Síða 1 af 2

Bráðvantar hjálp með Format á HDD

Sent: Mið 02. Feb 2005 14:51
af DoRi-
Jæja nú tók ég við 651mhz tölvu með 40gb hdd og skellti honum í mína, tengdi hann við cd ide kapalinn setti jumperinn á slave og tengdi power í diskinn, startaði tölvunni og sá diskinn í my computer og tví-klikkaði á hann og þá kom "this drive has not been formatted, do you want to format now?" ég gerði yes, hakaði við quick format en fékk síðan error "the drive could not be formatted compleatly" eða eitthvað og reyndi síðan að formatta venjulega en fékk sama error

einhver ráð? bráð vandar diska pláss og væri til í smá hjálp helst snöggt :)

Sent: Fös 04. Feb 2005 07:40
af DoRi-
vantar hjálp snöggt helst, vantar hdd pláss og má ekki við að ghenda neinu

Sent: Fös 04. Feb 2005 10:25
af Skippo
Settu upp nýtt partition, ekki víst að það virki en....

Sent: Fös 04. Feb 2005 12:24
af Johnson 32
partition magic??

Sent: Fös 04. Feb 2005 12:56
af Dust
Gæti ekki verið að þú sér með grófu caplana í HDD drifinu, sem maður notar vanalega only fyrir CD, held að þeir séu einhvað annað socket eða einhvað bla bla, svo eru hinir með mun fínni rákum, gæti virkað.

Ég lenti einu sinni fyrir langa löngu í að ég var að setja upp tölvu með kapli sem maður notar vanarlega fyrir CD og það bara einfaldlega var ekki alveg að ganga upp, man samt ekki alveg hvað kom upp, en það var í einhverju fokki, en svo setti ég þessa fínni kapla og þá gék það smurt....Skil ekkert hvað er lögmálið, en hef aldrei notað nema þessa fínu á HDD síðan...Enda eru þeir flestir merktir í dag HDD eða Drive kaplarnir.

Vona að þú fattaðir EINHVAÐ hvað ég var að tjá mig, and hope it helps.

Sent: Fös 04. Feb 2005 14:34
af Phanto
þessir "grófu" eru 40 víra en hinir 80 og það var alltaf notað þessa grófu í hdd áður, held ég.

Sent: Fös 04. Feb 2005 14:43
af Dust
ok góður ;)

Sent: Fös 04. Feb 2005 14:51
af MezzUp
Dust er eitthvað að rugla, alveg hægt að nota 80 víra kaplana við HD.

Þessir auka 40 vírar eru „bara“ til skermunar og bjóða uppá meiri hraða en 40 víra kaplarnir, og einsog Phanto benti á voru þeir áður notaðir í HD.
Ástæðan fyrir því að það eru ennþá 40 víra kaplar í geisladrifum er að þau þurfa ekki jafn hraðvirka kapla vegna þess hve hæg þau eru.

Sent: Fös 04. Feb 2005 17:53
af Dust
Whut MezzUp! Hahaha er ég bara að RUGLA....ég er að segja þér að ég lenti í þessu þegar ég var að setja upp tölvu, hef ekki HUGMYND afhverju sú tölva þurfti þessa 80 víra kapla, en þetta var reynslan, ég var ekki að segja að ég vissi neitt um þetta né neinn heilagan sannleika.

Pirrar mig heldur mikið að segja að ég sé að rugla þegar ég er að segja reynslu......

Sent: Fös 04. Feb 2005 17:55
af Dust
Og by the way, man hvað kom upp, hún blue screenaði þegar ég var búinn að setja upp Windows og eiginlega þegar ég var búinn að klára setja allt annað upp í henni......

Sent: Fös 04. Feb 2005 18:27
af MezzUp
Dust skrifaði:Whut MezzUp! Hahaha er ég bara að RUGLA....ég er að segja þér að ég lenti í þessu þegar ég var að setja upp tölvu, hef ekki HUGMYND afhverju sú tölva þurfti þessa 80 víra kapla, en þetta var reynslan, ég var ekki að segja að ég vissi neitt um þetta né neinn heilagan sannleika.
Chill, meinti þetta nú ekki alveg svona hart. Þér datt í hug að hann gæti þurft 80 víra kapla, en mér fannst ekkert í þeirri staðhæfingu, og finnst líklegra að það hafi verið eitthvað annað sem að gerði gæfumuninn en ekki kaplarnir í þessari „reynslu sem þú varst að segja“
Dust skrifaði:Og by the way, man hvað kom upp, hún blue screenaði þegar ég var búinn að setja upp Windows og eiginlega þegar ég var búinn að klára setja allt annað upp í henni......
Þú varst s.s. búinn að skrifa og lesa helling af harða disknum, svo þegar það kom einusinni bláskjár í Windows(skrítið :P) þá settirðu það upp aftur og það hefur ekki komið bláskjár síðan? Gæti þetta þá ekki verið einhver tilviljun að bláskjárinn hafi komið og kaplarnir ekki skipt neinu máli?
Dust skrifaði:Enda eru þeir flestir merktir í dag HDD eða Drive kaplarnir.
Hmm, ég hef ekki tekið eftir því, en ég hef nú ekki verið mikið að vinna með nýlega PATA kapla.

Þú mættir endilega vanda málfarið þitt betur.
Og já, lestu reglurnar og notaðu breyta takkan frekar heldur en að pósta tveim bréfum í röð

Sent: Fös 04. Feb 2005 18:32
af DoRi-
í þessari tölvu eru nákvæmlega eins kaplar á cd og hdd svo þetta ætti að virka með þessum kapli

Sent: Fös 04. Feb 2005 19:02
af Dust
Sorry að ég varð pirraður, en ég er einn af þeim sem hef verið að spjalla mikið á netinu og hef þurft endalaust þurft að hlusta á einhvað sem viðkemur stafsetningunni minni, þannig dont go there.

og nei, þetta lagaðist þegar ég skipti um kapallinn, þurfti ekki að setja hana aftur upp.

Sorry mig að hlaupa á mig.......

Sent: Fös 04. Feb 2005 19:57
af MezzUp
Dust skrifaði:og nei, þetta lagaðist þegar ég skipti um kapallinn, þurfti ekki að setja hana aftur upp.
Kom s.s. nokkrusinnum blárskjár áður en þú skiptir um kapal og aldrei eftir að þú skiptir um kapal?

Sent: Fös 04. Feb 2005 20:45
af Dust
Þessi postur var svosem ekki neitt um það hvernig þetta fór hjá mér, en efa þú vilt get ég sagt þér það.

Ég setti þessa tölvu upp 2 sinnum, svona til að vera viss um að ég hefði ekki gert einhvað vitlaust í fyrra skiptið sem olli því að hún bluescreenaði, en hún byrjaði aftur á því í 2 skiptið líka, að bluescreena aftur og aftur.......Þannig faðir minn kær sagði mér (sem er by the way kerfisfræðingur og forritari, sem gæti kannski skipt málið í þetta skiptið) að setja þessa 80 einhvað kapal í staðinn fyrir þann sem ég var með fyrir í......Og kabbúmm, hún bluescreenaði ekki aftur

Þú veist að þetta snýst ekki alltaf um að vita einhvað betur en hinn sem er líka á spjallinu.....stundum er maður bara að segja frá því sem gerðist....og sumu hefur maður ekki svör við.

By the way, var þetta nógu skiljanlegt post fyrir þig......gerði hann ALVEG án þess að lesa hann yfir aftur :shock:

Sent: Fös 04. Feb 2005 21:16
af CraZy
Dust ekki bögga MezzUp hann er guðinn.. [-o<

Sent: Fös 04. Feb 2005 21:57
af Dust
CraZy mætti halda að það væri málið.....var svona farinn að pæla í því hvort að þetta sé einhvað topic hjá honum, að koma með einhvað meira eða betra en allir aðrir hérna á spjallinu :nerd_been_up_allnight

Sent: Fös 04. Feb 2005 22:44
af Daz
Er ekki mögulegt að upphaflegi kapallinn hafi einfaldlega verið ónýtur?

Sent: Fös 04. Feb 2005 23:10
af Dust
Jú jú, getur vel verið Daz, auðvelt að eyðileggja umræður með því að níðast á manni útaf eins stupid hlut, sem hefur ekkert undir sig að bera til að kallast ástæða til að níðast á manni útaf skrift og öðru eins....

En núna hef ég lokið máli mínu í þessum post, og mun ég reyna af fremsta megni að skipta mér ekki að þér (Daz) nei MezzUp....og vænti ég hins sama frá ykkur í minn garð...just let me be and all will be fine

Sent: Lau 05. Feb 2005 18:03
af Skippo
Johnson 32 skrifaði:partition magic??


Tek ekki þátt í þessu rugli sem skrifað er að neðan (ofan), það er á hreinu. Nei ekki "partition magic" heldur að gera eitthvað sem ég held að fæstir kunni nú til dags, AÐ KEYRA DOS og gera það þaðan. Ekkert Windows vesen.

Run: command; fdisk.

Verði þér að góðu.

Sent: Lau 05. Feb 2005 18:37
af Daz
Dust skrifaði:Jú jú, getur vel verið Daz, auðvelt að eyðileggja umræður með því að níðast á manni útaf eins stupid hlut, sem hefur ekkert undir sig að bera til að kallast ástæða til að níðast á manni útaf skrift og öðru eins....

En núna hef ég lokið máli mínu í þessum post, og mun ég reyna af fremsta megni að skipta mér ekki að þér (Daz) nei MezzUp....og vænti ég hins sama frá ykkur í minn garð...just let me be and all will be fine


(Svona að lokum)
Góði besti ekki fara að gráta, ég spurði einfaldrar spurningar (þar sem svar hefði t.d. geta verið "já það er mögulegt" eða "nei ég prófaði annann kapal sem ég veit að er í lagi") og hef ekkert boðið þér nema góðlátlegar ráðleggingar og þú talar um að ég sé að níðast á þér. Ég bíð eftir að þetta spjallborð bjóði upp á "ignore user" möguleika, svo allir getið verið ánægðir. En já, ég skal reyna að forðast að lesa þína pósta og svara þér í framtíðinni, við sjáum til hvernig það gengur.

Sent: Lau 05. Feb 2005 18:50
af Dust
Hahahahahahaha

Sent: Lau 05. Feb 2005 21:47
af DoRi-
skippo : fdisk is not "þekkt" by windows blablablablabla....i need my 40gigs!!!

Sent: Lau 05. Feb 2005 23:48
af Phanto
Búinn að prufa að fara í disk management, hægri smella á diskinn og fara í delete partition og búa svo bara til nýtt partition og formatta það?

Sent: Sun 06. Feb 2005 00:15
af Skippo
Phanto skrifaði:Búinn að prufa að fara í disk management, hægri smella á diskinn og fara í delete partition og búa svo bara til nýtt partition og formatta það?


Ok. þetta er það sama. Það er ekki hægt að keyra þetta windows megin í gengum dos. Tók hjálpina og setti hana með.