Síða 1 af 1

Creative Audigy = ?

Sent: Fim 05. Jún 2003 18:47
af Voffinn
Sælir,

Ég er að fara setja upp Alsa drivera á Rauða Hattinn minn. Er að vonast til að það leysi einhver vandamál sem ég hef í sambandi við hljóðið :)

Málið er, að ég er með Kort sem heitir "Sound Blaster LIVE! Audigy Player", (tekið beint af vörulista tölvuverslunnar). Og driverarnir eru fyrir eftir farandi kort:

Soundblaster Live
Soundblaster Live Platinum
Soundblaster Live Value
Soundblaster Audigy Platinum
Soundblaster Audigy Digital Entertainment
Soundblaster Audigy Gamer

Hvaða driver passar best við kortið mitt ? -Ég er að hugsa hvort Audigy Gamer passi best ?

Sent: Fim 05. Jún 2003 19:09
af MezzUp
þetta er farið að verða soldið pirrandi, Celeron P4, Ti MX, Live Audigy.............

Sent: Fim 05. Jún 2003 19:12
af Voffinn
aha!

Sent: Fim 05. Jún 2003 21:27
af elv
Öll Audigy kortin eru sama sem eins, það er að segja basic kortin.Nöfni gefa til kynna dót með kortunum eins og fleiri tengi í 5 1/2 drive bay og hugbúnað og leiki.
:mrgreen:

Sent: Fös 06. Jún 2003 09:43
af Gothiatek
elv skrifaði:Öll Audigy kortin eru sama sem eins, það er að segja basic kortin.Nöfni gefa til kynna dót með kortunum eins og fleiri tengi í 5 1/2 drive bay og hugbúnað og leiki.

Sammála því. Eitt tips sem ég hef handa þér Voffinn ef þú hefur ekki sett upp Alsa driver áður er að eftir að þú hefur hent honum inn, farðu í alsamixer og taktu mute af :shock: Veit ekki af hverju þeir gera þetta þannig að eftir að þú setur inn driverinn er mixerinn settur á mute þannig að það lítur út fyrir að þetta virki ekki baun!!

Sent: Fös 06. Jún 2003 11:55
af MezzUp
það er skýrt tekið fram þegar búið er að setja Alsa upp, að allar rásir séu mute'aðar :)

Sent: Fös 06. Jún 2003 12:59
af elv
En það er samt svolítið bjánalegt að hafa þá á mute, ef ég vildi ekki fá hljóð þá myndi ég ekki setja driver fyrir kortið ;)

Sent: Fös 06. Jún 2003 13:31
af MezzUp
örugglega til þess að tryggja að maður sé ekki óvart með xmms í gangi og hátalarana í botni þegar maður setur inn driver'inn

Sent: Fös 06. Jún 2003 17:08
af Voffinn
takk fyrir tipinn drengir ;)

ég ætla bara að láta það inn sem hann JReykdal setti sem dæmi í greininni sem ég styðst við sem er á huga, frábær grein, allt um hvernig þú gerir RH9 að multimediavænu kerfi :)