Síða 1 af 1

Móðurborð fyrir 939 og AGP 8x

Sent: Mið 16. Mar 2005 20:54
af emmi
Hvaða borð er besta/flottasta fyrir AMD 939 og AGP 8x. Mig langar til endurnýja mitt, en er ekki tilbúinn til að blæða út fyrir nýju skjákorti og mögulega minni líka. :) Er það bara ég eða er gríðarlega lítið úrval hérna á klakanum? Hvernig er MSI K8N NEO2 Platinum borðið?

Sent: Mið 16. Mar 2005 21:30
af kristjanm
MSI K8N Neo2 var á sínum tíma besta s939 borðið, en núna eru komin mörg betri þar sem að það eru komin nýrri chipset.

Sent: Mið 16. Mar 2005 21:42
af emmi
Einmitt, því miður þá eru þessi nforce4 móðurborð bara með PCI-X en ekki AGP eftir því sem ég veit best. :roll:

Sent: Fim 17. Mar 2005 00:11
af Pepsi
MSI K8N NEO 2 Platinum er bara í einu orði sagt, alger snilld........

Sent: Fös 18. Mar 2005 16:58
af Yank
emmi skrifaði:Einmitt, því miður þá eru þessi nforce4 móðurborð bara með PCI-X en ekki AGP eftir því sem ég veit best. :roll:


Nforce3 ekki lakara en en Nforce4 í performance, en að sjálsögðu án SLI og einhverju minniháttar fíneríi. Nforce3 fyrir leiki via fyrir rest held ég. Annars tæki ég bara eitthvað ódýrt móðurborð fyrir 939 socket í þessu millibilsástandi sem er á milli AGP og PCI-E. Nema þú hafir hugsað þér að láta skjákortið endast 2 ár í viðbót.
just my 10 cents.

Sent: Lau 19. Mar 2005 08:19
af Castrate
Ég er einmitt í sömu hugleiðingum. Vantar s939 móðurborð með AGP.
Ég er nýlega búinn að kaupa mér ATI x800 pro og er ekki alveg tilbúinn í að skipta því út strax.

Sent: Lau 19. Mar 2005 12:01
af emmi
Ég að spá annaðhvort í þessu MSI borði eða Gigabyte GA-K8NSNXP-939. Ég átti 8KNXP fyrir nokkrum mánuðum og það reyndist mér mjög vel. Er að leita að einhverri búð sem selur þetta borð til að sjá hversu mikið það kostar, ef það er miklu dýrara en MSI borðið þá býst ég við að velja MSI frekar.

Sent: Lau 19. Mar 2005 12:19
af kristjanm
Socket 939 roundup áður en að PCI-Express kom fyrir AMD.

http://www.anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2128

Sent: Lau 19. Mar 2005 12:29
af emmi
Ég sendi Start.is fyrirspurn í gær varðandi þetta Gigabyte móðurborð. Þeir sögðust vera að fá stóra sendingu í enda mánaðarins þannig að verðið ætti að vera gott. Einnig benti ég þeim á að skoða nýju kælinguna frá Thermalright (XP-90 og XP-120) og þeir sögðust skoða málið. :)

Sent: Lau 19. Mar 2005 12:53
af kristjanm
Hérna er Socket 939 roundup frá því áður en PCI-Express kom út fyrir AMD.

http://www.anandtech.com/mb/showdoc.aspx?i=2128

Sent: Lau 19. Mar 2005 13:15
af hahallur
ég held að þú ættir að fá þér MSI KN8 Neo 2 Plat. ef þú ætlar að klukka, Asus A8V klukkast ekki nóguvel.

Sent: Lau 19. Mar 2005 13:25
af emmi
Ég klukka ekki neitt, ég horfi aðallega í stöðugleika og fídusa. :wink:

Sent: Lau 19. Mar 2005 13:31
af MuGGz
enn bíddu .... ertu ekki með shuttle ? :roll:

Sent: Lau 19. Mar 2005 13:51
af emmi
Yep, langar í turn líka. :P

Sent: Lau 19. Mar 2005 14:08
af Snorrmund
Castrate skrifaði:Ég er einmitt í sömu hugleiðingum. Vantar s939 móðurborð með AGP.
Ég er nýlega búinn að kaupa mér ATI x800 pro og er ekki alveg tilbúinn í að skipta því út strax.


Ekki það að ég sé að reyna að eyðileggja þráðinn.. En varstu að mæta fyrst eftir langa bið? :) man bara eftir þér í "gamla" daga þegar ég var að byrja..

Sent: Lau 19. Mar 2005 14:30
af MezzUp
Snorrmund skrifaði:
Castrate skrifaði:Ég er einmitt í sömu hugleiðingum. Vantar s939 móðurborð með AGP.
Ég er nýlega búinn að kaupa mér ATI x800 pro og er ekki alveg tilbúinn í að skipta því út strax.
Ekki það að ég sé að reyna að eyðileggja þráðinn.. En varstu að mæta fyrst eftir langa bið? :) man bara eftir þér í "gamla" daga þegar ég var að byrja..
Jamm, Castrate var einn af þeim aktívustu þegar Vaktin var að byrja. Er ennþá að skoða hérna en póstar frekar lítið.

(ég tók mér það bessaleyfi að svara fyrir þig :=)

Sent: Lau 19. Mar 2005 16:41
af Snorrmund
Hehe ég man eftir mörgum þegar ég var að byrja sem sjást lítið sem ekkkert núna.. s.s. Voffinn, atlinn castrate cemistry eða eitthvað :)