Síða 1 af 1

Vantar modular snúru úr aflgjafa til að powera SATA diska

Sent: Mán 02. Júl 2018 08:44
af DiePunkt
Hæ vaktin.

Vitiði hvar er hægt að kaupa svona snúru á klakanum?
Mynd

Þetta eru 6 pinnar úr aflgjafa í SATA power.
Finn þetta ekki neinstaðar.

Re: Vantar snúru

Sent: Mán 02. Júl 2018 08:47
af Viktor
Almennar reglur
1. Bréf skulu hafa lýsandi titla

>> rules

:)

Re: Vantar snúru

Sent: Mán 02. Júl 2018 08:59
af littli-Jake
Gæti verið að ég sé með svona ofan í skúffu hjá mér. Hugsa reyndar að 75% hérna inni séu með nokkrar svona í lausu

Re: Vantar snúru

Sent: Mán 02. Júl 2018 11:24
af worghal
það vantar alveg að segja úr hvaða aflgjafa þetta er.
þessir kaplar eru ekki allir alveg eins þar sem þeir tengjast í aflgjafann.

Re: Vantar snúru

Sent: Mán 02. Júl 2018 22:11
af DiePunkt
worghal skrifaði:það vantar alveg að segja úr hvaða aflgjafa þetta er.
þessir kaplar eru ekki allir alveg eins þar sem þeir tengjast í aflgjafann.

Það er þessi
http://www.fractal-design.com/home/prod ... gra-m-550w

Ég hélt að þetta væri einhverjar standard snúrur þar til tölvubúðirnar sögðust ekki eiga þetta.
Er kannski eini sénsinn að taka þetta af netinu?

eða vonast til að þetta leynist í skúffum vaktara :)

Re: Vantar modular snúru úr aflgjafa til að powera SATA diska

Sent: Mán 02. Júl 2018 22:37
af arons4
Farðu varlega í þetta, hef séð grillaða harðadiska eftir að það var notuð snúra úr öðrum aflgjafa sem var þó frá sama framleiðanda. Myndi ef það er kostur á því að fá þér molex->sata frekar.

Re: Vantar modular snúru úr aflgjafa til að powera SATA diska

Sent: Þri 03. Júl 2018 14:32
af DiePunkt
arons4 skrifaði:Farðu varlega í þetta, hef séð grillaða harðadiska eftir að það var notuð snúra úr öðrum aflgjafa sem var þó frá sama framleiðanda. Myndi ef það er kostur á því að fá þér molex->sata frekar.


Takk fyrir ábendinguna.

Þannig ég er damned if I do and damned if I don't?
Eina örugga leiðin bara að kaupa nýjan aflgjafa og vonast til þess að hann bjóði uppá fleiri sata power tengi?

Er búinn að kaupa svona snúru fyrir slikk á ebay en það tekur væntanlega út mánuðinn fyrir hana að koma hingað frá kína.
Þori ekki að nota hana hvort eð er.

Svarið er s.s. nei við því að einhver búð selji þessa snúru hér á klakanum? Og ég ætti bara að kaupa nýjan aflgjafa?
:dissed

Re: Vantar modular snúru úr aflgjafa til að powera SATA diska

Sent: Þri 03. Júl 2018 19:55
af arons4
Ef þú þekkir einhvern rafvirkja eða treystir þér til að gera það sjálfur er lítið mál að mæla þetta. Annars líka hægt að fá einhvern gamlan ónýtan harðandisk og prufa að stinga í samband.