Síða 1 af 1

Ódýrt PCI TV-out

Sent: Lau 22. Jan 2005 21:14
af nu11
Heyriði, það stendur þannig á að mig vantar PCI TV-out skjákort fyrir tölvu sem framkvæmir ekkert sem kallast leikjaspilun, þannig að það má vera skíta budget kort þessvegna, svo lengi sem TV-out er sæmilegt.

Vitiði hvaða kort væri sniðugt að kýkja á? Ég er bara nákvæmlega ekkert búinn að vera fylgjast með skjákortaþróuninni síðasta árið og þessvegna leita ég til ykkar sem hafið vonandi reynslu til að svara þessu.

Takk.

Sent: Lau 05. Feb 2005 02:50
af ^Soldier
Þú þarft ekki að leita langt til að finna kort með TV-Out. Ég keyoti eitt sem heitir Nvdia FX-5500 og er með tv out. Kortið virkar ágætlega og kostar aðeins um 8000kr. Svo gæti vel verið að FX-5200 sé einnig með TV-out (hef ekki tékkað á því) en það er mun ódýrara.

Þetta ætti ekki að vera dýr fyrir þig allavega =)

Sent: Lau 05. Feb 2005 03:51
af Daz
440MX og 420MX hljóma eins og þau séu einmitt það sem þú ert að leita að, í það minnsta eru það hræódýr PCI skjákort með TV out (ættu bæði að vera undir 5 þúsund).

Sent: Mán 07. Feb 2005 08:53
af ^Soldier
Úbbs, var aðeins að flýta mér, tók ekki eftir PCI en þessi kort sem ég nefndi eru AGP :/

Sent: Mán 07. Feb 2005 08:54
af einarsig
það eru til 128 mb fx5200 PCI

Sent: Mán 07. Feb 2005 10:31
af urban
einarsig skrifaði:það eru til 128 mb fx5200 PCI


já en han er nú bara að pæla í tv out og til þess þarf hann nú ekki 128 mb kort...

en veistu ég mundi gefa þér mx 440 kortið mitt ef að kötturinn hjá mér hefði bara ekki tekið uppá að henda því í gólfið þegar ég var að skipta því út.....


ég skoðaði það og það virkar ekki lengur

Sent: Mán 07. Feb 2005 10:41
af ponzer

Sent: Mán 07. Feb 2005 14:49
af einarsig
urban- skrifaði:
einarsig skrifaði:það eru til 128 mb fx5200 PCI


já en han er nú bara að pæla í tv out og til þess þarf hann nú ekki 128 mb kort...

en veistu ég mundi gefa þér mx 440 kortið mitt ef að kötturinn hjá mér hefði bara ekki tekið uppá að henda því í gólfið þegar ég var að skipta því út.....


ég skoðaði það og það virkar ekki lengur


jamms en þetta kort dugar nú hvort eð er bara í video þannig að ég var ekki að meina að nota það í neitt annað ;)

Sent: Mán 07. Feb 2005 22:39
af hallihg
Ég er með hið misgóða GeForce FX 5200 og það er TV out sem að er afar einfalt í notkun og virkar eins og í sögu. Færð þetta kort ódýrt svo það væri góður kostur fyrir þig.

Sent: Mán 07. Feb 2005 22:45
af Ragnar
ég á mx440 kort með tv-out en það er agp.