Síða 1 af 1

Hvaða FRAMLEIÐANDA á móðurborði? :evil:

Sent: Fös 04. Feb 2005 15:32
af PO
Þar sem sumir eru eitthvað pirraðir yfir því að ég skuli hafa misskrifað í öðrum þræði bí ég bara til nýann þar sem hinn var læstur :evil: Þar sem ég KANN ALVEG að breyta og laga þannig að það hefði verið alveg nóg að benda mér á þetta og SLEPPA að læsa þræðinum :evil:
Það getur ekki verið svo erfitt að skilja það að ég er bara að koma með auðvelda spurningu en samt er sett á hana sem ég er ekki alveg að fatta þannig ég er dálítið pist núna og ættla rétt að vona að þessum þræði verði ekki lokað annars verð ég MAD!!! af því að mig vantar bara að komast að þessu littla máli hvað maður á að velja. eitthvern 1 framleiðanda og svo kemur bara hitt í ljós!

Sent: Fös 04. Feb 2005 15:36
af Cascade
Núna er DFi best. (ef þú ætlar að yfirklukka)

Ef þú ætlar ekki að yfirklukka, þá er þetta allt sami skíturinn

Sent: Fös 04. Feb 2005 15:47
af Pandemic
ABIT

Sent: Fös 04. Feb 2005 16:01
af Cascade
Pandemic.

Berðu saman DFi nf4 og ABIT AN8

Sent: Fös 04. Feb 2005 18:15
af kristjanm
Besta ABIT nForce 4 borðið væri sennilega nýja Fatal1ty borðið sem fer að koma núna. Annars held ég að DFI sé betra.

PO þú ættir að vanda póstana þína og innihalda aðeins fleiri framleiðendur eða þá allavega hafa valkostinn "Aðrir".

Sent: Fös 04. Feb 2005 19:03
af Pandemic
Hann spurði nú bara hvað framleiðandi væri bestur og það er algerlega mín skoðun að ABIT séu bestir :lol:

Sent: Fös 04. Feb 2005 19:14
af Daz
Mér þótti það hreint ekki augljóst að þú værir að spyrja um móðurborðsframleiðanda í hinum póstinum þínum svo mér fannst það sem gnarr gerði alveg réttlætanlegt.

Hvaða móðurborðsframleiðandi mér þykir persónulega bestur? Líklega MSI þar sem það eru MSI móðurborð í báðum mínum tölvum og ég hef aldrei lent í vandræðum með þau. Aftur á móti hef ég engan samanburð svo mitt álit í þessum efnum er hálf verðlaust.

Sent: Fös 04. Feb 2005 19:30
af gnarr
Þetta er nú ferakr lítill listi til að vera að spyrja um framleiðanda.

Annars þykir mér Abit vera bestir, þótt þeir séu reyndar ekki enþá komnir með neitt outstanding overclock 939 borð.

Sent: Fös 04. Feb 2005 20:54
af kristjanm
Ég átti fyrst eitt Gigabyte borð sem virkaði í meira en ár, virkar sennilega enn en ég keypti mér bara nýtt.

Svo keypti ég Gigabyte GA-8I875 borð sem dó eftir nokkra mánuði.
Svo keypti ég ABIT IC7 borð sem dó eftir nokkra mánuði.

Núna er ég með ABIT IC7-MAX3 móðurborð sem hefur virkað núna í örugglega svona tvo mánuði.

Ég var með lélegan aflgjafa áður og ég kenni honum um þessi tvö móðurborð sem skemmdust hjá mér.

Af þeim tveimur framleiðendum sem ég hef reynslu af, Gigabyte og ABIT, myndi ég frekar kjósa ABIT.

Annars veit ég að það eru til fleiri góðir móðurborðaframleiðendur. ASUS, MSI og DFi eru líka að standa sig mjög vel núna veit ég.

Sent: Mán 07. Feb 2005 09:18
af Bendill
Bestu borðin fyrir S939 að mínu mati (sem er fyrir alvöru yfirklukkun) eru ABIT Fatal1ty AN8, DFI LANPARTY nF4 SLI-DR, DFI LANPARTY UT nF4 SLI-D og DFI LANPARTY UT nF4 Ultra-D :)

Þetta eru allt ný borð þannig að það er ekki möguleiki í helvíti að þau séu komin til landsins...

Sent: Mán 07. Feb 2005 09:31
af einarsig
hef heyrt góða hluti um OC á fatality ... en ef mar er að spá í hávaða þá er það borð ekki það hljóðlátasta

Sent: Mán 07. Feb 2005 09:50
af viddi
Ég segi MSI

Sent: Mán 07. Feb 2005 12:26
af MuGGz
ég hef átt 3 msi borð, og þau hafa aldrei klikkað, þannig ég er með mjög góða reynslu af MSI

svo fæ ég Abit AV8 borð á morgun, sjáum til hvernig reynslan af því verður

Sent: Mán 07. Feb 2005 22:41
af hallihg
Ég er að nota AOpen AX4BS-Pro móðurborð. Það hefur aldrei klikkað sem að segir allt sem segja þarf. AOpen all the way. Eyði ekki tugþúsundum í eitthvað tískudrasl.