Síða 1 af 2
viftan á skjákortinu mínu er að FLIPPA
Sent: Mið 27. Apr 2005 00:24
af MuGGz
já góða kvöldið
ég er að verða alveg vel súper pirraður á viftunni á skjákortinu mínu.
það er bara stundum eins og það sé að urra á mig, koma svo mikil læti
Vitiði hvar ég get fengið viftu á kortið ? og já, verður að vera lííítil til að þetta fitti í shuttle kassann hjá mér
enn helst eins silent og hægt er!
radon 9600pro
Sent: Mið 27. Apr 2005 13:30
af vldimir
Er í svipuðum vandræðum með mína viftu - er með X800XT PE og er með Iceberg kælingu á þessu - kælir mjög vel er hrikalega hávær. Ég keypti mér fyrst Zalman vifturnar en þær voru of stórar fyrir shuttle kassana.
Sent: Mið 27. Apr 2005 13:32
af Gestir
Shuttle er bara einfaldlega ekki málið strákar
ég keypti netta kælingu á G4 Ti 4200 kortið mitt í haust í start.is og hún var alveg silent...
Sent: Mið 27. Apr 2005 13:33
af vldimir
Af öllum þeim kössum/tölvum sem ég hef átt finnst mér þessi vera sú skemmtilegasta og besta. Pínulítið og flott, aldrei verið sáttari með tölvu. Á þessu commenti þá veit ég fyrir víst að þú hefur aldrei prófað Shuttle.
Sent: Mið 27. Apr 2005 13:59
af gnarr
taktu bara viftuna úr sambandi. það eru svoan 99.9% líkur á að heatsinkið eitt sé nóg kæling.
ég er td. með 9550 í mínum shuttle, og það er overclockað í 445/245 (úr 250/200), og ég er búinn að taka viftuna úr sambandi. ég hef aldrei nokkurntíman séð svo mikið sem punkt af artifact.
Sent: Mið 27. Apr 2005 14:15
af Pandemic
Ertu búinn að gefa henni að borða?
Nei annars ef ég væri þú kipptu henni bara úr sambandi
Sent: Mið 27. Apr 2005 14:42
af Icarus
Pandemic skrifaði:Ertu búinn að gefa henni að borða?
Nei annars ef ég væri þú kipptu henni bara úr sambandi
plz snorri minn nennirðu að sleppa því að nota þessi size tög
leiðinlegt að lesa þetta
Sent: Mið 27. Apr 2005 14:42
af MuGGz
okey, ég prófa að taka hana úr sambandi.
og já, ÓmarSmith, ég er sammála valda, þetta er mesta snilld sem ég hef átt
kælinginn er ótrúleg, algjört oc monster, og heyrist sama sem ekkert í þessu, fyrir utan já *hóst* blessuðu skjákortsviftuna mína
Sent: Mið 27. Apr 2005 14:50
af kristjanm
Ég er með Powercolor X700 Pro kort hérna sem er með mjög háværri viftu.
Haldiði að ég geti tekið hana úr sambandi?
Edit: Já og skjákortið er ekkert overclockað, og mjög sjaldan spilaðir leikir nema að kellingin fer einstöku sinnum í Sims 2.
Sent: Mið 27. Apr 2005 15:31
af gnarr
það er engin leið að komast að því nema að prófa.
oftast eru þessar viftur að gera mjög lítið gagn, sérstaklega ef það er kassavifta sem að blæs hvorteð er eitthvað á skjákortið.
en eins og ég sagði. þú verður bara að prófa. í versta falli færðu artifacts og þarft að tengja viftuna aftur.
Sent: Mið 27. Apr 2005 16:33
af Gestir
isss
lítið og ferlega Svavar Örn legt eitthvað
he he
Sent: Mið 27. Apr 2005 17:10
af zaiLex
Er í lagi að taka viftuna á x850xtpe úr sambandi? Það væri töff að sleppa við hljóðið. Býst alveg við sama svari, en vill bara vera 100% viss að ég sé ekki að gera eitthvað hættulegt.
Sent: Mið 27. Apr 2005 19:05
af MuGGz
VÁÁ þvílíkur munur haha
ahhh the silance
Sent: Mið 27. Apr 2005 19:06
af vldimir
Ætla að prófa að taka mína úr sambandi og fylgjast með hitanum þegar ég er í leikjum, vona að þetta virki, tölvan mín væri alveg hljóðlaus ef það væri ekki þessa ansans skjákortsvifta.
Sent: Mið 27. Apr 2005 19:15
af MuGGz
amm
eina sem heyrist í núna er viftan sem er á móðurborðinu, sem er ekki mikið, heyrist ekkert í örgjörvaviftunni.
annars hlítur einhver gúrú þarna úti að vera búin að framleiða silent viftu fyrir skjákort sem maður getur notað í shuttle kassanum...
Sent: Mið 27. Apr 2005 23:18
af TechHead
Strákar mínir, vera bara með vatn eða eitthvað svona
http://task.is/?webID=1&p=93&sp=139&ssp=146&item=1959
Sent: Mið 27. Apr 2005 23:27
af vldimir
Getum ekki verið með vatn þar sem að við ferðumst báðir mjög mikið með tölvurnar okkar og er það ein af aðalástæðum okkar beggja býst ég við afhverju við fengum okkur hana þannig held að vatnskæling sé ekki alveg málið. Og Artic Silencer viftan er of stór þannig við myndum þyrfa að skera út úr hliðinni á kassanum svo hún kæmist fyrir, það hefur verið gert og var póstað link á gaur sem var með Shuttle kassa og Artic Silencer og skar bara útur hliðinni svo þetta kæmist fyrir.
Sent: Fim 28. Apr 2005 00:16
af MuGGz
aha, true valdi
baaaara þægilegt uppá lön og flutninga
og ekki skemmir fyrir hvað örgjörvakælinginn er öflug og þægilegt að oc í þessu
Sent: Fim 28. Apr 2005 07:28
af kristjanm
Ég tók viftuna úr sambandi og keyrði 3DMark05 og fékk enga arfifacts. Á eftir að prófa að keyra einhverja stöðuga 3d vinnslu en býst við að þetta haldist stöðugt.
Sent: Fim 28. Apr 2005 09:45
af gnarr
zaiLex skrifaði:Er í lagi að taka viftuna á x850xtpe úr sambandi? Það væri töff að sleppa við hljóðið. Býst alveg við sama svari, en vill bara vera 100% viss að ég sé ekki að gera eitthvað hættulegt.
Það getur verið að það virki, en mér þykir það ólíklegt, þar sem að þeta er meira en bara heatsink. þetta er í rauninni helt kælikerfi, og það er plast yfir því (sem að leiðit hita næstum ekkert) þannig að hitinn myndi lokast inni. Hitinn lokast ekki inni á hinum kortunum vegna þess að þau eru með "opna" kælingu.
Þar að auki ertu með 16 pípu kort, á meðan þetta eru 4-8pípu kort sem ég hef gert þetta á.
Fylgstu allaveganna vel með hitanum ef þú prófar þetta.
Sent: Þri 03. Maí 2005 00:41
af Enemy
Þetta er byrjað að koma hjá mér ógeðslegt hljóð viftan er virkilega f*ckd up, ég vakna við þetta á nóttunni og slekk á tölvunni...
er reyndar að fá mér Radeon x850
og hendi þessu korti beint í rusli.
Sent: Þri 03. Maí 2005 09:51
af Major Bummer
er ekki nokkuð safe að gera þetta á MX440.....
Sent: Þri 03. Maí 2005 10:14
af gnarr
ég myndi telja það
ég var með mitt mx440 viftulasut frá þvi ég fékk það og þangað til 9700kortið tok við af þvi
Sent: Þri 03. Maí 2005 10:36
af Yank
Það að taka viftu á skjákorti úr sambandi er að bjóða hættunni heim!!. Þær eru ekki þarna sem skraut. Finnið aðrar lausnir ef þær eru til vandræða.
Sent: Þri 03. Maí 2005 11:13
af MuGGz
Yank skrifaði:Það að taka viftu á skjákorti úr sambandi er að bjóða hættunni heim!!. Þær eru ekki þarna sem skraut. Finnið aðrar lausnir ef þær eru til vandræða.
útskýrðu hvernig maður er að bjóða hættunni heim með að taka viftuna úr sambandi ??
ef að hitinn helst alltaf undir hættumörkum, og þú færð ekkert artifacts ...
hvað getur þetta þá verið að skemma ??
t.d. 9600 kortinu mínu er hitinn að idle í 35° og fer mest uppí 63° í full load og fæ aldrei neitt artifacts ... (Er btw
EKKI með viftuna í gangi)
og við erum að tala um að taka viftuna úr sambandi á þessum 4 pípu og 8 pípu kortum, ekki þessum öflugu s.s. 6800gt/ultra og x800 kortunum sem eru 16 pípu.