Síða 1 af 1

Dual Channel

Sent: Þri 19. Apr 2005 22:18
af Veit Ekki
Veit einhver hvort að það sé hægt að nota Dual Channel á þetta minni?

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1149

Sent: Þri 19. Apr 2005 22:54
af Mysingur
já ég myndi nú halda það

Sent: Þri 19. Apr 2005 23:02
af Snorrmund
er ekki hægt að nota dual channel á öll minni :?

Sent: Þri 19. Apr 2005 23:57
af MezzUp
Jú, ég hefði haldið það.
Enda er ekki talað um að „keyra dual channel á minnunum“ heldur „láta móðurborðið keyra minnin í dual channel“

Sent: Mið 20. Apr 2005 01:04
af hilmar_jonsson
En ef maður er með eitt par af minnum í tölvunni, getur maður þá bætt við öðru og verið þá með tvö pör á einhverjum móðurborðum?

Sent: Mið 20. Apr 2005 01:13
af vldimir
Og verið þá með 2x Dual channel? Fourble channel? Ertu þá að tala um að vera með 4x 256 kubba eða 4x 256 kubba og allir á Dual channel?

Held að það sé ekki hægt - geta bara 2 kubbar að ég held runnað á dual channel.

Sent: Mið 20. Apr 2005 04:03
af urban
vldimir skrifaði:Og verið þá með 2x Dual channel? Fourble channel? Ertu þá að tala um að vera með 4x 256 kubba eða 4x 256 kubba og allir á Dual channel?

Held að það sé ekki hægt - geta bara 2 kubbar að ég held runnað á dual channel.



dual channel virka á báðar rásirna í mínu móbói

(það er 2 pör) ég er t.d. með 4 x 256 og það runnar á dual channel

Sent: Mið 20. Apr 2005 07:44
af kristjanm
vldimir skrifaði:Og verið þá með 2x Dual channel? Fourble channel? Ertu þá að tala um að vera með 4x 256 kubba eða 4x 256 kubba og allir á Dual channel?

Held að það sé ekki hægt - geta bara 2 kubbar að ég held runnað á dual channel.


Það er ekki "fourble" heldur quadruable :)

Sent: Mið 20. Apr 2005 07:51
af gnarr
MezzUp skrifaði:Jú, ég hefði haldið það.
Enda er ekki talað um að „keyra dual channel á minnunum“ heldur „láta móðurborðið keyra minnin í dual channel“


Það er eiginlega að verða úrelt núna, þökk sé amd. það er frekar "láta minnisstýringuna keyra minnin í dual channel" ;)

vldimir skrifaði:Og verið þá með 2x Dual channel? Fourble channel? Ertu þá að tala um að vera með 4x 256 kubba eða 4x 256 kubba og allir á Dual channel?

Held að það sé ekki hægt - geta bara 2 kubbar að ég held runnað á dual channel.


Það er hægt að vera með 4 kubba á dual channel, en þeir eru "bara" á dual channel, ekki á "quadro" channel.

Þetta virkar þannig að það eru 2 kubbar saman á rás, og 2 rásir. Channel A og Channel B.

Sent: Mið 20. Apr 2005 13:30
af vldimir
Alrighty, þá veit maður það, alltaf eitthvað sem maður lærir nýtt á vaktinni ;)

Sent: Mið 20. Apr 2005 14:36
af Veit Ekki
Ég er með 1 svona 512 mb minniskubb http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1149
mynduð þið segja að tölvan myndi skila mikið meiri afköstum ef ég myndi bæta við einum í viðbót og hvort það sé alveg 5450 kr. virði. Er með
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1253 móðurborð
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=1051
örgjörvi
1 120 GB harðan disk og 1 80 GB

Sent: Mið 20. Apr 2005 16:36
af Stutturdreki
Ekkert víst að þú takir eftir því :)

Ég fór úr single channel minni með 2.5-3-3-8 í dual channel 2.5-2-3-5 og það var 1.18% bæting í 3DMark 03 og 2.52% bæting í 3D Mark 05 sem reyna náttúrulega mest á skjákort þannig að þetta virðist ekki breyta svakalega miklu í td. leikjum. Reyndar 13.3% bæting í HL2 Bench, veit reyndar ekki hversu áreiðanlegt það er.. (keyrði bara einu sinni eitt demo í með hvoru minninu)

Hinsvegar var 24.8% aukning í PC Mark 04 Memory score, 42.4% bæting í Everest Memory Write og 44.1% bæting í Everest Memory Read. Svona í daglegri tölvunotkun tek ég ekki eftir þessu en mér líður ekkert smá betur að vita að minnið sé að keyra í dual channel :)