Síða 1 af 1

mx510

Sent: Fim 21. Apr 2005 01:51
af Olib
Já, ég er að lenda í því í annað skiptið á sirka 3 vikum að músín mín er að deyja, laserinn slekkur á sér og bla bla bla

Ég verslaði mér nýja mús eftir að sú fyrri bilaði og allt var í lagi, Ég prufaði að formatta til að athuga usb dæmið, allt það er í lagi, en það er eins og það sé sambandsleysi, hún er að detta út alveg í nokkrar sek svo kemur ´hun aftur inn. alveg endalaust.

Hefur einhver annar lent í þessu ?

Sent: Fim 21. Apr 2005 02:38
af Mysingur
búinn að prufa að tengja hana í PS/2 tengið? búinn að prófa hana í annarri tölvu?
ef það virkar ekki þá er músin þín líklegast ónýt

Sent: Fim 21. Apr 2005 12:27
af Olib
já búinn að prufa ps2 tengið...

Sent: Fös 22. Apr 2005 00:07
af Major Bummer
ég hef bara lent í þessu med ms intellimouse explorer 3.0 , heimski tölvulistinn sagði að það væri ekkert að henni svo ég þurfti að kaupa nýja. Eftir það hefur þetta ekki gerst aftur með nýju músina þeas.

Sent: Sun 24. Apr 2005 11:57
af hilmar_jonsson
Ég á mx 510 og eintak mitt hefur aldrei sýnt á sér veikan blett.

Sent: Sun 24. Apr 2005 12:24
af Andri Fannar
Sama hér

Sent: Sun 24. Apr 2005 13:13
af fallen
hilmar_jonsson skrifaði:Ég á mx 510 og eintak mitt hefur aldrei sýnt á sér veikan blett.


Sama hér, ég ætla samt að skipta henni út fyrir MX518 þegar hún mætir til landsins :P

Sent: Mán 25. Apr 2005 17:15
af Vilezhout
fallen skrifaði:
hilmar_jonsson skrifaði:Ég á mx 510 og eintak mitt hefur aldrei sýnt á sér veikan blett.


Sama hér, ég ætla samt að skipta henni út fyrir MX518 þegar hún mætir til landsins :P


hafiði eitthvað prófað razer mýs ?

átti boomslang kúlumús fyrir nokkrum árum og smellti mér svo á diamondback fyrir 2-3 mánuðum verð að segja að hún slái 510 við bæði hvað varðar þægindi og svo er hún með 1600 dpi

Sent: Þri 26. Apr 2005 00:04
af fallen
Vilezhout skrifaði:hafiði eitthvað prófað razer mýs ?

átti boomslang kúlumús fyrir nokkrum árum og smellti mér svo á diamondback fyrir 2-3 mánuðum verð að segja að hún slái 510 við bæði hvað varðar þægindi og svo er hún með 1600 dpi


Hef reyndar aldrei prófað razer, looka ekki það þægilegar.. hef verið með mx500 og mx500 og sé engann tilgang til að skipta úr þessari seríu þegar mx518 mætir því mér líkar mjög vel við þessar mýs og þær eru heavy þægilegar, sérstaklega þegar maður er búinn að taka lóðið úr.
Nokkur SS úr nýja "mouseware" sem er nú "SetPoint" með mx518 og lookið á tækinu:

Sent: Þri 26. Apr 2005 00:44
af Vilezhout
byrjað að slefa í áttina að razer hugbúnaðinum :D

enn t.d. finnst helst vanta með t.d. logitech mýs það er að stilla næmni lóðrétt og lágrétt t.d.

Sent: Þri 26. Apr 2005 12:35
af CraZy
þeta voru myndir af logitech hugbunaðinum reyndar..

Sent: Mið 18. Maí 2005 11:14
af zaiLex
Tölvulistinn er kominn með mx518 en hún kostar 6.990 þar, 2x verðið á mx510.. sigh

Sent: Mið 18. Maí 2005 14:42
af fallen
Fyrst þú ákvaðst að svara svona gömlum.. þá what the hell
att.is eru líka komnir með, 6.450 kr :\
Ætla að bíða þangað til að fleiri verslanir, svosem tölvuvirkni og start fái þessar mýs, þá lækkar verðið.

Sent: Mið 18. Maí 2005 21:03
af MezzUp
Svona svona, verðum við ekki að fara að lækka standarandinn varðandi hvað teljast gamlir póstar.
Upprunlega voru menn skammaðir af því að þeir voru að svara 1-2 ára gömlum þráðum með tilgangslausum svörum. Það er nú ekki einusinni mánður síðan þessi var virkur og svarið átti vel við.
fallen, er ekkert að skamma þig neitt sérstaklega. Ég hef tekið eftir nokkrum svona tilfellum nýlega, og finnst menn vera heldur of ýktir.