Síða 1 af 1

Flakkari sem er að gera mig brjálaðan

Sent: Mið 06. Apr 2005 20:54
af jimmysnow
Ég er með harðadiska flakkara sem er að crasha í annað skiptið.
Harðidiskurinn er WD 200gb, Hvernig á ég að passa upp á að þetta gerist ekki aftur fyrir mig?
Hvað recovery forrit eruð þið að nota ef þetta skeður fyrir? (er til forrit sem getur líka fundið nöfnin á skránum?).

Takk fyrir að lesa þetta og vonast eftir svari eins einfalt og hægt er, takk.

Sent: Fim 07. Apr 2005 09:36
af Major Bummer
harðadiska flakari ? ekki vissi ég að það þyrfti að flaka þá :roll:

Sent: Fim 07. Apr 2005 09:58
af Icarus
Major Bummer skrifaði:harðadiska flakari ? ekki vissi ég að það þyrfti að flaka þá :roll:


húmor ?

Sent: Fim 07. Apr 2005 10:00
af gnarr
Major Bummer skrifaði:harðadiska flakari ? ekki vissi ég að það þyrfti að flaka þá :roll:


maður notar svona sérstaka HD-flökunarhnífa í það ;)

Sent: Fim 07. Apr 2005 10:00
af jimmysnow
Ég vona að það verða ekki fleiri sem svara svona.

Sent: Fim 07. Apr 2005 10:01
af gnarr
afhverju ekki? þetta heldur þræðinum efst uppi á meðan :)

Sent: Fim 07. Apr 2005 10:03
af Icarus
gnarr skrifaði:afhverju ekki? þetta heldur þræðinum efst uppi á meðan :)


Og tekur athyglina frá upprunalegu spurningunni, þessi þráður endar í tómu tjóni og þið verðið gífurlega pirraðir ef hann dirfist til að pósta aftur.

Annars veit ég nú ekki alveg hvað er að, hef ekki uppfært tölvuna mína lengi svo ég hef voða lítið lesið um þetta og þar af leiðandi dottinn svolítið út, en gæti þetta ekki bara verið kælingarvandamál ? kemst ekki nægt loft til disksins í gegnum flakkarann.

Sent: Fim 07. Apr 2005 10:05
af gnarr
já. of mikill hiti eða ójafn straumur er það sem að drepur flesta harðadiska.

Sent: Fim 07. Apr 2005 11:50
af jimmysnow
Harði diskurinn er ekki dáinn! En hann er alltaf vel heitur þegar hann er búinn að vera lengi í gangi.
Ég á tvo flakkara sá gamli hefur reynst mér vel en þessi nýi er miklu minni (compact) en sá gamli.

En þetta er flakkarinn.Mynd

Ég keypti hann í Task http://www.task.is/?webID=1&p=93&sp=95&ssp=351&item=1668

Fyrst að svona margir brandakarlar eru hérna þá ætla ég að segja brandara:

Maður einn kaupir handa sér glænýtt hjól. Sölumaðurinn segir honum að bera spés efni á hnakkinn á hjólinu, til að leðrið endist lengur og hann verður að gera þetta áður en það rignir.
Karlinn fer í hjólatúr síðan á þessu fallega hjóli sínu. En þá fer að dimma og þá fattar hann að er búinn að hjóla of langt. Þá sér hann bóndabæ rétt hjá. Hann hjólar að bænum og spyr bónda hvort hann megi sofa eina nótt á bænum.
Bóndinn leyfir honum það, en bóndinn segir honum frá reglu allir verð virða á bænum. Það má ekki tala við matarborði þegar matur er borðaður. Refsingin við þessu er að vaska upp allt leirtauið. Hjólakappinn samþykkir þessa reglu.
Hjólakappi sest nú við matar borðið og um leið og hann sest þá sér hann staflana af leirtaui. Nú hugsar hann með sé "best að segja ekki neitt allan tíman meðan ég er hérna". Þegar hjólakappinn byrjar að borða sér dóttur bóndans, hún er mjög fögur og hann heldur ekki vatni yfir henni.
Um nóttina sængar hjólakappinn hjá dóttur bóndans. Um morguninn fær hjólakappinn sér morgunnverð í boði bóndans, svip bóndans er ekki blíðmannlegt yfir morgumatnum.
Þegar kona bóndans er að taka borðinu sér hjólakappinn að kona bóndans, er ekki síðri en dóttirin. Þegar bóndinn fer að sinna skepnum sínum, fara hjólakappinn og kona bóndans í rúmið og hafa það skemmtilegt þar.
Jæja núna er kominn hádegi og bóndinn er ekki par sáttur en segir ekkert við matarborðið. Í miðju matnum sér hjólakappinn að það er byrjað að rigna. Kappinn stendur upp og æpir " djöfullin það er byrjaða að rigna" nú bregður bóndanum og segir " Nei Nei ég skal vaska upp"

Sent: Fim 07. Apr 2005 14:07
af jericho
þessi tegund af hýsingu utan um HD er mjög algeng í tölvuverslunum í dag, en það er engin vifta á henni. Ef þú ætlar að hafa diskinn í gangi 24/7 (eða nokkrar klst á dag), myndi ég efast um að þessi „kæliplata“ úr áli dugi til að kæla diskinn.

Hvað er hann lengi í gangi hjá þér á dag?

Ég sjálfur á svona hýsingu utan um HD, og nota hann eingöngu sem geymslupláss. Kveiki bara á honum til að kópera af honum eða á hann. Félagi minn keypti sér eins hýsingu og var með í gangi mun mun meira - og einn dag þegar hann kveikti á honum crashaði hann og allt þurrkaðist út.

Hvernig er gamla hýsingin þín? Er vifta á henni?

Sent: Fim 07. Apr 2005 14:46
af jimmysnow
Sú gamla er miklu stærri og er gott rými fyrir harðadiskinn.

Ég hef kveikt á henni svona 5-8klst á dag. En sú gamla þolir þetta.


Veit einhver um góðan flakkara sem er með viftu eða þá er stór og mikil

Sent: Fös 08. Apr 2005 00:30
af Major Bummer
brandarakallinn (ég) er með álflakkara með engri viftu , virkar fínt (nema þegar hún sýnir að hann sé unallocated þangað til að maður restartar :roll: )
er með kveikt nokkra tíma á dag , keypt í hugveri

Sent: Fös 08. Apr 2005 00:48
af axyne
jimmysnow

ég er ekki að fatta brandarann þin, ég veit ég hef heyrt hann áður, kannast geðveikt við hann. en vá ég virkilega ekki fatta hann núna. :oops:

Sent: Fös 08. Apr 2005 01:12
af zaiLex
Bara ef það væri svona létt að sænga og í þessum brandara.

Sent: Fös 08. Apr 2005 15:53
af jimmysnow
Þess vegna ertu ofur-nörd HAHAHA :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: