Síða 1 af 1
Er hægt að taka upp úr sjónvarpinu með K!TV?
Sent: Sun 03. Apr 2005 14:46
af Damien
Það er ágætis tilboð í Tölvulistanum á Kworld sjónvarpskorti með 878 kubbasetti. Var að pæla í að skella mér á svoleiðis.
Ég er búinn að vera að lesa eldri þræði um sjónvarpskortin en var að pæla í hvort það sé hægt að taka upp úr sjónvarpinu með K!TV?
Og jafnvel hægt að stilla upptöku á tíma?
(og já btw þá er ég áskrifandi að þessu öllu saman..)
Sent: Sun 03. Apr 2005 14:58
af Snorrmund
Það á að vera hægt með einhverjum plugins(sem fylgja með K!tv2) en ég nota bara forritið sem fylgdi mínu korti.. þar get ég tímasett upptökur og fleira.. Það getur reyndar ekki afruglað.. En fínasta forrit samt.. Get skrifað drasl á Cd/dvd diska og fleira.. helvíti gott útvarpdóterí í því líka(hef ekki notað það einusinni
)
Sent: Sun 03. Apr 2005 15:46
af END
Býst við að þú sért að tala um þetta kort:
http://tolvulistinn.is/content.asp?view=detail&code=9dcd51480fb9cb8c155aed3753b350bb0c732938109408b2fabeae6c44de99ea&level=2&top=%EDhlutir&s=sj%F3nvarpskort
Ég veit nú voða lítið um þetta sjálfur, þannig að ég var að spá í það hvernig þetta virkar. Skelli ég kortinu bara í tölvuna og tengi loftnet við? Get ég svo afruglað allar stöðvar sem nást með örbylgjuloftnetinu mínu, fyrtst þetta er með 878 chipset og hvaða hugbúnað þyrfti ég í það? Eru svo ekki oft sem koma upp einhver vesen með þetta? (Já svoldið mikið af spurningum).
Til að svara einni spurningunni þinni þá kemur þetta fram í lýsingunni:
"Time scheduler to preset recording time."
Sent: Sun 03. Apr 2005 16:37
af Damien
Jájá, ég sá það náttúrulega...
Ég var bara að velta þessu fyrir mér í sambandi við K!TV. Það var nefninlega talað dálítið um það á eldri þráðum að hugbúnaðurinn sem fylgdi svona kortum væri óþægilegur í notkun og að K!TV væri mikið betra.
Ég var líka að skoða
http://www.kastortv.org og ég finn ekkert um þetta þar...
Er enginn hérna með góða reynslu af K!TV sem gæti frætt okkur um þetta?
Sent: Sun 03. Apr 2005 16:54
af Pandemic
Driverarnir fyrir K-world kortið eru fucked hjá mér fæ stundum bluescreen ef ég er að fikkta í sjónvarpsforritum.
Sent: Sun 03. Apr 2005 17:35
af Snorrmund
Ég er nú ekki viss en ég held að þig vanti digital sjónvarpskort til að afrugla Digital Island.. Ef þú ert að tala um það..
Sent: Sun 03. Apr 2005 17:57
af END
Snorrmund skrifaði:Ég er nú ekki viss en ég held að þig vanti digital sjónvarpskort til að afrugla Digital Island.. Ef þú ert að tala um það..
Já gæti trúað því, var einmitt að spá í hvort þetta væri ekki e-ð breytt með tilkomu þess.
Sent: Sun 03. Apr 2005 18:53
af Daz
365fjölmiðlar senda nú enþá út stöð 2 og það allt á gamla mátann, enþá einhverjir sem hafa gamaldags afruglara.
Sent: Fim 07. Apr 2005 08:21
af arnifa
held að það sé hægt að nota fraps til að recorda úr k!tv samt ekki viss...
Sent: Fim 07. Apr 2005 09:00
af gnarr
stöð 2 er hætt að senda út hljóðið í stereo með gömlu aðferðinni.. þannig að ég held að það virki ekki að afrugla það lengur ;p
Sent: Fös 08. Apr 2005 18:46
af galileo
gnarr skrifaði:stöð 2 er hætt að senda út hljóðið í stereo með gömlu aðferðinni.. þannig að ég held að það virki ekki að afrugla það lengur ;p
Já held líka að það sé rétt hjá þér þekki gaur sem er með K!TV og það virkar ekki að afrugla hljóðið lengur.
Sent: Lau 09. Apr 2005 21:45
af arnarj
það virkar ennþá, skiptir engu hvort hljóðið er í sterío eða ekki. En ef útsendingin er í sterío þá þarf ekki að afrugla hljóðið yfir höfuð ef þú ert með sterío receiver (t.d. vídeo eða sjónvarp).