Síða 1 af 1

AMD 2500xp Barton

Sent: Mið 21. Maí 2003 18:11
af OliA
Okey, núna er svolítið síðan ég fékk mér þennan örgjörva... Hef verði að keyra hann í svona 37-40°c Og núna alltíeinu hætti hann að virka sem skildi...

hann fór semsagt í 1110mhz og ddr-ið datt í 200 í stað 333....

Veit samt ekki hvort að þetta sé bara móðurborðið .. Var eitthvað gallað það fyrsta sem ég fékk mér, Abit AT7 Max2...

veit að þetta er ekkert nákvæm lýsing, en hvort haldiði að þetta sé móðurborðið eða örinn ;)

Fyrirfram þakkir

Sent: Mið 21. Maí 2003 18:13
af Voffinn
ég er nú ekki alveg viss, en myndi veðja á móbóið, því örrinn og ddr tengist ekkert þannig beint nema í gegnum móbóið :)

annars er þetta líka bara spurningum um að fá sér intel :bg

einnig ætla ég að minna á að hafa nákvæma titla á póstunum :)

Sent: Mið 21. Maí 2003 18:39
af MezzUp
OliA, gerðirru ekkert, bilaði þetta bara alltíeinu?

Sent: Mið 21. Maí 2003 18:57
af elv
Athugaðu hvort þú getir ekki hækkað FSB

Sent: Mið 21. Maí 2003 19:01
af halanegri
Voffinn: lol, fá sér intel?? hvurs lags ráðleggingar eru þetta? :P

þú(eða einhver annar) hefur alveg örugglega stillt FSB'inn á örranum og einnig á minninu(stillt á failsafe stillingar eða eitthvað) á móbóinu úr 133 niður í 100 í BIOS.

Sent: Mið 21. Maí 2003 19:03
af elv
Þetta er Barton sem er 166X2=333 ;) en ekki 133

Sent: Mið 21. Maí 2003 19:05
af halanegri
Ok, þá hefur einhver lækkað FSB'inn á örranum/minninu úr 166 niður í eitthvað annað :?

Sent: Mið 21. Maí 2003 19:08
af elv
Einhver hefur verið að fikta, ;)






Held að mér sé eitthvað illt í auganu;)