Síða 1 af 1

Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Þri 18. Feb 2020 23:58
af psteinn
Nú er ég að velta því fyrir mér hvaða headset ég ætti að fá mér, hvað eru þið að vinna með?
Svona er staðan á mér: spila bara cs, þarf góðann/sæmilegan mic og langar helst í þráðlaust aftur :crying
Ég er með HyperX eins og er og hef slæma reynslu af Logitech vörum...
Er ekkert almennilegt þráðlaust headset komið út án vandamála eða er mér bara að dreyma hérna haha?

EDIT:
Ég er með Bose qc 35 II fyrir day-to-day líf eins og vinnu og skóla, en vantar headset fyrir teamspeak, cs, youtube o.fl.

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 00:23
af raggzn
Sennheiser game one, hef bestu reynsluna af Sennheiser af öllum þeim sem ég hef átt (logitech, steelseries, razer ofl.) Hægt að kaupa modmic á þau sem ekki hafa mic.

Hérna eru ein : https://pfaff.is/gsp-370-wireless-gaming-bluetooth hef ekki persónulega reynslu af þeim, en þessi lína er mjög þægileg á höfði finnst mér.

Modmic : https://antlionaudio.com/collections/microphones

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 05:38
af MrIce
Nota MX3 í allt og elska þau!
https://www.amazon.com/Sony-Noise-Cance ... B07G4MNFS1
Bara vera með góðan bluetooth móttakara á vélinni og allt er í góðu ;)

Svo bara eins og Raggzn segir, modmic ;)

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 09:09
af rapport
Jabra 75 með dokku, létt þægileg og ég svitna ekki með þau yfir daginn.

Ráða auðvleldega við að vera samtímis tengd GSM og tölvunni, svara með með því að smella á hnapp + muta með því að ýta micnum upp.

https://www.jabra.com/business/office-h ... -evolve-75

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 09:24
af Dr3dinn
Er að nota nokkur headfone:
Audiotech mx50 i vinnu sem er algjört sorp (mæli bara ekki með þessu brandi - margir hér brendir af þessu)
Steelseries heima med mic: micinn er godur en gæðin eru ekekrt spess í þessu brandi (40-50þ ur tL) - fint fyrir tölvuleiki en er ekki að upplifa drauminn í tónlist eða bíómyndum
Sennheiser momentum 1 og 2 : Geggjuð hljóðgæði en engin mic, fannst samt hljóð í tölvuleikjum ekki nýta sér nægjanlega (þ.m.t cs)
bose nýleg: fint sem auka headfone med hljóðeinangrun en finnst þetta vera svolítil dolla í hljóðgæðum þegar kemur að bíómyndahorfi heima fyrir.
Leikja inear er drasl sama hvað þeir reyna selja þér á heimasíðum fyrirtækjanna. (dont do it)

Engin heilagur sannleikur en ég hef prófað mjög mörg headfone gegnum árin og nýleg leikja headfon eru góð fyrir akkúrat það (LEIKI) - en low budget veit ég ekkert hvað er gott, en það læðist að mér að ein headfon fyrir alla notkun gangi ekki lengur ef menn eru að gera þetta af einhverri alvöru.

Bara cs og tölvuleiki, arctic pro eða steelseries mid / high range... jafnvel sennheiser gaming... skoðaðu samt reviews á stóru síðunum adur en thu kaupir eitthvað á uppsprengdu verði hér heima.

Veit að margir eru að nota þessi 50þ þráðlausu artic pro headfone og eru mjög ánægðir með þau i kringum mig. (hef ekki prófað þau)

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 09:59
af psteinn
Kann að meta svörin!
Gleymdi kannski að segja að ég er með Bose qc 35 II fyrir daglegt líf (vinnu/skóla) og ég elska þau svo mikið. En það sem ég var einmit að pæla helst í eru headset til þess að nota við tölvuna, þá er ég að hlusta á tónlíst, video gláp, teamspeak og leikir :)

MrIce skrifaði:Nota MX3 í allt og elska þau!
https://www.amazon.com/Sony-Noise-Cance ... B07G4MNFS1
Bara vera með góðan bluetooth móttakara á vélinni og allt er í góðu ;)

Svo bara eins og Raggzn segir, modmic ;)

Ég hef tekið eftir því að þegar ég nota mic+hljóð á þeim droppa hljómgæðin gríðalega og er algjör þjáning... ég las mig aðeins um þetta og þetta virðist vera fullkomlega eðlilegt þegar kemur að Bluetooth tækni þannig ég held að ég sleppi því.
En ef ég hef rangt fyrir mér þá endilega leiðréttu mig og sendir kannski á mig hvernig bluetooth móttakari myndi virka til þess að hljómgæðin droppa ekki :)

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 10:12
af Hjaltiatla
MrIce skrifaði:Nota MX3 í allt og elska þau!
https://www.amazon.com/Sony-Noise-Cance ... B07G4MNFS1
Bara vera með góðan bluetooth móttakara á vélinni og allt er í góðu ;)

Svo bara eins og Raggzn segir, modmic ;)


Hef heyrt mjög góða hluti um XM3, smá forvitnisspurning hvernig virkar innbyggði mic-inn í heyrnatólunum?

Edit: sýnist Elko bjóða betra verð en að flytja þau inn sjálfur í gegnum Amazon :-k
https://elko.is/sony-headphones-ae-bt-nc-black-41578
Það er hins vegar önnur ódýrari týpa til sýnist mér:https://www.amazon.com/WH-1000XM3-Wireless-canceling-Headset-International/dp/B07H2DBFQZ/ref=pd_cp_23_1/134-8102821-9304665?_encoding=UTF8&pd_rd_i=B07H2DBFQZ&pd_rd_r=f7d36f03-ab8a-491d-8a00-6859b9942017&pd_rd_w=wdFDu&pd_rd_wg=24mpb&pf_rd_p=e44de6bb-cc27-4696-9c22-3a1bddefabbd&pf_rd_r=R8N8CZTR5Y52ZK6M9MKR&psc=1&refRID=R8N8CZTR5Y52ZK6M9MKR

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 14:29
af MrIce
Hjaltiatla skrifaði:Hef heyrt mjög góða hluti um XM3, smá forvitnisspurning hvernig virkar innbyggði mic-inn í heyrnatólunum?

Edit: sýnist Elko bjóða betra verð en að flytja þau inn sjálfur í gegnum Amazon :-k
https://elko.is/sony-headphones-ae-bt-nc-black-41578
Það er hins vegar önnur ódýrari týpa til sýnist mér:https://www.amazon.com/WH-1000XM3-Wireless-canceling-Headset-International/dp/B07H2DBFQZ/ref=pd_cp_23_1/134-8102821-9304665?_encoding=UTF8&pd_rd_i=B07H2DBFQZ&pd_rd_r=f7d36f03-ab8a-491d-8a00-6859b9942017&pd_rd_w=wdFDu&pd_rd_wg=24mpb&pf_rd_p=e44de6bb-cc27-4696-9c22-3a1bddefabbd&pf_rd_r=R8N8CZTR5Y52ZK6M9MKR&psc=1&refRID=R8N8CZTR5Y52ZK6M9MKR


Ég skal játa það á mig, ég nota ekki mic'inn á heyrnatólunum því ég er með yeti blue sjálfur, en þegar ég nota heyrnatólin fyrir síman heyrir fólk allavegana properly í mér, enginn kvartað undan gæðum eða heyra illa í mér, allavegana ekki enn :megasmile

psteinn skrifaði:Ég hef tekið eftir því að þegar ég nota mic+hljóð á þeim droppa hljómgæðin gríðalega og er algjör þjáning... ég las mig aðeins um þetta og þetta virðist vera fullkomlega eðlilegt þegar kemur að Bluetooth tækni þannig ég held að ég sleppi því.
En ef ég hef rangt fyrir mér þá endilega leiðréttu mig og sendir kannski á mig hvernig bluetooth móttakari myndi virka til þess að hljómgæðin droppa ekki :)


Já, því miður virðist bluetooth bara hafa "2 rásir" per say til að koma info í gegnum, annaðhvort stereo + no mic eða mono + mic :(
Hljómgæðin droppa í mono þegar ég nota heyrnartólin til að svara símanum líka en annars eru gæðin mjög góð. Þetta er -eini- mínusinn sem ég finn við þessi heyrnartól en ég nota þau samt óþarflega mikið á dag \:D/

Spurning um að fá sér 1 sett fyrir PC / PS4 / XBOX og annað fyrir símann? :P

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 20:24
af Ratorinn
Hef litla reynslu af headsets en mæli amk með að skoða DTS Sound Unbound appið í windows 10. Veitir dts:x/dts headphone:x stuðning (yfir windows spatial sound). Finn ruglaðan mun á sound spotting í cs:go með þessu.

Dolby access (atmos for headphones) appið virðist betra fyrir myndefni.

https://sourceforge.net/projects/hesuvi/ getur einnig skoðað þetta ef þig langar að fara lengra.

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 22:36
af J1nX
er að nota Sennheiser Game Zero og gjörsamlega elska þau, alveg lokuð (heyri ekki baun í kringum mig þegar ég er með þau á mér) en get samt verið með þau á hausnum klukkutímunum saman að spila leiki/hlusta á tónlist, fæ enga þreytuverki í eyrun eða neitt. 5stjörnur af 5

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Mið 19. Feb 2020 23:49
af mercury
Fékk mér nýlega Beyerdynamic mmx300 v2
https://www.amazon.de/beyerdynamic-Over ... B06WGVJ9GY
virkilega þægileg. Frábært sound og góður mic.

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Fim 20. Feb 2020 06:42
af Viktor

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Fim 20. Feb 2020 08:59
af dISPo
Ég er með Steelseries Arctis 7 (þráðlaus) og fíla þau vel og þau fá góða dóma. Annars er Pro útgáfan víst enn betri.

Re: Hvaða headset eru menn að vinna með?

Sent: Fim 20. Feb 2020 13:19
af Jon1
Ég endaði sjálfur með blue snowball a boom arm fyrir aftan skjáinn og svo er ég með hd660s en með stand alone mic ertu set í hvaða headphones sem er í þínu Budget. Rs175/rs185 eru þráðlaus og 175 hljóma vel miðað við þráðlaus