Síða 1 af 1

Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 20:03
af einarn
Er að hugsa að kaupa mús á Newegg, enn ég er dáldið skeptical á að varan sé counterfeit. Hvernig reputation hefur Newegg með svona? Ég googlaði þá og það kom upp þetta Ryzen dæmi, sem var svo sem var allstaðar og nokkrir póstar frá 2010-11 um fake cpu´s sem voru seldir þarna. Bottom line eru þeir með álíka ábyrð og amazon t.d er auvelt að díla við þá ef ég enda með að kaupa knockoff?

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 20:07
af Squinchy
Reyndi að panta viftur hjá þeim fyrir nokkrum vikum en þeir kæra sig ekki um peninga frá íslendingum

Væri til í að eiga svona fyritæki sem þarf ekki peninga :roll:

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 20:09
af Emarki
Newegg er fínasta netverslun og þekkt fyrir "betri verð".

Hún bara sendir ekki til íslands, málið dautt.

Kv Einar.

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 20:10
af einarn
ok. þeir semsagt díla ekki við okkur. Þá reyni ég finna þetta annarstaðar. Takk fyrir ábendinguna :)

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 20:42
af einarn
Talaði við þjónustuverið hjá þeim. Hann sagði að þeir væru að vinna í því að bæta Íslandi við listann hjá sér.

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 21:14
af ZiRiuS
einarn skrifaði:Talaði við þjónustuverið hjá þeim. Hann sagði að þeir væru að vinna í því að bæta Íslandi við listann hjá sér.


"vinna í því"

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fim 21. Sep 2017 23:24
af Emarki
Ég heyrði þetta sama fyrir mörgum árum síðan.

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fös 22. Sep 2017 07:51
af brain
kaupa bara gengum nybox, myus

ekkert mál þar,

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fös 22. Sep 2017 13:53
af ZiRiuS
brain skrifaði:kaupa bara gengum nybox, myus

ekkert mál þar,


Taka þessi fyrirtæki ekki fúlgur fyrir þessa þjónustu? Borgar það sig þá yfir höfuð að kaupa þessar vörur að utan? Færð allavega ábyrgð og annað hérlendis í tvö ár.

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fös 22. Sep 2017 16:23
af brain
Nybox tekur $5 fyrir að versla þar sem íslensk kort eru ekki tekin, kostar svo frá $15 að senda til íslands eftir stærð og þyngd pakka, einsog margir hafa bent á þú sparar ekki nóg á 1-2 hlutum en ef þú ert td að kaupa alla íhlutir í tölvu getur þú sparað umtlasvert.

Ekkert mál með ábyrð mörg fyrirtæki bjóða 2-3 ár, en þú þarft auðvitað að borga flutning.

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fös 22. Sep 2017 16:24
af MeanGreen
brain skrifaði:kaupa bara gengum nybox, myus

ekkert mál þar,

Ég hef reynt að panta í gegnum myus.com en Newegg cancelar daginn eftir. Ertu með íslenskt eða erlent greiðslukort?

Er að spá í að reyna aftur en kaupa fyrst Newegg gjafakort og borga með því. Kannski að það virki :-k

Edit: Ég sé að þú ert búinn að svara. Lætur bara myus/nybox kaupa fyrir þig. Got it

Re: Að kaupa á Newegg

Sent: Fös 22. Sep 2017 18:02
af ZiRiuS
brain skrifaði:Nybox tekur $5 fyrir að versla þar sem íslensk kort eru ekki tekin, kostar svo frá $15 að senda til íslands eftir stærð og þyngd pakka, einsog margir hafa bent á þú sparar ekki nóg á 1-2 hlutum en ef þú ert td að kaupa alla íhlutir í tölvu getur þú sparað umtlasvert.

Ekkert mál með ábyrð mörg fyrirtæki bjóða 2-3 ár, en þú þarft auðvitað að borga flutning.


Ok, þannig þetta er ekki eins og íslenska fyrirtækið sem var hérna stórt á tímabili (shopusa.is hét það eða eitthvað) þar sem þau rukkuðu alveg þvílíkt mikið hlutfall af pöntuninni? Skildi aldrei af hverju fólk var að nota þá þjónustu.