Síða 1 af 1

Verðlækkun á 1080?

Sent: Mán 02. Jan 2017 00:16
af gunnrar
Sælir félagar, ég er að velta því fyrir mér hvenær maður mætti búast við verðlækkun eða góðum díl á GTX 1080?

Var að vonast til að tölvulistinn kæmi kannski með góðan díl á útsöluni hjá þeim sem var að byrja en svo virðist ekki vera :(

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Mán 02. Jan 2017 00:30
af Skaz
AMD er að fara að kynna næstu línu hjá sér núna á CES 5.janúar þannig að ég myndi ekki búast við neinni breytingu á verði fyrr en þau kort sem að þeir kynna fara í sölu og Nvidia þarf að fara að huga að samkeppni. Gætu verið 1-2 mánuðir upp í hálft ár.

Jafnvel þá er vafasamt hvort að Nvidia sjái ástæðu til að breyta verðum.

Svo er annað hvort að söluaðilar hérlendis taki við sér á sama tíma. Hefur oft verið svolítil seinkun á verðlagi erlendis og hérlendis.

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Mán 02. Jan 2017 09:06
af slapi
Það er eitthvað NDA lift á morgun sem gæti verið 1080TI , miðað við orðróma ætti að ýta 1080 aðeins niður.

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Þri 14. Feb 2017 21:58
af emil40
ég er að hugsa um að fá mér 1080 í sumar. Þetta er kortið sem ég er að pæla í hjá tölvutækni

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=3247

Það er á 120þ haldið þið að það verði búið að lækka eitthvað í sumar ?

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Þri 14. Feb 2017 22:03
af jonsig
gunnrar skrifaði:Sælir félagar, ég er að velta því fyrir mér hvenær maður mætti búast við verðlækkun eða góðum díl á GTX 1080?

Var að vonast til að tölvulistinn kæmi kannski með góðan díl á útsöluni hjá þeim sem var að byrja en svo virðist ekki vera :(


Maður er að sjá helvíti góð verð á amazon á notuðum kortum. Þú gætir chekkað á því.

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Mið 15. Feb 2017 04:36
af DJOli
Ég sé að síðustu 5 daga hafa Asus GTX1080 Strix og MSI GTX1080 Armor skjákortin hjá att.is lækkað aðeins í verði. Það fyrrnefnda úr 129.950 í 119.950 og híð síðarnefnda úr 104.950 í 98.950

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Mið 15. Feb 2017 14:26
af agust1337
emil40 skrifaði:ég er að hugsa um að fá mér 1080 í sumar. Þetta er kortið sem ég er að pæla í hjá tölvutækni

http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=3247

Það er á 120þ haldið þið að það verði búið að lækka eitthvað í sumar ?



https://odyrid.is/vara/gigabyte-gtx-108 ... 8gb-gddr5x

98k hér

Re: Verðlækkun á 1080?

Sent: Mið 15. Feb 2017 14:36
af emil40
takk fyrir þetta ágúst :) Kannski að maður fari í 2x svona :)

linkurinn hjá þér er ekki á sama kort

https://odyrid.is/vara/gigabyte-gtx-108 ... 8gb-gddr5x

þetta er sama verð.