Síða 1 af 1

Hvaða router?

Sent: Fim 13. Ágú 2020 15:04
af Hallipalli
Hefur örugglega komið 100x fram en leitin var ekki að gefa mer það upp almennilega

Í dag, basic góður router sem kostar ekki handlegg fyrir aðila sem vil ekkert nörda yfir sig eða neitt þannig.

Með fínt range fyrir um 160fm á einni hæð (alveg möguleiki að bæta ap seinna)

Hvað mynduð þið kaupa myndi giska á 30.000kr max verð en allt skoðað

Re: Hvaða router?

Sent: Fim 13. Ágú 2020 15:43
af B0b4F3tt
Fer alltaf pínulítið í mínar "net" taugar þegar fólk segir router þegar það er virkilega að meina ap. En jæja, ertu að leita þér að nýjum router sem kemur í staðinn fyrir núverandi ISPa router eða ertu að leita þér að þráðlausum punkti sem tengist við núverandi router?

Re: Hvaða router?

Sent: Fim 13. Ágú 2020 16:23
af Hallipalli
B0b4F3tt skrifaði:Fer alltaf pínulítið í mínar "net" taugar þegar fólk segir router þegar það er virkilega að meina ap. En jæja, ertu að leita þér að nýjum router sem kemur í staðinn fyrir núverandi ISPa router eða ertu að leita þér að þráðlausum punkti sem tengist við núverandi router?


Í staðinn fyrir beinin sem maður fær frá fjarskipta fyrirtækinu að kaupa "almennilegan" og eiga

Re: Hvaða router?

Sent: Fim 13. Ágú 2020 17:51
af Starman
Asus hafa reynst mér vel , er með tvo í "rekstri" , heima og í bústað. Heima router er 5 ára RT-N66U , nær 900Mbps.
Þokkalega einfaldir en líka með "advanced" hluti í GUI eins og að stilla Vlan á Wan interface og ágætt VPN support.
Mundi líklega taka þennan ef ég væri að kaupa í dag https://www.computer.is/is/product/netbunadur-router-asus-rt-ac68u-ac1900

Re: Hvaða router?

Sent: Fim 13. Ágú 2020 18:40
af MrIce
Amplifi skotvirkar ef þú ert að leita að "plug n play" kerfi
https://www.computer.is/is/product/netb ... -fi-system

Ef þú vilt fara útí meira "heavy" setup þá mæli ég með unifi.

Re: Hvaða router?

Sent: Fim 13. Ágú 2020 18:47
af fhrafnsson
Ég fékk mér Asus Ac86u (beið eftir tilboði og hoppaði á hann) og sé ekki eftir því. Kostaði um 30 held ég. Mjög öflugt wifi og góðar notendavænar stillingar fyrir vpn og fleira.