Síða 1 af 1

Format

Sent: Sun 06. Feb 2005 21:46
af Arnarr
hvernig formattar maður C: ?? Vatar eins mikla hjálp og hægt er ! kann ekkjart á þetta og þarf að formatta strax!

Sent: Sun 06. Feb 2005 22:38
af Pandemic
Í fyrstalagi reyndu að skrifa betri íslensku og fara yfir það sem þú skrifar.
Í öðrulagi lestu reglurnar hér
Í þriðja lagi reyndu að skoða FAQ spjallið þar eru þessar upplýsingar sem þú leitar af.

Það munn enginn nenna að hjálpa þér ef þú ferð ekki eftir settum reglum og gerir póstana þína ekki skiljanlega.

Sent: Sun 06. Feb 2005 22:39
af ponzer
Já BT spjallið er lokað !!

Sent: Mán 07. Feb 2005 12:50
af CraZy
er það enn lokað?
ættli við eigum ekki von á fleirum svona :? :(

Sent: Mán 07. Feb 2005 15:54
af Arnarr
okei ég skal reina að gera þetta betur næst en það væri samt fínt að fá hjálp við að formatta!!!!

Sent: Mán 07. Feb 2005 16:10
af hubcaps
Arnarr skrifaði:okei ég skal reina að gera þetta betur næst en það væri samt fínt að fá hjálp við að formatta!!!!

Eins og Pandemic benti réttilega á, þá eru upplýsingar um þetta í FAQ spjallinu.

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=6632

Sent: Mán 07. Feb 2005 16:55
af so
Þú getur forsniðið með Windows 9x start up diskettu og þá bootaru frá A: og forsniður svo með fdisk, en það er svolítil handavinna í DOS viðmóti og kannski ekki besta leiðinn ef maður "kann ekkjart á þetta " :)

Ef þú ætlar að setja Win 2000 eða XP upp á drifið í framhaldi er langbest að fylgja þeim upplýsingum sem pandemic og hubcaps benda á en þær eru mjög fínar.

Lesa svo reglurnar og FAQ þráðinn, getur lært ýmislegt gagnlegt þar og sparað þér spurningar og bögg.

Sent: Mán 07. Feb 2005 17:34
af Daz
Ég hef alltaf verið svolítið pirraður útí þýðinguna forsníða: format, ég vil meina að forsníða sé pre-format og sníða sé þá format. En ég er víst einn um þá skoðun.
Annars gæti orðið hálf undarlegt að tala um þá disklinga sem maður kaupir útí búð (já það eru ennþá einhver not fyrir þá), þeir eru oftast pre-formated, sem myndi þá þýðast forforsniðnir. Alltaf gaman að velta fyrir sér íslenskunotkun, það í það minnsta virðist skapa umræðu ;)

En varðandi þetta format vandamál, afhverju þarftu að gera það STRAX, format á að vera síðasta úrræði, ekki það fyrsta og ekki notað nema í að vel athuguðu máli.

Sent: Þri 08. Feb 2005 09:22
af gnarr
hvernig er það.. er hægt að búa til partion á floppy :lol:

Sent: Þri 08. Feb 2005 10:32
af Pandemic
Oft pælt í því :roll:

Sent: Þri 08. Feb 2005 12:44
af DoRi-
hér ætla ég að lýsa hvernig formatta á C: Drif

það sem þú þarft til verksins:

Tölva og Windows diskur og allir driverar

1.Settu windows diskinn í ODD drifið hjá þér
2.Restartaðu Tölvunni(ef þú varst að vinna í windows áður)
3.Þegar Tölvan startar sér á að koma "Press Any key to boot from cd" ýtta þá á einhvern takka
4.Þá byrjar tölvan að loada setupinu og þú bíður róleg/ur
5.Eftir að setupið er loadað skaltu lesa aðeins og ýta á viðeigandi takka (man þennann part ekki alveg)
6.þegar tölvan er búinn að formatta restartar tölvan sér ALLS EKKI TAKA WINDOWS DISKINN ÚR!! og þá kemur Hinn parturinn af windows setupinu og þar þarftu bara að skrifa inn Cd-keyið (sem þú keyptir vonandi)
7. Tölvan restartar sér aftur og þá er windows að stilla sig fyrir þig þegar það kemur your name skrifaðu bara inn hvað acountinn á að heita
8.Installaðu Driverum fyrir skjákort, móðurborð hjóðkort,
9. installaðu Anti-virus og Firewall í tölvuna þína
10. Enjoy having a fresh-formatted Computer :D :D

Sent: Þri 08. Feb 2005 13:38
af Pandemic
Dori þetta stendur allt í FAQ af hverju í fjandanum helduru að ég hafi verið að skrifa þetta og taka tíma í þetta þegar þetta er ekki notað.

Sent: Þri 08. Feb 2005 19:24
af DoRi-
mér leiddist :(