Síða 1 af 1

Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 14:34
af tobbibraga
Sælir allir, dóttir mín var að kaupa notaða tölvu ný uppsett og fín en það vantar driver fyrir web cam og ég fynn hann hvergi ekki einu sinni inná síðuni hjá framleiðanda,

Hvað er til ráða?
Þetta er Dreamware W550su1

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 14:53
af DJOli
Sæll. Geturðu gefið mér hardware id kóðann frá myndavélinni?
Hann ætti að finnast í device manager ef tölvan finnur hana, en vantar driver.
Hægri klikkar á computer og ferð í manage.
Ferð í Device Manager undir System Tools
Finnur tækið þar sem það sker sig mögulega úr með gulan þríhyrning og upphrópunarmerki.
Hægrismellir á tækið og smellir á Properties.
Ferð í Details flipann, og úr drop-down valmyndinni velurðu Hardware IDs
Þú ættir að fá upp allt að fjóra dálka með upplýsingum sem lýta út eitthvað á þennan veg:
"PCI\VEN_8086&DEV_8C31&SUBSYS_78161462&REV_05"

Ef þú værir til í að afrita upplýsingarnar sem þú færð í hardware ID og commenta þær, þá er möguleiki að ég geti hjálpað þér að finna driver fyrir myndavélina.
Það væri náttúrulega líka alltaf betra að vita á hvaða stýrikerfi tölvan er.

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 18:44
af tobbibraga
Ég var einmitt búinn að kanna í device maneger af þríhyrning en hann er ekki

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 19:04
af tobbibraga
Myndir

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 19:05
af tobbibraga
Hehe eða ekki

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 20:19
af Risadvergur
Ég tek því sem svo að þetta sé laus myndavél. Virkar hún með öðrum tölvum?

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 20:37
af Hnykill
http://www.clevo.com.tw/en/e-services/d ... odel=C4500

Það eru 2 driverar þarna inni. annar þeirra er neðstur. .. "Supertek 1.3M pixel webcam driver for VISTA and Windows 7." hinn er nefndur "300K pixel webcam drivers for Windows 7." basicly sami drivers samt.

Prófaðu þennan "300K pixel webcam drivers for Windows 7." og sjáðu hvort það virki ekki. ef ekki þá uninstallaðu honum bara og reyndu hinn. þetta er víst Clevo w550su1 fartölva. en um leið og þú googlar " Dreamware" þá ruglast allt einhvernveginn.

abbb !! 3 driverar þarna inni meina ég :Þ ! ..k, reyndu þennan fyrst. "1.3M pixel webcam drivers for Windows 7." ..hann er nr. 11 í röðinni talið ofan frá. :)

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 21:42
af tobbibraga
Ok ætla að prufa þetta

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 22:01
af tobbibraga
driverinn virtist koma inn en svo kemur þessi melding alltaf

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 22:02
af tobbibraga
ég er búinn að prufa allt sem kemur ef ég fer í "svona er farið að"

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 22:05
af tobbibraga
Risadvergur skrifaði:Ég tek því sem svo að þetta sé laus myndavél. Virkar hún með öðrum tölvum?


þetta er myndavélinn á tölvuni sjálfri.

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 22:35
af beggi90
tobbibraga skrifaði:
Risadvergur skrifaði:Ég tek því sem svo að þetta sé laus myndavél. Virkar hún með öðrum tölvum?


þetta er myndavélinn á tölvuni sjálfri.


Er hægt að enable/disable webcamið með FN+F(tala) combo-i?
Mögulega þess háttar vesen?

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 22:44
af tobbibraga
já búinn að reyna það og það virkar ekki ...

Re: Vantar driver

Sent: Sun 19. Feb 2017 23:19
af worghal
prufaðu að hafa samband við Start.
minnir að þeir hafi verið með umboðið á þessum tölvum.