Síða 1 af 1

Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 12:31
af tomasandri
Sælir, veit einhver hvar ég get fundið temprað(tempered) gler og látið skera það til að koma því í NZXT H440 í stað plastgluggans? :) Og hvað það kostar?

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 12:48
af Viktor
Afhverju í ósköpunum þarftu bílrúðu í tölvukassann þinn?

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 12:59
af Nitruz
þarft ekki hert gler er það?
Nota bara venjulegt gler, kostar bara nokkra þúsara.

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 16:59
af tomasandri
Tek bara eftir því að flestir nota tempered gler. Vill ekki að hitabreytingar eða eitthvað splundri glerinu.

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 20:10
af brain
tomasandri skrifaði:Tek bara eftir því að flestir nota tempered gler. Vill ekki að hitabreytingar eða eitthvað splundri glerinu.



Ef kassinn þinn myndi hitna nóg til að splundra gleri, ættiru í miklu verri vandræðum.

það kostar mikið að fá hert gler, og ekki hægt að fá það beygt né að hafa rúnuð horn.

Myndi gera einsog Nitruz mælir með.

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 20:20
af gotit23
prófaðu að senda jojoharalds fyrirspurn(hann hefur látið gera svona fyrir sig veit ég)

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 20:46
af tomasandri
Takk allir :) og ég veit að ég á ekkert í neinum hitavandræðum, vildi bara ekki taka nein risk, þar sem ég er með 1080ti, 7700k, G.Skill Trident og eh á leiðinni og vill ekki að ég eyðileggi það með gleri sem springur(sem ég veit samt ekki hvernig myndi gerast). En ef það er lítill munur(ef ég er ekki með hitavandamál sem sprengir glerið), þá kaupi ég bara venjulegt gler :) veit einhver hvar ég finn tilturlega lítið og ódýrt gler?

Re: Temprað Gler í NZXT H440

Sent: Mið 12. Júl 2017 21:42
af Viktor
Allir kertastjakar sem ég veit um eru úr venjulegu gleri, talsvert meiri hitabreytingar þar og ekkert splúndr í gangi ;)

http://www.ispan.is

En svo geturðu náttúrulega pantað skothelt gler fyrst þú vilt vera alveg öruggur:

http://glerborg.is/gler/