Síða 1 af 1
Í leit af 34-36" widescreen
Sent: Þri 19. Maí 2020 12:47
af ArnarVidars
Daginn,
Ég hef verið í leit af 34-36" widescreen og er í mestu vandræðum að finna skjá sem mér líst á, finnst úrvalið frekar dapurt. Ég er að reyna finna skjá sem er svona sirka sweetspot-ið milli leikja og myndvinnslu skjá. Hef verið að nota BenQ 27" 144Hz TN skjá í nokkur ár, ofur í leikina en hann er vonlaus í myndvinnslu, litirnir er way off. Eru hér menn sem hafa einhverja góða reynslu af skjá sem hægt er að mæla með?
Re: Í leit af 34-36" widescreen
Sent: Þri 19. Maí 2020 13:22
af Dropi
Þessir TN og VA eru vonlausir í myndvinnslu, er ekki almennt notað IPS eingöngu í það orðið? Ég er með 34" Ultrawide 21:9 IPS sem ég er mikið ánægður með.
Re: Í leit af 34-36" widescreen
Sent: Þri 19. Maí 2020 13:39
af ArnarVidars
Já, þetta yrða að vera IPS skjár. Hef verið að horfa á LG 34" IPS skjáinn sem Tölvulistinn er með en vildi bara ath ef einhver væri með hugmyndir eða athugasemdir áður en ég droppa 170K í hann.
Re: Í leit af 34-36" widescreen
Sent: Mið 20. Maí 2020 08:21
af Dropi
Skoðaðu þennan:
viewtopic.php?f=11&t=81691Ég er með LG 34" IPS 1440p skjá heima, og Dell 34" IPS 1440p í vinnuni (eins og er auglýstur nema nýrri útgáfa með USB-C), og þetta er augljóslega sami panellinn. Dell notar LG panela og setur í annað hús. Gætir sparað þér 100 þúsund kall ef þú kaupir þetta notað.
The Dell U3415W features an LG.Display LM340WU2-SSA1 AH-IPS panel
https://www.displayspecifications.com/e ... /49b9c0556
Re: Í leit af 34-36" widescreen
Sent: Mið 20. Maí 2020 11:08
af ArnarVidars
Dropi skrifaði:Skoðaðu þennan:
viewtopic.php?f=11&t=81691Ég er með LG 34" IPS 1440p skjá heima, og Dell 34" IPS 1440p í vinnuni (eins og er auglýstur nema nýrri útgáfa með USB-C), og þetta er augljóslega sami panellinn. Dell notar LG panela og setur í annað hús. Gætir sparað þér 100 þúsund kall ef þú kaupir þetta notað.
The Dell U3415W features an LG.Display LM340WU2-SSA1 AH-IPS panel
https://www.displayspecifications.com/e ... /49b9c0556
Þú ert snillingur, takk