Síða 1 af 1

Hjálp m/ harðan disk

Sent: Mán 14. Feb 2005 12:07
af Hrannar
Góðan daginn,

Ég er í smá vanda með 160gb Western Digital harðan disk. Ég notaði hann daglega fyrir nokkrum mánuðum, en lánaði bróður mínu hann svo - hann var alltaf skráður sem 153gb.

Ég keypti mér box fyrir lappann minn um daginn og ætlaði að byrja að nota hann aftur, en hann lítur bara út fyrir að vera 127gb.

Hvernig 'stækka' ég hann?

Einhver talaði um að maður þyrfti SP2 og þá myndi þetta batna - en ég er með hann, og þetta breytist ekkert.

Takk fyrir.

Kveðja,
Hrannar Már.

Sent: Mán 14. Feb 2005 13:30
af arnarj