Síða 1 af 2

Frýs

Sent: Mán 04. Apr 2005 21:54
af Xen0litH
Tölvan mín gjörsamlega frýs stundum, oftast þegar ég er að horfa á eitthvað myndband í winamp en ekki þó alltaf, er þetta eitthvað að skjánum.. ? Eða gæti þetta verið eitthvað annað.

Sent: Þri 05. Apr 2005 17:01
af galileo
getur náttúrulega alltaf verið að þú ert ekki með nógu góða tölvu hvernig tölvu ertu með :?:

Sent: Þri 05. Apr 2005 23:01
af Xen0litH
Þetta er ekki tölvan þar sem þetta er nýbyrjað að ské :?

Annars er ég algjör nýliði sambandi við þessa tölvu og veit ekkert um hana :oops:

Sent: Þri 05. Apr 2005 23:10
af Mysingur
frýs hún líka þegar þú reynir að horfa á video í öðrum spilurum?
mæli með því að þú fáir þér ad-aware og vírusvörn og skannir með því

Sent: Þri 05. Apr 2005 23:20
af Xen0litH
Hún er hreinni en allt miðað við öll þessi forrit AdAware/Microsoft Anti-Spyware/Spybot S&D

Sent: Mið 06. Apr 2005 07:37
af kristjanm
Athugaðu hvort að það séu ekki allar viftur í gangi hjá þér.

Sent: Mið 06. Apr 2005 10:35
af galileo
En geturu kannski ekki einusinni sagt okku hvernig örgjörva þú ert með í tölvunni þinni finnur það út með því að fara í my computer- hægri smell og properties- og þar kemur upp gluggi sem stendur einhvað með mhz eða ghz. Skrifaðu það allt. þá sjáum við hvort að það sé tölvan eða ekki. :wink:

Sent: Mið 06. Apr 2005 10:43
af gnarr
ég skal lofa þér að þetta kemur örgjörfanum ekkert við.

Sent: Mið 06. Apr 2005 12:03
af Xen0litH
Þetta er 3 GHz tölva, ég vissi það nú alveg :)

Já, ég fékk nú þá hugmynd að þetta væri skjárinn.. þar sem hann er arfaslakur.

CTX skjár á Radeon 9000/9100 IGP Series (Omega 2.5.90)
Hann hefur brugðist mér áður sambandi við leiki og svoleiðis, hvernig á ég annars að finna út hvort viftan sé í gangi eður ei?

Allar viftur í tölvunni eru í lagi.

Sent: Mið 06. Apr 2005 14:06
af galileo
Xen0litH skrifaði:hvernig á annars að finna út hvort viftan sé í gangi eður ei?



Með því að opna tölvuna og tékka hvort að vifturnar snúist nú ekki alveg örugglega eða eðlilega

Sent: Mið 06. Apr 2005 15:14
af Snorrmund
galileo skrifaði:En geturu kannski ekki einusinni sagt okku hvernig örgjörva þú ert með í tölvunni þinni finnur það út með því að fara í my computer- hægri smell og properties- og þar kemur upp gluggi sem stendur einhvað með mhz eða ghz. Skrifaðu það allt. þá sjáum við hvort að það sé tölvan eða ekki. :wink:
Galileo ef þú vissir EITTHVAÐ um tölvur þá myndirðu vita að mhz skipta MJÖG litlu þegar að maður er að horfa á video.. áður en ég keypti þessa tölvu(2.8ghz..) þá var ég á 450mhz dollu og horfði mikið á video í henni

Sent: Mið 06. Apr 2005 15:44
af MezzUp
Ég get lofað þér(með enná meira öryggi en gnarr) að þetta kemur skjánum alls ekkert við. (skjákortsdriver'ar eru hinsvegar annað mál...
) Hvernig hefur skjárinn brugðist þér í leikjum?

Verður að segja okkur meira um þetta. Hvenær/afhverju(við hvaða aðstæður) nákvæmlega þetta á sér stað?

Sent: Mið 06. Apr 2005 16:03
af Xen0litH
Já, það var driver vandamál.. stafirnir í öllum leikjum urðu svona óljósir
en þegar ég breytti í einhvern omega driver breyttist það

Síðan spilaði ég eve fyrir áramót og lenti í vandræðum eftir stórann svokallaðann Plástur(patch) sem var með betri grafík heldur en fyrri plástur og ég fraus alltaf þar, þá reyndi ég allnokkra skjákorts drivera en enginn virtist virka svo ég hætti bara í leiknum :wink:

Ég var síðan með sama driverinn í nokkurn tíma en svo byrjaði allt að verða óljóst og blörrað svo ég reyndi að update-a driverinn og gat það, en ennþá var þetta blörrað svo ég reyndi einhverja af þessum driver-installs sem ég átti til og þessi driver: rad_w2kxp_omega_2590 bjargaði þessu vandamáli..

Ég er ekki nógu viss um hvenær þetta vandamál með tölvuna byrjaði, en ég held það geti alveg passað að þetta hafi byrjað að ské smátt og smátt eftir að ég setti þennann driver inn :? ?

Sent: Mið 06. Apr 2005 16:59
af galileo
Snorrmund skrifaði:
galileo skrifaði:En geturu kannski ekki einusinni sagt okku hvernig örgjörva þú ert með í tölvunni þinni finnur það út með því að fara í my computer- hægri smell og properties- og þar kemur upp gluggi sem stendur einhvað með mhz eða ghz. Skrifaðu það allt. þá sjáum við hvort að það sé tölvan eða ekki. :wink:
Galileo ef þú vissir EITTHVAÐ um tölvur þá myndirðu vita að mhz skipta MJÖG litlu þegar að maður er að horfa á video.. áður en ég keypti þessa tölvu(2.8ghz..) þá var ég á 450mhz dollu og horfði mikið á video í henni


Róaðu þig aðeins. gerði smá mistök heildarmálið með það sem ég vildi vita var hvernig tölva þetta væri og hvað innihald hennar væri :oops:

Sent: Mið 06. Apr 2005 17:06
af Snorrmund
var 100% rólegur :P og þetta kom kannski svoldið "hörkulega út" :) en ég var mjög rólegur og ég var ekkert að kalla þig fávita né neitt

Kóði: Velja allt

6. gr.

Ekki koma með fullyrðingar ef þú ert ekki viss um það sem þú ert að segja
Segðu t.d."ég held að ef að þú breytir MBR þá breytist partion table ekki" frekar heldur en
"ef að þú breytir MBR breytist partion table ekki" nema þú sért fullkomlega viss.
svona.. :) annars var þetta bréf áðan ekkert illa meint

Sent: Mið 06. Apr 2005 17:19
af galileo
Snorrmund skrifaði:var 100% rólegur :P og þetta kom kannski svoldið "hörkulega út" :) en ég var mjög rólegur og ég var ekkert að kalla þig fávita né neitt

Kóði: Velja allt

6. gr.

Ekki koma með fullyrðingar ef þú ert ekki viss um það sem þú ert að segja
Segðu t.d."ég held að ef að þú breytir MBR þá breytist partion table ekki" frekar heldur en
"ef að þú breytir MBR breytist partion table ekki" nema þú sért fullkomlega viss.
svona.. :) annars var þetta bréf áðan ekkert illa meint


:lol: :lol: allt í lagi er ennþá að læra reglurnar

Sent: Mið 06. Apr 2005 17:46
af Xen0litH

Sent: Mið 06. Apr 2005 18:29
af Snorrmund
en ég mæli með ef þú hefur ekki gert þetta að vírusskanna með einhverju góðu forriti og með adaware spybot UNDIR SAFE MODE! ef að það virkar ekki.. þá er fátt sem mér gæti dottið í hug..

Sent: Mið 06. Apr 2005 20:04
af Xen0litH
Snorrmund skrifaði:en ég mæli með ef þú hefur ekki gert þetta að vírusskanna með einhverju góðu forriti og með adaware spybot UNDIR SAFE MODE! ef að það virkar ekki.. þá er fátt sem mér gæti dottið í hug..


Allllllll done og ekkert fannst :/

Sent: Mið 06. Apr 2005 21:22
af Xen0litH
MezzUp skrifaði:Ég get lofað þér(með enná meira öryggi en gnarr) að þetta kemur skjánum alls ekkert við. (skjákortsdriver'ar eru hinsvegar annað mál...
)


Svo þetta gæti verið þessi driver sem ég með installaðann, vert að prófa annann ? Einhverjar ábendingar ?

Sent: Mið 06. Apr 2005 21:43
af SolidFeather
Svo þetta gæti verið þessi driver sem ég með installaðann, vert að prófa annann ? Einhverjar ábendingar ?[/quote]


Um leið og þú kemur með specs...

Sent: Mið 06. Apr 2005 23:09
af Xen0litH
CTX EX700F+ upplausn 1280 x 1024 @ 75hz
Radeon 9000/9100 IGP Series (Omega 2.5.90)

Sent: Fim 07. Apr 2005 08:57
af gnarr
Xen0litH skrifaði:Já, það var driver vandamál.. stafirnir í öllum leikjum urðu svona óljósir
en þegar ég breytti í einhvern omega driver breyttist það

Síðan spilaði ég eve fyrir áramót og lenti í vandræðum eftir stórann svokallaðann Plástur(patch) sem var með betri grafík heldur en fyrri plástur og ég fraus alltaf þar, þá reyndi ég allnokkra skjákorts drivera en enginn virtist virka svo ég hætti bara í leiknum :wink:

Ég var síðan með sama driverinn í nokkurn tíma en svo byrjaði allt að verða óljóst og blörgjörvað svo ég reyndi að update-a driverinn og gat það, en ennþá var þetta blörgjörvað svo ég reyndi einhverja af þessum driver-installs sem ég átti til og þessi driver: rad_w2kxp_omega_2590 bjargaði þessu vandamáli..

Ég er ekki nógu viss um hvenær þetta vandamál með tölvuna byrjaði, en ég held það geti alveg passað að þetta hafi byrjað að ské smátt og smátt eftir að ég setti þennann driver inn :? ?


það hefur líklegast verið anti alliasing. það kemur skjánum ekkert við.

Sent: Fim 07. Apr 2005 20:55
af Xen0litH
Þá þetta með leikina ?

FPS'ið mitt droppar niður í 5 og allir stafir óskýrir, get ég lagað þetta ?

Ég breytti um driver og gat horft á 2 bíómyndir stanslaust svo ég held að þetta frjósi vandamál sé horfið þar.. en þá kom þetta leikja vandamál aftur :/

Hvað get ég gert ? :p

Sent: Fim 07. Apr 2005 23:32
af gnarr
slökktu á Anti Alliasing.