Síða 1 af 1
Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Mán 30. Jan 2017 20:12
af flugi
Góða kvöldið hér, mig langaði að forvitnast aðeins með aflgjafa í borðtölvu sem ég er með. Veit ekki mikið um tölvur en mér var sagt að það væri líklega það sem væri bilað í henni. Það er svona psu í henni
http://www.powercolor.com/tw/products_p ... s.asp?id=8Kannski einhver fróðari en ég sem gæti bent mér á hvort að ég fái svona eða eitthvað sem mundi passa í staðinn fyrir þetta.
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Mán 30. Jan 2017 20:16
af Gunnar
þetta er mjög basic aflgjaf af því sem mér sýnist.
getur valið hérna af afgjöfum sem henta fyrir þig. flest allt default stærðir
http://www.vaktin.is/index.php?action=p ... lay&cid=18Ef þú setur inn hvernig hluti þú ert með i tölvunni þinni er hægt að leiðbeina þér kannski betur að því hvað væri sniðugast fyrir þig.
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Mán 30. Jan 2017 20:42
af flugi
Ekki viss um hvað er inni í henni, en sendi mynd ef það hjálpar eitthvað
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Mán 30. Jan 2017 20:53
af flugi
Ætla að reyna að senda mynd
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Mán 30. Jan 2017 22:05
af flugi
Hún verður aðallega notuð í að vafra á netinu og Youtube áhorf
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Mán 30. Jan 2017 22:54
af worghal
ertu nokkuð að reyna að kveikja á henni eins og hún er á myndinni?
það vantar að tengja bæði 24 pin í móðurborðinu og 6 pin á skjákortinu...
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Þri 31. Jan 2017 08:43
af flugi
Aha takk fyrir þessar upplýsingar. Búin að tengja 24 pinna tengið, en hvar á 6 pinna tengið að tengjast?
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Þri 31. Jan 2017 08:55
af I-JohnMatrix-I
6-pinna tengið tengist í skjákortið, það ætti að vera plögg "framan á því". Hægri hliðin séð frá myndinni sem þú póstaðir.
Re: Aflgjafi í borðtölvu (PSU)
Sent: Þri 31. Jan 2017 09:23
af flugi
Já, fann það:) Takk kærlega fyrir hjálpina allir:):):)