutt fá overclockers uk þegar þetta rugl fer að róast. annars er nýja amd frekar hot líka
Re: 3070 kaup
Sent: Mið 28. Okt 2020 19:58
af DaRKSTaR
myndi koma mér í biðröð á 3070 hjá öllum tölvubúðum á skerinu og ef svo vel hittir á að kort verður til á stock erlendis sem þú getur pantað og fengið á undir 100 áður en röðin verður komin að þér hér á skerinu þá bara tekurðu það.
en ég myndi satt að segja ekki gera mér neina sérstaka von á að ná svona korti fyrren í feb í fyrsta lagi, það er miklu fleyri að bíða eftir 3070 en voru að bíða eftir 3080.
Re: 3070 kaup
Sent: Mið 28. Okt 2020 20:01
af jonsig
spurning þegar nýjasta útspilið hjá AMD hefur litið dagsins ljós, þá verður fyrr mettaður markaðurinn
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 10:56
af Keli Kaldi
Var að ná í mitt hjá Computer.is. Pantaði í gærkvöldi. Helvíti spenntur að uppfæra úr 1060.
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 13:03
af Viktor
Loading...
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 13:24
af jericho
mátti reyna
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 13:31
af Klemmi
Þetta var sénslaust... var að fylgjast með út í US og svo á Amazon.de... Komst næst því að ná korti af Amazon.de, flottu Asus Strix korti, refreshaði, 14 left, ýtti á add to cart, sorry búið.
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 13:35
af Viktor
Mátti reyna!
Fékk svona 100 villuskilaboð, 200 captcha og endalaust Loading...
Bæði Scan.co.uk og Overclockers eru niðri núna
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 15:58
af mumialfur
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 18:04
af ViktorW
Hvenær haldið þið að Geforce RTX 3070 ROG Strix OC 8GB lendir í búðir hér á íslandi?
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 18:55
af jonsig
ViktorW skrifaði:Hvenær haldið þið að Geforce RTX 3070 ROG Strix OC 8GB lendir í búðir hér á íslandi?
Vonandi kemur radeon 6800 fyrr í búðir, amd menn búnir að hinta á að þeir verði ekki með allt eins í brókinni með launchið og nvidia.
Re: 3070 kaup
Sent: Fim 29. Okt 2020 22:51
af DaRKSTaR
jonsig skrifaði:ViktorW skrifaði:Hvenær haldið þið að Geforce RTX 3070 ROG Strix OC 8GB lendir í búðir hér á íslandi?
Vonandi kemur radeon 6800 fyrr í búðir, amd menn búnir að hinta á að þeir verði ekki með allt eins í brókinni með launchið og nvidia.
sé ekki hvernig þetta verði eitthvað betra hjá þeim, eftirspurnin er það mikil í heiminum eftir þessu, allir heima að leika sér útaf covid og verða það næsta árið í það minnsta.
Re: 3070 kaup
Sent: Lau 31. Okt 2020 16:06
af ViktorW
Hvenær haldið þið að Geforce RTX 3070 ROG Strix OC 8GB lendir í búðir hér á íslandi?
Re: 3070 kaup
Sent: Lau 31. Okt 2020 16:13
af Klemmi
ViktorW skrifaði:Hvenær haldið þið að Geforce RTX 3070 ROG Strix OC 8GB lendir í búðir hér á íslandi?
Það er ómögulegt að segja. Sýnist að verslanir séu bara að taka inn þau kort sem þeir geta, enda er framboðið talsvert minna en eftirspurnin.
Ef þú ert harður á því að vilja bara ROG Strix kort, þá gætirðu alveg þurft að bíða eitthvað inn í næsta ár...
Re: 3070 kaup
Sent: Sun 01. Nóv 2020 14:25
af ViktorW
Ég var að forpanta Gigabyte GeForce RTX 3070 Gaming OC hjá tölvutek
https://tolvutek.is/Tolvur-og-skjair/Ih ... 757.actionveit einhver hvenær þeir fá kortin?
Eða hvort þeir eru að biða eftir sendingu eða ekki
Re: 3070 kaup
Sent: Sun 01. Nóv 2020 14:41
af Klemmi
Það var afhent úr fyrstu sendingu á fimmtudag, veit ekki hvort þau kláruðust eða hvenær þeir fá næstu.
Prófaðu að heyra bara í þeim eftir helgi.
Ef þeir eiga Gainward kortin myndi ég alveg skoða þau. OC kortin eru ekki að gefa nema 1-3% meiri afköst.