Síða 1 af 3

Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 04. Jún 2020 16:47
af Templar
Sem Intel maður er maður fljótur að redda sér 10Th gen þegar tækifæri gefst.

Núna smá OC svo seinna fyrir 3dMark, skyldi maður ná að skáka 9900K af toppnum?

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 16:55
af jonsig
Toppur í leikjaspilun eða ?

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 16:56
af emil40
hvaða týpa af intel 10th gen er þessi ?

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 17:07
af Templar
10900K

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 17:16
af Templar
jonsig skrifaði:Toppur í leikjaspilun eða ?

Ekkert nema enda leikjatölva, gæti verið að nota i5 4th gen ef maður er bara í ritvinnslunni.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 18:29
af emil40
Templar skrifaði:10900K


til hamingju með örrann

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 18:45
af GuðjónR
Þetta er fallegt!!!!
Til hamingju!

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 19:23
af Hannesinn
Hey, Intel maður. Hvort heldurðu með Coke eða Pepsi? Man. Utd. eða Liverpool? Wham eða Duran Duran? :)

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 19:37
af nonesenze
ég held að ég sé sammála, verð alltaf intel maður, það þarf mikið meira en núverandi ástand til að breyta því

til hamingju með þetta, verður gaman að heyra hvernig þetta klukkast

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 21:07
af jonsig
nonesenze skrifaði:ég held að ég sé sammála, verð alltaf intel maður, það þarf mikið meira en núverandi ástand til að breyta því

til hamingju með þetta, verður gaman að heyra hvernig þetta klukkast


Enda kallaður nonesenze

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 21:17
af rapport
Ég fylgist nota bene ekkert með fótbolta en...

Hef það á tilfinningunni að Manchester = Intel og AMD = Liverpool, ARM og annað = FH í meistaradeildinni

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 21:32
af Templar
Þið eruð alveg frábærir strákar, þetta er í grunninn smá "troll" innlegg, hélt að ég myndi gera menn alveg brjálaða með orðalaginu en ég hafði heldur betur rangt fyrir mér. Ég hef þó átt Intel núna síðan ég átti Athlon FX sem er mjööög langt síðan og þar með telst alveg "intel maður" en ég hef gaman að þessu öllu og sérstaklega góðri samkeppni milli AMD og Intel, vantar helst þriðja aðilann þarna inn.
Vel gert að taka þátt í gleði annarra enda er ég hérna til að sjá hvað aðrir eru að gera sniðugt, fá hugmyndir frá þeim og heyra af annarra reynslu og gleðjast með þeim. Allt jákvætt og skemmtilegt, annars eiga menn að vera bara úti!

Ég mögulega skelli mér á AMD 3900XT þegar hann kemur en eftir að hafa séð CineBench sýnist mér það vera alger winner en ég varð bara að prófa þetta og þegar mér var sagt að þetta væri til á lager á landinu sló ég til. Auðveld uppfærsla, Windowsið ræsti sig, nota bitlocker og það skipti engu. Henti inn INF og nokkrum driverum, ultra fast boot og XMP á minnið, BIOS uppfærsla og öllu lokið á 30 mín og allt tilbúið í notkun.

Mæli ég með þessu? Heldur betur nei, finn engan mun í Red Dead 2 á þessu og gamla 9900K, vit í uppfærslunni, heldur betur ekki!. Gaman, já mjög og það er bara nóg fyrir mig, þetta er gaman og þægilegt inni-áhugamál.
Hendi inn hérna 3dMark TimeSpy fljótlega á þann þráð en ég sit ennþá í 5 sæti fyrir dual GPU með gömlu Titan XP kortunum mínu, það var seinasta SLI ævintýrið, það er virkilega ekki þess virði og geri ég það aldrei aftur, þurfti að láta vin minn senda mér kortin eftir að kaupa þau beint frá Nvidia og shippa þau fyrst ytil hans í USA því þeir shippa ekki beint hingað... meiri vitleysan en gaman :)

Takk fyrir góðar óskir og frábært að sjá hvað menn eru dannaðir og mórallinn góður. Hvað varðar svo Intel og AMD, AMD er alveg að mala þetta og skora stórt í Server markaðnum núna, Intel er eiginlega núna minni aðilinn þó svo þeir séu með stærri markaðshlutdeild á heildina en þá selja þeir aðeins brot af því sem að AMD er að selja.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fim 04. Jún 2020 21:35
af nonesenze
jonsig skrifaði:
nonesenze skrifaði:ég held að ég sé sammála, verð alltaf intel maður, það þarf mikið meira en núverandi ástand til að breyta því

til hamingju með þetta, verður gaman að heyra hvernig þetta klukkast


Enda kallaður nonesenze


kalla sjálfann mig nonesenze sem ég fékk frá nonni fyrir örugglega 20 árum síðan, sem kemur aðvitað frá jón :D
nonesenze er btw alltaf available því nonsense er ekki næstum eins cool :P

nonsense er það sem þú varst að meina held ég?

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Fös 05. Jún 2020 00:43
af Templar
þessi gaur er heitur, heldur 4.7 næstum allan tímann fyrir utan boostið.
En damn allt er smooth.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Sun 07. Jún 2020 02:32
af Templar
Eftir nokkra daga í leikjum get ég staðfest að 10900K heldur sér með 360MM Corsair AIO í ca. 50-70C í Red Dead 2 og Civilization 6, all core er nær allan tímann á 4.89GHz fyrir utan einstaka boost með 1-2 cores í 5.3Ghz, helv. gott. Allt sultusmurt, klárlega leikjaörrinn amk. þar til að 3900XT mætir.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Sun 07. Jún 2020 08:13
af jonsig
Setja hann á custom loop? Þvílíkur hiti

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Sun 07. Jún 2020 16:46
af Templar
Fer í custom þegar RTX 3080 kemur í haust, verður allt vatnskælt aftur.
Þetta er hiti engin spurning, eflaust væri hægt að hafa minni kælingu en þá myndi örrinn einfaldlega throttla sig niður en ég virðist vera með fast all core clock í kringum 4.9GHz. Vegna harðrar samkeppni þá eru bæði AMD og Intel einfaldlega að láta þig fá CPU sem að klokkar sig í botn miðað við ákveðna spennustaðla á móðurborðunum. Betri kæling og hærra klokk og öfugt.
Lít ekki á þetta sem vandamál þó, ef að menn eru að kaupa eitthvað skrímsli þá verða menn að hafa alvöru kælingu og ekkert að því, það á að vera hægt að kaupa V8 rétt eins og eitthvað sparneytt. Menn geta annars bara keypt 3700X eða 10600 og keyrt kalt og létt, þetta er bara val.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Mán 08. Jún 2020 09:28
af Dropi
Vitrænt og gott innlegg, "intel menn" og "amd menn" eru ágætis triggerar. Það er yfirleitt lítil ástæða til að uppfæra sig um eina kynslóð nema þér finnist sjálf athöfnin skemmtileg og menn mega gera eins og þeim sýnist. Skemmtilegt að sjá svona þráð sem endaði ekki í skítkasti :D

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús.

Sent: Þri 16. Jún 2020 00:24
af Sinnumtveir
Templar skrifaði:Sem Intel maður er maður fljótur að redda sér 10Th gen þegar tækifæri gefst.

Núna smá OC svo seinna fyrir 3dMark, skyldi maður ná að skáka 9900K af toppnum?


Hahahaha, þú segir þetta eins og þú sért ... eins og þú sért stoltur! :) :)

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 12. Nóv 2020 17:35
af Templar
Kóngurinn er dauður eftir vel heppnað valdarán.

Brakandi ferskt frá Kísildal, Ryzen 9 5950X og ASRock X570.
Ekki átt AMD síðan fyrsta AthlonFX örgjörvann, þvílík veisla fyrir okkur neytendur í PC græjum.

5950x.PNG
5950x.PNG (922.39 KiB) Skoðað 4965 sinnum

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 12. Nóv 2020 18:12
af jonsig
10th gen strax orðinn expired hjá þér :D

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 12. Nóv 2020 18:30
af Templar
Þetta er bara rugl flott hjá AMD.. alveg geggjað bara, hlakka til að skrúfa þetta í.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 12. Nóv 2020 19:02
af Klemmi
Templar skrifaði:Þetta er bara rugl flott hjá AMD.. alveg geggjað bara, hlakka til að skrúfa þetta í.


Nema ég mun seint fyrirgefa þeim fyrir að innleiða aftur viftur á kubbasettum móðurborðs :(

Þær áttu að haldast dauðar, litlar og grannar viftur, ef þær eru ekki háværar frá upphafi, þá er það bara tímaspursmál.

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 12. Nóv 2020 22:58
af olihar
Klemmi skrifaði:
Templar skrifaði:Þetta er bara rugl flott hjá AMD.. alveg geggjað bara, hlakka til að skrúfa þetta í.


Nema ég mun seint fyrirgefa þeim fyrir að innleiða aftur viftur á kubbasettum móðurborðs :(

Þær áttu að haldast dauðar, litlar og grannar viftur, ef þær eru ekki háværar frá upphafi, þá er það bara tímaspursmál.


Engin vifta hérna... Fyrir utan það er þetta móðurborð rosalegt.

https://www.gigabyte.com/Motherboard/X5 ... -rev-11#kf

Re: Ég er Intel maður - Kóngurinn mættur í hús > Kóngurinn er dauður

Sent: Fim 12. Nóv 2020 23:27
af Fletch