Síða 1 af 2

Rafmagnið sló út og núna virkar vélin ekki

Sent: Lau 09. Apr 2005 14:30
af MuGGz
jæja, óheppnin heldur ámfram að fylgja mér það er víst ..

Núna áðan sló rafmagnið út og kom strax inn aftur, og núna blikkar ljósið á móðurborðinu bara og í takt við blikkið tístir aflgjafinn...

Er aflgjafinn minn steyktur eða hvað getur verið að ?

kveðja
einn MEGA pirraður!

Sent: Lau 09. Apr 2005 14:48
af Mr.Jinx
Lol það er altaf eitthvað svona steikt að gerast hjá þér. en já gæti verið Psu btw ef vélin er skemmd Þá ferðu bara til þessa gaura og lætur þá borga þér nýja vél. :P

Sent: Lau 09. Apr 2005 14:56
af axyne
prufaðu að slökkva á aflgjafanum og bíða í nokkrar min (5-7)og kveikja síðan aftur.

Sent: Lau 09. Apr 2005 15:52
af MuGGz
axyne skrifaði:prufaðu að slökkva á aflgjafanum og bíða í nokkrar min (5-7)og kveikja síðan aftur.


virkar ekki :(

að vísu blikkaði ljósið ekki fyrst þegar ég setti snúruna í powersupplyið, enn það var samt alltaf svona leiðinlegt suð eithvað í aflgjafanum, þannig ég prufaði að kveikja á vélinni.

vélin fór í gang enn kveikti ekki á skjánum, enn svo slökknaði á tölvunni eftir svona 5sek og ljósið fór að blikka aftur.

vélin er á leiðinni í tölvuvirkni á mánudaginn

Sent: Lau 09. Apr 2005 16:26
af ponzer
Held að við allir ættum að safna í bauk og gefa Steina nýja vél, hann er svo óheppinn !!!

Sent: Lau 09. Apr 2005 16:52
af gnarr
það endar ábyggilega með að þessi vél verður dýrari en hin..


Mr.Jinx skrifaði:en já gæti verið Psu btw ef vélin er skemmd Þá ferðu bara til þessa gaura og lætur þá borga þér nýja vél.


hvernig er það búðinni að kenna að það kom of há spenna inná PSU-inn ?
Hinsvegar gæti ég trúað að þetta gæti fallið undir heimilistryggingu.

Sent: Lau 09. Apr 2005 16:56
af Pandemic
Gamalt eða nýtt PSu?
Þessi nýju psu eru nú oftast með öryggi sem slær út.

Sent: Lau 09. Apr 2005 17:24
af MuGGz
ponzer skrifaði:Held að við allir ættum að safna í bauk og gefa Steina nýja vél, hann er svo óheppinn !!!


:cry:

gnarr skrifaði:það endar ábyggilega með að þessi vél verður dýrari en hin..


já veistu, það fer eftir hvað þetta mun kosta að laga núna...

ef það verður ágætur peningur hefði ég getað keypt mér nýja shuttle! :x

enn þetta kemst vonandi í lag á mánudaginn :?

langar í cs :cry: :lol:

Sent: Lau 09. Apr 2005 17:34
af galileo
Þú ert alltaf að enda í einhverju klandri með tölvuna.

Frekar mjööög óheppinn :(

við ættum að gera svona "hjálp MUGGZ,, spjallborð :P

Sent: Lau 09. Apr 2005 17:37
af Mr.Jinx
Amm en það var nú varla honum að kenna að þetta gerðist en bara spá hvort hann getur Hringt i Rafmagnsvituna,, og Segja þeim frá hvað sem gerðist. Og hvort hann getur kennt þá um þetta, ef vélin er skemmd. :roll:

Sent: Lau 09. Apr 2005 17:51
af MuGGz
já ég er eitthvað ferlega óheppinn með þessa blessuðu vél :?

Sent: Lau 09. Apr 2005 17:58
af MezzUp
MuGGz skrifaði:vélin er á leiðinni í tölvuvirkni á mánudaginn
Þú ætlar vonandi ekki að bera fyrir þig ábyrgðina?

Mr.Jinx skrifaði:Amm en það var nú varla honum að kenna að þetta gerðist en bara spá hvort hann getur Hringt i Rafmagnsvituna,, og Segja þeim frá hvað sem gerðist. Og hvort hann getur kennt þá um þetta, ef vélin er skemmd. :roll:
Mig minnir að fyrir þónokkrum árum hafi of sterkum straumi verið hleypt á öll hús á Akranesi sem skemmdi felst rafmagnstæki sem þá voru í gangi. Rafmagnsveitan þurfti þá að bæta allt sem skemmdist. Hugsa nú samt að þetta sé ekki svipað þar sem að þetta er kannski ekki neinum að kenna, og er „algengt“. Svo sagði MuGGz nú ekkert afhverju/hvernig það sló út, kannski var það einhverjum heima hjá honum að kenna.

Sent: Lau 09. Apr 2005 21:27
af Knubbe
Þetta skeði sama fyrir mig ekki fyrir allöngu.Ég fór með tölvuna niður í tölvuvirkni og þeir sögðu að þetta væri ekki í ábyrgð :/

Sent: Lau 09. Apr 2005 22:07
af MezzUp
Knubbe skrifaði:Ég fór með tölvuna niður í tölvuvirkni og þeir sögðu að þetta væri ekki í ábyrgð :/
Vitaskuld ekki. Þetta er jafn mikið þeim að kenna og ef að einhver henti tölvunni fram af húsþaki.

Sent: Lau 09. Apr 2005 22:59
af Mr.Jinx
hehe :lol:

Sent: Lau 09. Apr 2005 23:00
af MuGGz
Knubbe skrifaði:Þetta skeði sama fyrir mig ekki fyrir allöngu.Ég fór með tölvuna niður í tölvuvirkni og þeir sögðu að þetta væri ekki í ábyrgð :/


hvað kostaði að gera við þetta ? :? :?

Sent: Sun 10. Apr 2005 16:20
af Gestir
ég lennti í svipuðu með mitt gamla PSU ... man ekki einu sinni hvað ég gerði við það.. hennti því held ég bara..

en það suðaði bara í því .. og það var bara handónýtt held ég..

ég keypti mér ljíomandi 400w psu í Start.is á 3990 eða 4990 SwEEx heitir það

Sent: Sun 10. Apr 2005 17:26
af Knubbe
steini ég keypti bara nýtt psu :)

Sent: Sun 10. Apr 2005 17:48
af Sup3rfly
bömmer

Sent: Mán 11. Apr 2005 14:17
af MuGGz
óheppnin heldur ámfram að elta mig það er alveg á hreinu

það skeði fyrir shuttle vélina mín það versta sem GAT skeð, eða móðurborðið er ónýtt.

þeir eiga ekki svona móðurborð til og þar að leiðandi myndu þeir þurfa að sérpanta svona borð og myndi það kosta mig álíka mikið og ný shuttle.

Þannig að ég veit 0 hvað ég á að gera

ég er að spá í að fá mér bara nýja shuttle s939 vél og amd64 3000 örgjörva og gráta yfir peningnum sem ég er búin að tapa á þessu.

Hvað mynduð þið gera ?

ég er mjög mikið á flakki og þannig shuttle er efst á óskalistanum :(

Sent: Mán 11. Apr 2005 14:45
af ponzer
MuGGz skrifaði:óheppnin heldur ámfram að elta mig það er alveg á hreinu

það skeði fyrir shuttle vélina mín það versta sem GAT skeð, eða móðurborðið er ónýtt.

þeir eiga ekki svona móðurborð til og þar að leiðandi myndu þeir þurfa að sérpanta svona borð og myndi það kosta mig álíka mikið og ný shuttle.

Þannig að ég veit 0 hvað ég á að gera

ég er að spá í að fá mér bara nýja shuttle s939 vél og amd64 3000 örgjörva og gráta yfir peningnum sem ég er búin að tapa á þessu.

Hvað mynduð þið gera ?

ég er mjög mikið á flakki og þannig shuttle er efst á óskalistanum :(


Ég myndi gera það sem þú ert að hugsa XPC s939 og 3000 örgjörva.

Sent: Þri 12. Apr 2005 09:40
af MuGGz
jæja ég keypti mér shuttle SN95G5 og amd64 3000+ :)

enn þið munið ekki trúa þessu..

í síðustu viku keypti mér skjá af félaga mínum (notaðan) og var mest lítið búin að nota hann þar sem að jú, ég er búin að vera í bölvuðu veseni með vélina mína.

enn í gær þá tengi ég nýju shuttle vélina við og var búin að vera með þetta tengt í svona 5 mín þá varð skjáinn bara eitt stórt ský(blurry) og ég sá ekki neitt!

þannig að ég er að nota skjáinn hjá mömmu og pabba núna! (kvarta svosem ekki, sony trinitron 17" :8) )

Þannig ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég ætla ALDREI ég endurtek ALDREI að versla mér notaðan tölvubúnað aftur :x

Sent: Þri 12. Apr 2005 10:27
af Gestir
Snioðugur...

En afhverju varstu að selja allt draslið þ itt svona in the first place.. Og hvað er málið við þessar litlu Tu**ulegu shuttle Vélar ?

Eru þær eitthvað betri.. more silent... kælast meira.. What is it ??

Endilega fræða svoan ignorant inbred sumbitch eins og mig á því :P

Sent: Þri 12. Apr 2005 10:38
af gnarr
MuGGz skrifaði:ég er mjög mikið á flakki og þannig shuttle er efst á óskalistanum :(


svarar þetta spurningunni ómar ? :)

Sent: Þri 12. Apr 2005 11:37
af ponzer
ÓmarSmith skrifaði:Snioðugur...

En afhverju varstu að selja allt draslið þ itt svona in the first place.. Og hvað er málið við þessar litlu Tu**ulegu shuttle Vélar ?

Eru þær eitthvað betri.. more silent... kælast meira.. What is it ??

Endilega fræða svoan ignorant inbred sumbitch eins og mig á því :P


Bara tussu flottar vélar og þægilegt að ferðast með þær og eru silent :o