Síða 1 af 1
Spurning til eigenda nVidia 6800GT.
Sent: Fim 14. Apr 2005 15:07
af emmi
Þeir sem eiga svona kort, eruði til í að segja mér hvaða upplausnir driverarnir frá nvidia styðja fyrir þetta kort? Ég er aðallega að spá í með Widescreen stuðning.
Takk fyrir.
Sent: Fim 14. Apr 2005 22:05
af hahallur
Þeir styðja alla skjái nema Apple 30"Cinema display og kannski einhverja pro skjái, but they are unknow to us
Sent: Fös 15. Apr 2005 08:08
af gnarr
þau styðja uppí 2048*1536
Sent: Fös 15. Apr 2005 10:11
af emmi
Veit að kortin styðja þessa upplausn, en það gildir annað þegar kemur að driverunum. T.d. þá er upplausnin 1680x1050 ekki í boði í Catalyst.
Sent: Fös 15. Apr 2005 13:32
af Major Bummer
þú getur notað widescreen med ati kortum með omega driverunum
Sent: Fös 15. Apr 2005 13:37
af hahallur
Þú átt líka allveg að geta það með catalyst driver-um.
Ertu með skjá sem er 1680-1050 við tölvuna ?
resolution...
Sent: Fös 15. Apr 2005 15:35
af Digerati
Ég er að keyra mitt 6800GT PCI-X í Widescreen upplausnum á 20.1" LCD og það eru engin vandamál með það. 1680x1050 kemur út einsog rjómi á vöfflur...
Sent: Fös 15. Apr 2005 15:38
af gnarr
PCIe meinaru
Sent: Fös 15. Apr 2005 17:35
af hahallur
Skil ekki hvað þetta er með að fólk sjái ekki mun á PCI-X og PCI-E
Sent: Lau 16. Apr 2005 00:17
af emmi
Amm, skjárinn styður þessa upplausn, vandamálið liggur í driverunum. Ég talaði við einn gaur úr Catalyst teyminu, hann bjóst við að þetta kæmi mögulega í næstu eða þar næstu útgáfu. Ég skil þetta bara ekki því að Dell 2005FPW skjárinn er með native 1680x1050 upplausn og væntanlega margir ATI eigendur í vandræðum þar af leiðandi. Það er hægt að fiffa þetta til með einhverju tóli en mér finnst bara að viðskiptavinir eigi ekki að þurfa að standa í þessu.
Sent: Lau 16. Apr 2005 00:55
af gnarr
þú verður bara að kaupa betri skjái..