Síða 1 af 1

sér ekki diskana í drifinu !

Sent: Sun 10. Apr 2005 21:11
af örninn
hvað gæti verið málið ef að geisladrifin sjá ekki diskana í drifinu , byrjaði alltí einu að gerast að þegar að ég set disk í þá segir tölvan bara að drifið sé tómt.

Sent: Sun 10. Apr 2005 21:13
af gnarr
það er mjög líklegt að drifið sé bara ónýtt. Prófaðu annars að skipta um molex kapal í drifinu. Ég lenti í því að það var sambandsleysi í molex kappli hjá mér, þannig að það drapst á drifinu og það startaði sér aftur en virkaði ekki.

Sent: Sun 10. Apr 2005 21:46
af so
Hef líka lent í þessu en þá bara með ákveðna tegund af skrifanlegum diskum. Keypti mér 50 diska stand af plextor diskum sem nýlegt drifið hjá mér sá bara alls ekki, sá alla aðra diska, en drifin í hinni borðvélinni á heimilinu og ferðatölvunni sáu diskana. Gaf svo kunningja mínum staflan og hann hefur ekki kvartað.