Síða 1 af 1
Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 08:49
af Hrímir
Held að mörg okkar hérna séum alltaf að spá og spöggulera í hardware og íhlutum. Nú kallar konan mín þessa síðu einkamál.is fyrir mig
.
Ég hef ekki pantað mikið erlendis frá af íhlutum í pc.
Er þetta yay or nay?
Hafið þið góða eða slæma reynslu af þessu?
Er einhver verslun eða síða sem hefur reynst betri en aðrar?
Væri rosalega til í að heyra ykkar reynslu.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 08:53
af Ingisnickers86
Hef notað Computer Universe, þýsk síða, sem hefur reynst mér mjög vel.
https://m.computeruniverse.net/en/
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 10:59
af Danni V8
Draga þessir aðilar 19% vsk af þegar varan er send til Íslands t.d.?
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 13:25
af Hizzman
Hvernig er sendingarkostnaður?
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 15:02
af frappsi
Danni V8 skrifaði:Draga þessir aðilar 19% vsk af þegar varan er send til Íslands t.d.?
Ég setti nokkrar vörur í körfu og fór í checkout as guest og já, þeir virðast draga 19% frá uppgefnu verð. Sendingarkostnaður með DHL líka frekar sanngjarn sýnist mér.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 18:48
af Bourne
overclockers.co.uk hef reynst mér best þegar ég panta til Íslands að utan.
Þú sérð verðið með frádregnum vsk þegar þú velur shipping í körfunni.
Stundum ekki nema 2-3 dagar í shipping.
Ég prófaði scan.co.uk einu sinni, mæli ekki með.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 19:51
af Hrímir
Þarf að panta smá og ætla að panta af overclockers og computer universe á sama tíma. Smá compare.
Taka hraðsendingu á báða.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Sun 26. Jan 2020 22:19
af BudIcer
Bourne skrifaði:overclockers.co.uk hef reynst mér best þegar ég panta til Íslands að utan.
Þú sérð verðið með frádregnum vsk þegar þú velur shipping í körfunni.
Stundum ekki nema 2-3 dagar í shipping.
Er að setja saman rysen build þannig að ég skoðaði hvað örgjörvi, nvme og ram kostuðu þarna. Komið hingað með vask, 151k...nákvæmlega sömu vörur hjá tölvutek? 214k. Þannig að ég mun skoða þessa síðu ítarlega á næstunni.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Mán 27. Jan 2020 00:16
af Emarki
Mér finnst verðlagning hjá íslenskum búðum bara vera allt í lagi þegar kemur að þessum helstu íhlutum.
Ég fer oft í rannsóknarleiðangur á verðum og fæ yfirleitt út að það sé betra að kaupa innanlands.
Þá meina ég ekki tölvutek og tölvulistann.
Ég reyndar keypti skjá á amazon.de í desember því það var ekki hægt að fá hann hérlendis.
Kv. Einar
Re: Erlendar verslanir
Sent: Mán 27. Jan 2020 15:43
af Ingisnickers86
Hrímir skrifaði:Þarf að panta smá og ætla að panta af overclockers og computer universe á sama tíma. Smá compare.
Taka hraðsendingu á báða.
Heyrðu, endilega segðu okkur hvað kemur út úr því
Re: Erlendar verslanir
Sent: Mán 27. Jan 2020 19:06
af Bourne
Yfirleitt er verðið mjög svipað þegar þú ert búinn að reikna vsk og sendingarkostnað, þ.e.a.s. ef þú skoðar verðin í litlu búllunum heima.
Hinsvegar ef þú ert að taka marga hluti þá lækkar kostnaður hlutfallslega, tók íhluti í 3 tölvur frá OCuk fyrir nokkrum árum og það kom vel út.
Myndi samt sleppa því að taka hluti eins og kassa, einfaldlega ekki þess virði að borga 20k í shipping fyrir hlut sem kostar 20k. (En svo vilja alvöru menn bara custom SFF kassa að sjálfsögðu
).
Re: Erlendar verslanir
Sent: Mán 27. Jan 2020 19:52
af addon
Bara svona ef menn vilja heyra um fleiri góðar verslanir þá mæli ég með
highflow.nl... ég panntaði kassa og eitthvað fleira (kælingu, sleeved kapla) og fékk það sent heim að dyrum á innan við viku fyrir 45 evrur... og þetta var huge kassi utan um tölvukassann og restina af dótinu (á stærð við 3-4 turnkassa), og sendingarkostnaðurinn hækkaði ekkert þótt ég bætti þessum hlutum við.
þeir voru líka með ódýrasta verðið á þeim kassa sem mér langaði í og það fylgdi sleikjó með sendingunni
Re: Erlendar verslanir
Sent: Mán 27. Jan 2020 23:27
af Hizzman
var að panta á computeruniverse.
mITX móðurborð og kassi. verð með sendingarkostnaði 138evrur eða ca 19þ + ísl gjöld
sendingin er ca 25 evrur
Þetta lítur bara vel út,
Re: Erlendar verslanir
Sent: Þri 28. Jan 2020 16:17
af Hlynzi
Ég renni yfir verðin heima vs. úti og ákveð hvort það sé nóg til að réttlæta pöntunina erlendis frá, einnig vinn ég mikið í noregi sem er frekar þægilegt, raftæki eru á sérlega góðu verði hér ásamt því að ég fæ VSK til baka svo ég hef keypt slatta af tölvudóti hér úti.
Í gegnum tíðina líka reglulega á hinum og þessum vefsíðum, hef hreinlega ekki lent í vandræðum með það ennþá, en ekki gleyma sendingarkostnaðinum og vsk. ofan á allt saman.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Mið 05. Feb 2020 16:05
af Hizzman
Hizzman skrifaði:var að panta á computeruniverse.
mITX móðurborð og kassi. verð með sendingarkostnaði 138evrur eða ca 19þ + ísl gjöld
sendingin er ca 25 evrur
Þetta lítur bara vel út,
komið! tók 9 daga.
Re: Erlendar verslanir
Sent: Fim 06. Feb 2020 18:48
af Sam
Ég pantaði frá overclockers.uk kl 23 í gærkvöldi "miðvikudagur" fékk svo póst frá þeim kl 13:30 í dag að búið væri að senda pöntunina af stað, fékk svo sms frá DHL Express kl 16:00 í dag að áætluð afhending á pakkanum væri á morgun föstudag.
Það er ekkert verið að draga lappirnar !
Re: Erlendar verslanir
Sent: Fös 07. Feb 2020 08:12
af snakkop
overclockers.co.uk mér finnst þeir bestir ég pantaði aflgjafi frá þeim hann var fljótari koma enn elko pantaði frá þeim sama tíma
Re: Erlendar verslanir
Sent: Fös 07. Feb 2020 08:23
af Njall_L
+1 á Overclockers.co.uk. Panta flest allt tölvuót þaðan og það hefur alltaf verið 2-5 daga á leiðinni
Re: Erlendar verslanir
Sent: Lau 22. Feb 2020 02:38
af mercury
ætla ekki að mæla með
https://www.computeruniverse.net/de/pantaði minni þaðan 7febrúar. Fóru frá Þýskalandi gegnum dhl 11febrúar. Nú er kominn 22 feb og tracking hefur ekkert uppfærst síðan þá.
Shipping átti að fara frá DHL yfir á póstinn. Miðað við það sem ég er að heyra þessa dagana þá er líkega Pósturinn að drulla eða pakkanum hefur einfaldlega verið stolið. Hef pantað nokkrum sinnum í gegnum dhl alla leið og aldrei vesen. 3-5 virkir dagar.