Síða 1 af 2

Hjálp með K!TV

Sent: Lau 12. Feb 2005 20:34
af SolidFeather
Hvernig stilli ég stöðvar inná það? Kann ekkert á þetta forrit.

Er með TV LinX kort frá Mtek

Sent: Þri 15. Feb 2005 00:19
af arnifa
----FANN ÞETTA Á NETINU !!!

"Byrjar á að installa K!TV XP og afpakkar svo KAzertix03c_rev2.zip og Kiwicricri_1190.zip inn í plugins c:\program files\k!\k-tv\plugins\



KAzertix03c er fyrir myndina

Kiwicricri_1190 er fyiri hljóð





Síðan keyrir þú upp k-tv ferði í settings og stillir hvaða plugins þú notar

Video KAzertix03c

Sound Kiwicricri_1190

Og ýtir á Apply

Síðan ferðu í næsta glugga við AUDIO/MPS og ferði í Mixer setup settu allt í botn þar…. Og velur LINE IN(Ef þú notar það sem inngang á kortinu)

Þú þarft að sjálfsögðu þegar þú startar forritinu að velja hvaða kort þú ert með Hauppauge WInTV GO og síðan þar fyrir neðan velur þú Philips PAL og þar fyrir neðan PAL BDGHI

Og þar fyrir neðan á að vera TUNER

[Parti um afruglun eytt út af stjórnanda]

Prófaðu þetta …Svolítið ruglingslega skrifað en þetta eru helstu punktarnir…..



Síðan er það bara að fikta….
Spudi"

-----

Þetta virkaði hjá mér en ég nota þetta ekki lengur og veit ekki hvort þetta virki eftir að digital island kom.

Sent: Þri 15. Feb 2005 00:28
af Snorrmund
Svo þið vitið það þá er komið K!TV 2 :) og ég er að prófa það.. :D pósta seinna um hvernig það gekk..

Sent: Þri 15. Feb 2005 00:35
af arnifa
Oki link á það forrit ? kannski að maður tengi aftur sjónvarpskortið og prófi það líka :)

EDIT: fann það á google.

Sent: Þri 15. Feb 2005 02:35
af gumol
Svona afruglun er ólögleg eftir því sem ég best veit. Skoðaðu reglurnar, ekkert ólöglegt efni hér!

Hérna geturu fengið áskrift af Stöð 2: http://stod2.visir.is/?PageID=909

Sent: Þri 15. Feb 2005 12:36
af Snorrmund
og eitt annað ætla taka mér bessaleyfi til að skrifa caps með stórum stöfum og fleira..
LESIÐI ALLT RUGLIÐ Á http://www.kastortv.org/help/index.php?langue=eng

Sent: Þri 15. Feb 2005 12:51
af axyne
þarna, kannski vitlaust hjá mér að spyrja, smá brjóta reglurnar, en fyrst svona korkur er til, þá langar mig að spyrja hvort einhverjum hefur tekist að afrugla digital ísland ?, eða hvort það sé hægt yfir höfuð ?

bara forvitinn :oops:

Sent: Þri 15. Feb 2005 13:07
af SolidFeather
Er með K!TV v2, það er bara ekkert að gera sig.

Sent: Þri 15. Feb 2005 14:29
af Snorrmund
SolidFeather: Ertu að tala um að það sé ekki að gera sig að afrugla digital island eða bara almennt? hvernig kort ertu með?

Ég er með KWORLD Xpert TV-PVR pci(V-stream) :S og ef ég stilli á WDM Drivers í source þá fokkast allt upp. En ef ég stilli á hitt dótið þá er þetta fínnt en þá vanntar mér eitthvað til að stilla kortið mitt inn(Það er ekki í listanum) og þá á maður að nota forrit sem heitir btspy.exe .. en það virkar bara ekkert með WinXP(Ekki heldur með Combatibility mode) :(

SolidFeather: Bendi þér á að lesa helpið á http://www.kastortv.org/ Annað veit ég ekki.. En annars eru einhver plugin og fleira á mikael.vortex.is <offtipic>(fann þetta bara útaf því að einusinni var MJÖG skondið myndband þarna.. ekki lengur veit einhver um þetta myndband? þetta var gaur að flippa eitthvað með webcam og mic.. t.d. tróð hann micnum uppí nefið á sér saug inn og sagði svo COCAINE með svona viskírödd)</offtopic>

Sent: Þri 15. Feb 2005 14:54
af SolidFeather
Fæ bara enga mynd á skjáinn. Annars skiptir þetta engu máli, nota bara forritið sem fylgdi með kortinu (TvLinx frá Mtek)

Sent: Þri 15. Feb 2005 16:00
af arnifa
er það 878 kort ? held að það þurfi.

Sent: Þri 15. Feb 2005 16:03
af CendenZ
hvernig er afruglun á K!TV 2 ?

Ég er með stöð2, stöð2+ bíóstöð2, bíórásina og lang flestar rásir sem hægt að er fá í gegnum digital ísland.

Ég vill bara geta notað tölvuna til að horfa á tv ... sé ekkert að því.


Eru lög á íslandi sem segir að það megi einungis horfa á sjónvarpið í stofunni eða þartilgerðum sjónvarpsherbergjum ?


Hvað næst, ætla djöfulsins þjófarnir á stöð2 að þurfa samþykkja sjónvarpsherbergi gegn "vægu" gjaldi ?

:evil:

Sent: Þri 15. Feb 2005 16:31
af arnifa
var að skoða þetta ktv2 á heimasíðunni þeirra og er bara svipað og fyrri útgáfan.
Ég er líka áskrifandi stoð2, stoð2+, stoð2bío og allt það. En það er aðeins einn myndlykill í húsinu þannig að ef einn í fjölskyldunni vill horfa á stoð2 og annar stoð2bío er það ekki hægt og þá er sniðugt að vera með sjonvarpskort :) en ég er samt að borga fyrir digital island...

Sent: Þri 15. Feb 2005 17:32
af MezzUp
Hmm, er nokkuð hægt að „afrugla“ digital island, afþví að það er allt annað en gamla kerfið?
Með gömlu myndlyklunum var maður að breyta rugluðu-analog merki í venjulegt analog merki, en digital island búnaðurinn er að taka digital merki og decode'a það(eftir leyniaðferði líklega) á analog form.

Sent: Þri 15. Feb 2005 17:33
af Snorrmund
Eru það ekki bara önnur plugin? allavegana á að vera hægt að afrugla digitial útsendingar með K!TV

Sent: Þri 15. Feb 2005 18:55
af Pandemic
Það er hægt strákur sem ég var að tala við um daginn hafði víst náð að afrugla Digital ísland

Sent: Þri 15. Feb 2005 19:10
af gnarr
bráðum verður ólöglegt að horfa á sjónvarp með spegli. :?

Sent: Þri 15. Feb 2005 19:56
af Dagur
Digital Island er ruglað með Conax sem á að vera mjög gott. Ég hélt að maður þyrfti einhvern rándýran gervihnattamóttakara og CAM til að afrugla þetta.

Sent: Þri 15. Feb 2005 20:58
af MezzUp
Snorrmund skrifaði:Eru það ekki bara önnur plugin? allavegana á að vera hægt að afrugla digitial útsendingar með K!TV
Pandemic skrifaði:Það er hægt strákur sem ég var að tala við um daginn hafði víst náð að afrugla Digital ísland
Nú spyr ég einsog einhver sem hefur ekki verið með stöð 2 í langan tíma, en hvernig fær maður ruglað-digital-island? Ég hélt að merkið kæmi bara digital inní móttakarann og óruglað-analog útúr honum. Þ.e. því er í raun aldrei „ruglað“

Sent: Þri 15. Feb 2005 23:33
af Snorrmund
MezzUp: Meinar það.. það gæti vel verið.. ég veit jafn lítið um þetta enda við landbyggðarfólkið ekkert með þetta.. (ert þú ekki annars einhverstaðar út á landi :))

Sent: Þri 15. Feb 2005 23:42
af Pandemic
Annars segja sumir að maður þurfi sérstakt Digital tv kort ofl í rauninni veit ég ekkert hvað ég er að tala um bara svona að segja ykkur hvað ég hef heyrt.

Sent: Þri 15. Feb 2005 23:47
af Snorrmund
Reyndar er þetta satt sem pandemice segjir(held ég ) að maður þurfi Sérstakt Digital kort.. Fattaði það núna.. þegar ég las kworld.com.tw þá sá ég einmitt einhver tigital kort...

Sent: Mið 16. Feb 2005 00:01
af MezzUp
Snorrmund skrifaði:(ert þú ekki annars einhverstaðar út á landi)
Ég? :shock:
Vogar city, höfuðstaður Suðurnesja, Bangkok norðursins, bærinn sem aldrei sefur, miðstöð menningarlífs á Íslandi… :P

Sent: Mið 16. Feb 2005 13:30
af Snorrmund
MezzUp skrifaði:
Snorrmund skrifaði:(ert þú ekki annars einhverstaðar út á landi)
Ég? :shock:
Vogar city, höfuðstaður Suðurnesja, Bangkok norðursins, bærinn sem aldrei sefur , miðstöð menningarlífs á Íslandi… :P
Þegar þú sagðir þetta þá var ég að spá í að linka mynd af þér af myndaþráðnum..(steinsofandi í tíma) en best að halda okkur á umræðuefninu :)

Sent: Mið 16. Feb 2005 15:36
af kaktus
:lol: hehehahahihihi vogar city :þ
ég er fæddur og uppalin í Garði the big apple of Iceland :)