Síða 1 af 1

3.0 ghz prescott hitavesen...

Sent: Sun 27. Feb 2005 12:33
af Ofurpesi
Jæja. Ég er með prescott semsagt og er að lenda í því að í leikjum fer hann í svona 66 gráður celsíus. Ég er ekki sáttur. Hvernig kælingu á ég að fá mér á örrann?

Sent: Sun 27. Feb 2005 13:01
af MezzUp
Afhverju ertu ekki sáttur? Fyrst að örgjörvinn er undir hitamörkum eftir (þónokkuð) load, afhverju viltu þá eyða meiri pening?

Ég skil ekki þessar miklu hitaáhyggjur í mörgum

Sent: Sun 27. Feb 2005 13:13
af Mysingur
segi það
minn er oftast yfir 70 þegar ég er í leikjum og ég hef engar áhyggjur

Sent: Fim 17. Mar 2005 05:40
af Rerir
Minn var að fara hátt í 70° með Zalman kopar blómið. Lagaði með nýju hitakremi og 1 kassaviftu til að bæta airflow, fer hæst í 56° núna. . .

Ívar.

Sent: Fim 17. Mar 2005 07:40
af kristjanm
Ég er með Prescott 3.2GHz hérna, overclockaðan í 3.9GHz, og hann fer í 63-64°C í prime95 með stock kælingu og einni 80mm SilenX kassaviftu.

Er með Prescott E0 stepping svo að hann klukkar sig líka niður úr 16x í 14x þegar hann er ekki að gera neitt, og idle hitinn er um 40°C.